Morgunblaðið - 09.12.2003, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 47
JAKOB Sigurðarson átti góðan
leik með liði sínu Birmingham
Southern College um síðustu helgi í
leik gegn Robert Morris-háskólan-
um. Jakob skoraði 29 stig í 83:75
sigri liðsins en skólaliðið er í Big
South-háskóladeildinni. Jakob setti
jafnframt persónulegt stigamet með
liðinu.
JAKOB hitti úr 8 af 13 skotum sín-
um í leiknum og 4 af 8 skotum sínum
utan 3ja stiga línunnar. Auk þess
hitti hann úr 9 af 10 vítaskotum sín-
um. Auk þess að vera stigahæstur þá
var Jakob með flestar stoðsendingar
eða 5 talsins.
SAM Allardyce og Jay-Jay
Okocha voru í gær útnefndir knatt-
spyrnustjóri og leikmaður nóvem-
bermánaðar í ensku úrvalsdeildinni
en þeir eru báðir hjá Bolton. Allar-
dyce er knattspyrnustjóri Bolton en
liðið náði í 10 stig af 12 mögulegum í
nóvember en Okocha er fyrirliði liðs-
ins. Liðið var í 10. sæti í lok mán-
aðarins.
ALLARDYCE hefur sagt að hann
muni hafna öllum tilboðum í Okocha
þegar leikmannamarkaðurinn opnar
á ný í janúar, en framherjinn lék áð-
ur með PSG í heimalandi sínu,
Frakklandi.
BRASILÍSKI knattspyrnumaður-
inn Rivaldo hjá AC Milan var í gær
útnefndur versti knattspyrnumaður-
inn á Ítalíu 2003 af hlustendum RAI-
útvarpsstöðvarinnar, en rúmlega
fimm þúsund hlustendur tóku þátt í
kjörinu. Rivaldo fékk 28% atkvæða,
en í öðru kom Al-Saadi Gaddafi, sem
hafði ekki leikið leik með Perugia
áður en hann féll á lyfjaprófi á dög-
unum – með 21,5% atkvæða. Þýski
framherjinn Carsten Jancker hjá
Udinese, sem sem skoraði sitt annað
mark fyrir liðið um sl. helgi í þá
sautján mánuði sem hann hefur ver-
ið hjá því, kom í þriðja sæti.
Aðrir leikmenn sem voru ofarlega á
blaði eru Marco Materazzi, varnar-
maður Inter, Portúgalinn Sergio
Conceicao og Serbinn Sinisa Mih-
ajlovic, sem báðir leika með Lazio.
STOKE fékk sóknarmanninn og
norður-írska landsliðsmanninn-
Gerry Taggart að láni í einn mánuð í
gær frá Leicester. Taggart mun
hitta fyrir hjá Stoke gamlan félaga –
Ade Akinbiyi, sem kom til liðsins frá
Crystal Palace í byrjun keppnis-
tímabilsins. Taggart mun leika sinn
fyrsta leik með Stoke í kvöld þegar
liðið leikur gegn West Ham í 1. deild-
arkeppninni í London.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, sagði í gær að Pascal
Cygan væri ekki á förum frá liðinu.
„Hann er mjög ánægðir með að vera
hjá Arsenal og ég sé ekki ástæðu fyr-
ir því að hann sé á förum. Hann hef-
ur staðið sig vel í leikjum okkar og á
eftir að verða stöðugri,“ sagði
Wenger.
FÓLK
„VIÐ ætlum okkur að fara alla leið í
ár,“ sagði Alda Leif Jónsdóttir leik-
maður ÍS að loknum leik liðsins
gegn Keflavík. „Það er nóg eftir af
mótinu en eins og staðan er í dag þá
ætlum við að ná eins og langt og
hægt er. Það þýðir aðeins eitt. Ís-
landsmeistaratitill. Í þessum leik
náðum við að hitta vel úr þriggja
stiga skotunum okkar en það hefur
verið sá þáttur í okkar leik sem hef-
ur verið að bregðast. Keflavík beitti
svæðisvörn á okkur, líklega vegna
þess að við höfum verið að hitta illa.
En vörnin hjá okkur var að sama
skapi þétt og þar var grunnurinn að
sigrinum lagður,“ sagði Alda Leif en
hún skoraði alls 27 stig Það mesta
sem hún hefur skorað í vetur. Alda
sagði ennfremur að ekki stæði til að
fá erlendan leikmann á næstunni.
Ekki nógu gott
Anna María Sveinsdóttir, leik-
maður Keflavíkur, vildi ekki nota
fjarveru þriggja lykilmanna liðsins
sem afsökun fyrir tapinu gegn
Keflavík. „Við erum með breiðan og
góðan hóp af leikmönnum. Þessi
leikur var ekki nógu góður af okkar
hálfu en það reyndu allir að berjast
eins og þeir gátu. Við erum með
blöndu af yngri og eldri leikmönnum
og teljum að við getum náð langt
með þetta lið eins og það er skipað í
dag. Það er ekki á dagskránni að fá
liðsstyrk á nýju ári með erlendum
leikmanni,“ sagði Anna María.
FÆREYINGAR eru himinlifandi
yfir niðurstöðunni úr drættinum
í undankeppni heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu síðasta
föstudag. Þeir eru í riðli með
Frakklandi, Írlandi, Sviss, Kýpur
og Ísrael, og telja þetta vera
mjög vænlega mótherja.
Dagblaðið Sosialurin segir að
útkoman hefði varla getað verið
betri. Engar Austur-Evr-
ópuþjóðir, ein sannkölluð stór-
þjóð, og tvær fínar ferðir til heit-
ari landa. „Frakkland með
leikmenn á borð við Zidane,
Henry og Barthez er sannkall-
aður gullkálfur fyrir færeyska
knattspyrnusambandið og mun
færa því milljónatugi í tekjur.
Miklir sjónvarpspeningar og góð
aðsókn tryggð,“ segir meðal
annars í umfjöllun Sosialurin um
dráttinn.
Það vantaði þrjá lykilleikmenn í liðKeflavíkur að þessu sinni.
Kristín Blöndal, Birna Valgarðsdótt-
ir og Erla Þorsteins-
dóttir voru fjarver-
andi vegna veikinda
en í lið ÍS vantaði
miðherjann Guðríði
Svönu Bjarnadóttur. Þríeykið Krist-
ín, Birna og Erla skora að jafnaði
flest stig fyrir Keflavík og Hjörtur
Harðarson þjálfari liðsins lét korn-
unga leikmenn spreyta sig í þeirra
stað.
Lovísa Guðmundsdóttir opnaði
leikinn með fyrstu fjórum stigum ÍS
en Svava Stefánsdóttir svaraði með
fimm stigum í röð fyrir Keflavík. Tvö
stig skildu liðin að í lok fyrsta leik-
hluta, 11:9, fyrir ÍS.
Liðin skiptust á um að taka skorp-
ur í öðrum leikhluta. Í stöðunni 16:11,
skoruðu leikmenn Keflavíkur átta
stig í röð og komust yfir, 16:19. Þar
lét ungur leikmaður úr liði Keflavík-
ur, Bryndís Guðmundsdóttir, mikið
að sér kveða en hún er aðeins 15 ára
gömul. Bryndís skoraði sex stig í röð,
síðan rann af henni móðurinn en hún
skoraði alls 13 stig í leiknum, öll í
fyrri hálfleik.
Alda Leif Jónsdóttir í liði ÍS tók við
sér í stöðunni, 23:25, og skoraði hún
næstu 12 stig leiksins, þrjár þriggja
stiga körfur og þrjú stig til viðbótar.
Glæsileg rispa.
Lið ÍS fór með 10 stiga forskot til
búningsherbergja í hálfleik en bæði
lið voru lengi að finna leiðina að körf-
unni í upphafi þess síðari.
Anna María Sveinsdóttir skoraði
fyrstu stigin í síðari hálfleik en þá tók
við flugeldasýning hjá leikmönnum
ÍS sem skoruðu sex þriggja stiga
körfur og náðu mest 22 stiga forskoti.
Hafdís Helgadóttir kveikti í liðinu
með þeirri fyrstu, Stella Rún Krist-
jánsdóttir skoraði þrjár og Alda Leif
tvær.
Útlitið var því ekki bjart í herbúð-
um Keflavíkur er fjórði og síðasti
leikhlutinn hófst, þrettán stiga mun-
ur, 53:40.
En Anna María fór fyrir sínu liði,
barðist eins og ljón undir körfunni en
það gekk hinsvegar illa hjá Keflavík-
urliðinu að hitta úr þriggja stiga
skotunum. Gestirnir beittu stífri
pressuvörn sem skilaði ágætum ár-
angri. Ívar Ásgrímsson þjálfari ÍS
var ekki sáttur við gang mála á loka-
kaflanum þar sem hans lið henti
knettinum frá sér hvað eftir annað og
um tíma var munurinn aðeins sjö
stig, 61:54, og nægur tími eftir.
Alda Leif, Stella og Lovísa skor-
uðu hinsvegar síðustu stig leiksins og
tryggðu ÍS mikilvægan sigur, 68:54.
Hittni ÍS í leiknum var með ágæt-
um, sérstaklega fyrir utan þriggja
stiga línuna. Svæðisvörn Keflvíkinga
gaf færi á sér hvað eftir annað en það
vantaði aðeins herslumuninn á að
gestirnir næðu yfirhöndinni undir lok
leiksins.
Þrjár 15 ára gamlar stúlkur voru í
leikmannahóp Keflavíkur að þessu
sinni og nægur efniviður þar á bæ.
Bryndís stóð sig mjög vel í fyrri hálf-
leik, María Ben Erlingsdóttir er at-
hyglisverður leikmaður. Hávaxin og
með góða tækni. Hinsvegar varð
hittni liðsins því að falli að þessu
sinni. Erla Reynisdóttir fann ekki
fjölina sína en Anna María fór að
hitna er á leið leikinn.
Í liði ÍS bar mest á Öldu Leif og
Stellu.
En ekki má gleyma Hafdísi og
Helgadóttur og Svandísi Sigurðar-
dóttur en þær léku vörnina af festu.
Sú síðastnefnda lét Önnu Maríu hafa
mikið fyrir þeim 18 stigum sem hún
skoraði.
Alda Leif fór
fyrir liði ÍS
ÍS tók á móti Keflavík í 1. deild kvenna í gærkvöldi í Íþróttahúsi
Kennaraháskólans og hafði heimaliðið betur og er í efsta sæti
deildarinnar með 14 stig að loknum 9 umferðum. Keflavík kemur
þar á eftir með 12 stig. Tíu stiga munur var á liðunum í hálfleik,
35:25, fyrir ÍS en gestirnir reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn
en tókst ekki þrátt fyrir harða baráttu. Lokatölur 68:56.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
Færeying-
ar himin-
lifandi
„Ætlum
að fara
alla leið“
SVO gæti farið að körfuknattleiks-
mennirnir Svavar Atli Birgisson og
Gunnlaugur Erlendsson myndu ekki
leika með Þór frá Þorlákshöfn fyrr
en í febrúar en þeir félagar hafa
ekki leikið að undanförnu með liðinu
vegna anna við próflestur í Íþrótta-
kennaraskóla Íslands á Laugarvatni.
Leikmennirnir eru báðir frá Sauð-
árkróki og munu dvelja í heimabæn-
um við æfingakennslu í byrjun
næsta árs – samfleytt í 6 vikur.
Svavar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að svo gæti farið að þeir
yrðu ekki með Þór á ný fyrr en í
febrúar en það ætti eftir að ráða
fram úr þeim vandamálum sem dvöl
þeirra á Sauðárkróki veldur nýlið-
um Þórs frá Þorlákshöfn. Liðið hef-
ur ekki unnið leik frá því að liðið
lagði Breiðablik á útivelli þann 19.
október. Svavar hefur skorað 18,5
stig að meðaltali í þeim 4 leikjum
sem hann hefur leikið til þessa en
Gunnlaugur 12,3 stig í 9 leikjum.
Þeir voru ekki með liðinu gegn
Keflavík s.l. sunnudag.
Kristinn Guðjón Kristinsson for-
maður félagsins sagði í gær að leik-
mennirnir hefðu ekki haft samband
við einn eða neinn um sína fjarveru.
„Við fengum þær fréttir að þeir
væru á leið norður í janúar. Þeir
spila ekki með Þór á meðan þeir eru
þar í sex vikna æfingakennslu. .
Gunnlaugur hefur ekki sést hér í
eina viku og við vitum ekki um fram-
haldið hjá þeim,“ sagði Kristinn.
Svavar og Gunnlaugur
hættir með Þór Þ.?
Hvert ertu að fara? Rannveig Randversdóttir úr Keflavík hefur góðar gætur á Öldu Leif úr liði ÍS.