Vísir - 03.03.1981, Page 5
vlsm
5
Þriðjudagur 3. mars 1981.
S-Afríku
hafnað á
ailsherj-
arbingi
Enn hefur S-Afriku verið visað
frá allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna, i þriðja sinn á sex ár-
um, en i gær átti að endurvekja
umræður um sjálfstæði til handa
Namibiu (Suðvestur-Afriku).
Þetta er i annað sinn, sem S-
Afrika reynir að fá að sitja fund
allsherjarþingsins, þegar ræða
hefur átt málefni Namibiu. Þátt-
töku S-Afriku var hafnað á alls-
herjarþinginu i nóvember 1974
vegna stefnu hennar i kynþátta-
málum.
Pik Botha utanrikisráðherra S-
Afriku lét hafa eftir sér að ibúum
lands hans heföi verið neitað um
þann grundvallarrétt, að hlustað
yrði á þá. Kvað hann undarlega
að farið af öflum, sem gera kröfu
til þess að S-Afrika móti afstöðu
sina til Namibiu með tilliti til al-
þjóðavilja og þvi sem alheimur
leggði til.
Giscard D’Estaing forseti telur sig eina frambjóðandann, sem borið
geti sigurorð af frambjóðendum vinstri manna I Frakklandi.
DEstaing
tilkynnti
framboö sitt
Valery Giscard D’Estaing,
Frakklandsforseti, tilkynnti i
gær, að hann byði sig fram til
annars 7 ára kjörtimabils i kosn-
ingunum i næsta mánuði. — Lýsti
hann sig eina frambjóðandann,
sem möguleika ætti á þvi að sigra
framboð vinstri manna.
Forsetinn sagði i gærkvöldi:
„Stjórnarandstaðan (socialistar)
verður annaö hvort að reyna aö
komast i stjórn með kommúnist-
um eða svikja kjósendur sina meö
þeim afleiðingum, sem það hef-
ur.”
Nýjustu íkoðanakannanir þykja
gefa til kynna, aö D’Estaing og
hinn 64 ára leiðtogi socialista,
Francois Mitterrand, njóti mjög
svipaðs fylgis. Mitterrand býður
sig nú i þriðja sinn fram til for-
seta, en ekki munaöi nema 2% á
fylgi hans og D’Eastaings 1974,
enda mynduðu socialistar og
kommúnistarkosningabandalag i
þeim kosningum.
D’Estaing sagðist mundu gefa
sig allan að kosningabaráttunni
og ekki fela sig á bak við virðu-
leika forsetaembættisins. Hann
var siðastur af aðalframbjóö-
endunum til þess aö tilkynna
framboð sitt opinberlega.
Meöal annarra frambjóðenda
eru Georges Marchais, leiðtogi
kommúnista, og Jacques Chirac,
fyrrum forsætisráöherra og leið-
togi Gaullista. — Mikill fjöldi
manna er i framboöi fyrir þessar
kosningar.
Ræða vopna-
hléshugmynd-
ir í Persa-
llóastrfðl
Ognar lífi 150
meö handsprengju
Yfirmaöur Iranshers hefur
vakið máls á möguleika vopna-
hlés milli írans og íraks, en strið-
ið hefur nú staðið i fimm mánuði.
Skilmálar hans sýnast þó óaö-
gengilegir fyrir Bagdadstjórnina.
Þetta er samt i fyrsta sinn, sem
áhrifamaður i Iran !jær máls á
þvi, að til greina komi að semja
um vopnahlé við Iraka, áður en
iraskir hermenn verði á brott úr
Iran.
Valiollah Fallahi, hershöfðingi,
segist styðja vopnahlé, sem gefi
Irökum færi á að flytja herlið sitt
brott af Irönsku landssvæði.
Hussein forseti Iraks sagði fýrr
i gær nokkrum múhammeðskum
leiðtogum, sem reyna að beita sér
fyrirfriði milli striösaðilanna, að
hann væri reiðubúinn að láta af
bardögum um leið og Iranir sam-
þykktu vopnahlé. En hann sagöi
að ekki kæmi til greina, að her
hans yrði kaUaður inn fyrir fyrri
landamæri rikjanna, áður en
samið hefði veriö um lausn deil-
unnar.
Pakistani, vopnaður hand-
sprengju og skotvopnum, neyddi
Boeing 720-þotu i innanlandsflugi
milli Karachi og Peshawar til
þess að fljúga til Kabúl i
Afganistan.
Um borð i vélinni voru 148 far-
þegar og áhöfn og hafðist fólkið
við i vélinni i nótt, meðan ræning-
inn þjarkaði við yfirvöld heima i
Karachi i gegnum senditæki
vélarinnar. Fékk fólkiö mat og
teppi frá flugvallaryfirvöldum.
Flugræninginn krafðist þess, að
faöir hans, bróðir og fleira fólk,
sem handtekið hefur verið i
Pakistan i pólitisku umróti þar,
verði látið laust.
Valdi hann sama dag til flug-
ránsins og nýstofnuð samtök
völdu til mótmæla gegn fjögurra
ára herstjórn landsins. Samtökin
vilja beita sér fyrir endurreisn
lýðræðis i Pakistan og standa að
þeim niu stjórnarandstöðuflokk-
ar. Við stofnun samtakanna i sið-
asta mánuði brutust út viðtækar
stúdentaóeirðir og leiddi það til
handtöku hundruða stúdenta.
Flugræninginn segist styðja
flokk Ali heitins Bhúttós, for-
sætisráðherran s, sem Zia Ul-Hag
hershöfðingi bylti og lét siðar
taka af lifi. Lagði hann fram lista
með nöfnum 80 manna, sem hann
vildi láta lausa. Hótaði hann ella
aðsprengja upp flugvélina og far-
þegana með.
Zia hershöfðingi er staddur
erlendis vegna tilraunar
múhammeðstrúarsamtaka til
þess aðkoma á friði milli lrans og
íraks. Þeir, sem heima sitja við
stjórn á meðan, höfðu ekki komist
aö neinni niðurstöðu i morgun
varðandi úrslitakosti flugræn-
ingjans.
komist að samkomulagi sem
bindur enda á verkföll sem staðiö
hafa yfir í taqia viku. Verkamenn
i mörgum starfsgreinum fóru i
verkfall til að mótmæia fangelsun
verkamanna, sem voru i verk-
falli.
Robert Muldoon, forsætisráð-
herra, sagði að stjórnin væri til-
biíin að ræða breytingar á verka-
lýðslöggjöf landsins, ef verkfalls-
menn sneru aftur til vinnu sinnar.
Jim Knox, forseti alþýðusam-
bandsins þeirra Ný-Sjálendinga,
mælti eindregið með þvi viö
verkamenn i gær, að þeir mættu
til vinnu i dag.
Vandræðin hófust á þriðjudag-
inn þegar vélstjórar hjá Air New
Zealand, sem voru i verkfalli til
að knýja fram hærri laun, voru
handteknir á flugvellinumi Auck-
land, sakaðir um að vera á ferli á
bannsvæði. Handtaka þeirra kom
af stað verkföllum, sem lömuðu
almenningssamgöngur og lokuðu
mörgum verksmiðjum.
Eftirlýstur
ráðherrasonur
Dómstóll f Paris leggur til, aö
Marco Dona t-Cattin, sonur eins af
framámönnum kristilegra demó-
krata á ítaliu, verði framseldur
itölskum yfirvöldum. Hann er
sakaður um hlutdeild i hryðju-
verkum, eins og mannráni,
íkveikjum og morði nú á Emilio
Alessandrini í Milanó 1979. Faöir
hans lá undir grun um að hafa
misnotað sér valdaaðstöðu til
þess að komast að þvi að lögregl-
an ætlaði að handtaka soninn og
þá varað Marco við, svo að hann
fldði úr landi.
Fjöldamorð á
svörlum börnum
Svartir foreldrar i Atlanta i
Gerorgiu eru sem þrumu lostnir
af skelfingu og reiði þessa dag-
ana. Siðustu nitján mánuðina
hafa nftján svört börn verið myrt
og lítils drengs er saknað. Börn-
um yngrien 17 ára er ekki heimilt
að fara út úr húsi á kvöldin og um
næturna og lögreglan er með i
gangi einhverja umfangsmestu
leit að moröingjanum eða morð-
ingjunum i sögu Bandarikjanna.
„Ég trúi þvi ekki að sami mað-
urinn hafi verið hér að verki i öll
skiptin, þó svo ummerkin sýni að
sami maðurinn beri ábyrgð á
nokkrum þeirra”, sagði Jackson,
borgarstjóri, I blaðaviðtali ný-
lega.
A engu likanna nitján, sem
fundist hafa, eru merki þess að
fórnarlömbin hafi veitt mótstöðu
og hafa þvi komist á kreik sögu-
sagnir um að morðinginn hafi
dulbúiö sig, til dæmis sem
lögregluþjónn, slökkviliðsmaður
eða jafnvel prestur.
Þá eru margir á þeirri skoðun,
að geðsjdklingur hafi framið
fyrsta morðið og hafi þaö morö
oröiö til þess að kveikja í mörgum
öðrum geðsjúkum mönnuir. Enn
aðrir eru á þeirri skoðun, að sam-
tökin illræmdu, Ku Klux Klan
standi hér að baki.
Engln gengst
vlð
árásinni
Yfirlýsingum frá samtökum
Baska, Eta, um vopnahlé hefur
almennt verið fagnaö á Spáni, og
litið á hana sem fyrsta skrefið I
átt til friösamlegrar lausnar á
málefnum Baska.
Engin samtök hafa lýst sig
ábyrg fyrir árásina á lögreglu-
stöðina i gær, en öll bönd berast
að hinum róttækari armi Eta
samtakanna. Sú hreyfing hafði
áður lýst sig scka um 110 vig á
lögreglumönnum á slðasta ári.
Stjórnmálasamtök Baska hafa
sagt, að vopnahléið væri undir þvi
komið að skæruliðar héldu að sér
höndum. Báðir aðilar hafa sam-
þykkt þær efnahagsáætlanir sem
varöa Baskahérööin, en skærulið-
ar hafa lýst yfir áframhaldandi
baráttu fyrir fullu sjálfstæði
Baska.