Vísir - 03.01.1981, Side 7
Laugardagur 3. janúar 1981
vísm
Mikill ótti rikir nú i Bretlandi
vegna þess að talið er að irski
lýðveldisherinn, l.R.A. kunni að
láta til skarar skriða á næst-
unni. Meðal þess sem aukið
hefur þennan ótta er að kunnur
skæruliði I.R.A., Gerard Truite,
slapp skömmu íyrir jólin úr
fangelsi i London og hefur ekki
náðst enn aö þvi er best er vitaö.
Tveir aðrir fangar sluppu
ásamt Truite úr Brixton fang-
elsinu, Stanley Thompson og
James Moddy, enThompson gaf
sig fram rétt eítir flóttann enda
hafði hann þá fréttað hann hefði
verið sýknaður af ákærum um
rán og þjófnaði. Moddy gengur
enn laus.eins og Truite, en hann
var einn meðlimanna i ,,The
Thursday Mob'' sem rændi
launaumslögum launþega á
fimmtudögum. Ress má geta að
báðir eru gamlir vinir John
McVicar, frægs fanga sem
margoft hefur sloppið úr fang-
elsum Bretlands en gengur nú
laus. Roger Daltrey, söngvari
hljómsveitarinnar The Who lék
McVicar nýlega i kvikmynd
sem gerð heíur verið um lif
hans.
Um Truite gegnir öðru máli,
allir eru sammála aö hann sé
mjög hættulegur og svifist
einskis. Lögreglan i Bretlandi
hefur lagt sérstaka áherslu á að
hann sé snillingur i að dulbúa
sig og hefur þvi dreift samsett-
um myndum af hugsanlegum
gervum svo fólk eigi auðveldara
með að átta sig, rekist það á
hann. Á stærstu myndunun.
tveimur sést hinn rétti Truite en
á hinum átta gervi hans.
JOLAHUS
•• #»•
• r
A'i;
V«'
í-ígi
Viö erum framsýnir - jólagjönn þín fyrir næstu jól,
getur orðið einingarhús frá okkur.
Hús jafnt úr timbur- eða steyptum einingum
Hafið samband við sölumenn okkar um
frekari upplýsingar.
Næstu jól verða gleðileg jól í húsi frá okkur.
HÚSASMIÐJAN HF. Wl
SÚÐARVOGI 3-5, REYKJAVÍK SIMI : 84599 ■ hni
Flóttamaður í dulargervi