Vísir - 03.03.1981, Page 8
8
vísm
P7í»fr. Wiftibil&m
Þriöjudagur 3. mars 1981.
VÍSIR
utgefandi: Reykjaprent h.f.
Ritstjóri: Ellert B. Schram.
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri
erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Arni Sig-
fússon, Frlða Astvaldsdóttir, Gylfi Kristjánsson, lllugi Jökulsson, Jóhanna Sig-
þórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Páll Magnússon, Sigurjón Valdimarsson,
Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Gúðvinsson, Þórunn Gestsdóttir, Blaöamaður á
Akureyri: Gfsli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur ö.
Steinarsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V.
Andrésson. útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Safn-
vörður: Eirikur Jónsson.
Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Ritstjórn: Siðumúli 14, sími 86611, 7 línur.
Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8, Slmar 86611 og 82260.
Afgreiösla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Askriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð í lausasölu 4 nýkrónur elntakið.
Visir er prentaður 1 Blaðaprenti, Slðumúla 14.
I anda norrænnar samvinnu
Norræn samvinna er meiri I oröi en á borði. Hún er fólgin i skýrslumog snobbi. Um
þessar mundir býr hún á hótelum i Kaupmannahöfn.
í gær féllu þingfundir niður.
Það mun hafa verið gert í
heiðursskyni við norrænt sam-
starf, sem nú hefur komið sér
fyrir á hótelum í Kaupmanna-
höfn þessa vikuna.
Auk ráðherranna sjö, sem
sækja Norðurlandaráðsfundinn,
situr þar mýgrútur af þingmönn-
um og embættismönnum, sem
hefur tileinkað sér norrænan
virðingarsvip eftir áralanga og
farsæla fundarsetu.
Það er i rauninni merkilegt
rannsóknarefni, hvernig hægt er
að gabba greindustu menn til að
eyða tíma sínum í fundarhöld
sem þessi og telja þeim trú um,
að þeir séu að gera gagn. Ef laust
láta menn sér þetta lynda og að-
lagast fánýtinu, því þeir sjá sér
engan hag í því að hneykslast á
innihaldi hjns norræna sam-
starfs.
Umbun þeirra er f rítt ferðalag,
ekki aðeins á ráðsfundinn sjálf-
an, heldur ógrynnin öll af nefnd-
arfundum oft á ári hverju. Þeir
stofna til kynna við starfsbræður
sína erlenda, búa á góðum hótel-
um og bera lof hver á annan í
skálarræðum.
Til eru þeir embættismenn
íslenskir, sem sækja reglulega
heim höfuðborgir hinna Norður-
landanna, allt í nafni norrænnar
samvinnu. Þar taka þeir við
skýrslum, sem enginn les,
ákveða að semja nýjar skýrslur,
sem enginn les að heldur, og
ákveðinn næsti fundur, allt í
nafni norrænnar samvinnu.
Ekki er að efa, að nef ndarstörf
og skýrslugerðir séu unnar af
fyllstu samviskusemi og íslensk-
ir fulltrúar eru áreiðanlega boð-
legir fyrir hönd þjóðar sinnar og
embættis.
Hitt hef ur vaf ist fyrir mönnum
hvar árangurs sjái stað. Norrænt
samstarf verða menn ekki varir
við í sínu daglega lífi, né heldur
sérstakt eða umtalsvert vinfengi
norrænna f rændþjóða utan funda
örfárra útvaldra.
Stöku sinnum er verið að út-
hluta styrkjum til listamanna eða
menntamanna, sem eiga þá að
f jalla um eitthvert það verkefni,
sem getur f lokkast undir að vera
norræns eðlis. Þetta þykir f ínt og
má ekki gagnrýna.
En þegar kemur að æskunni
eða íþróttunum, þar sem hópar
norrænnar æsku gætu tengst
vináttuböndum fyrir lifstíð, þá
kemur annað hljóð í strokkinn.
Það þykir ekki nógu fínt.
Um árabil hefur það þvælst
fram og aftur í gegnum skrif-
stofubáknið hjá Norðurlanda-
ráði, til nefnda, frá nefndum.
Fjöldi kannana hafa verið gerðar
og þykkir doðrantar af álitsgerð-
um samdir um hugsanleg sam-
skipti æsku- og íþróttamanna, en
allt kemur fyrir ekki. Norður-
landaráð sér ekki ástæðu til að
láta f jármagn af hendi rakna til
iþróttamála, og sjálfsagt er sú
afstaða í þágu norrænnar sam-
vinnu.
Einstaka íslenskur alþingis-
maður hefur haft skilning á því
að hér þurfi úr að bæta, en þá
kemur bara í Ijós, að þeir tala
fyrir daufum eyrum hins alls-
ráðandi skrifræðis. Eða þá hitt,
sem er miklu líklegri skýring:
Þeir ráða engu. Þingmenn eru
hafðir upp á punt í Norðurlanda-
ráði. Þeir eiga að sjá um fallegu
tillögurnar og skálaræðurnar, en
að öðru leyti megna þeir harla
lítið.
( fyrra stofnuðu íslensk
íþróttasamtök til samskipta við
Grænlendinga. Það var í fyrsta
skipti sem Grænlendingar gátu
keppt í nafni þjóðar sinnar. En
síðan ekki söguna meir. Þau
samskipti eru þegar fyrir bí af
fjárhagsástæðum og vafasamt
er að nokkur þeirra sem nú sækja
Norðurlandaráð hafi um það
minnstu vitneskju, hvað þá
áhyggjur. Það þykir nefnilega
ekki nógu fínt.
Norræn samvinna er ekki verri
en hver önnur alþjóðleg sam-
vinna. Hún gerir engum mein og
f yrir þá sem taka þátt í henni, er
þetta hin besta skemmtun og
hvíld frá dagsins önn. En fyrir
hinn venjulega íslending, þá er
hún harla lítið og ekki neitt.
r-----------------
Þegar Shirley Williams
yfirgaf miðstjórn breska
jaf naðarmannaf lokksins
hljóðaði svanasöngur
hennar á þessa leið:
,,Flokkurinn sem ég
elskaði og starfaði fyrir í
svo mörg ár, er ekki leng-
ur til".
í V-Þýskalandi er Hel-
mut Schmidt undir vax-
andi gagnrýni frá vinstri
vegna afstöðu sinnar til
nifteindasprengjunnar,
slökunarstefnunnar og
innanlandsvandamála. í
Frakklandi standa vinstri
f lokkarnir í illdeilum um,
hvaða leið sé æskilegust
til að hrekja Valerie Gis-
card d'Estaing frá völd-
um.
Um alla Evrópu eru
vinstri flokkar í opinber-
um slagsmálum vegna
hugsjónalegs ágreinings.
Þeir eru komnir í stríð
gegn sjálfum sér.
Berast á banaspjótum
Atök af þessu tagi eru ekki ný
af nálinni meðal evrópskra
vinstri manna. Þar sem hægri
stjórnir hafa fest i sessi i vel-
flestum Evrópulöndum, vex
þeirri tilhneigingu ásmegin aö
setja fram róttækar hugmyndir
sem valkost gegn hægri og
ihaldssamri stjórnarstefnu.
f hverju landinu á fætur öðru
er víglinan dregin milli þeirra,
sem vilja halda fast við hug-
myndafræðilegar formúlur
marxismans og hinna, sem vilja
aðlaga sig og stefnuna að
breytingum, og laöa til áln fleiri
kjósendur.
VINSTRI MENN ISTRH)
QEQN SJlLFUM SER
Afleiöingin er sú, að kommún-
istar sundrast I ólikar fylkingar,
sósialistar snúast gegn
kommúnistum og I æ rikari
mæli berast sósialistar á bana-
spjótum gegn öðrum sósíalist-
um.
Atökin eru jafnvel meiri á
milli sósíalista innbyrðis, frekar
heldur en gegn kommúnistum.
Hinir praktísku flokks-
foringjar
Þessi ágreiningur verður bitr-
ari og viðkvæmari, eftir þvi sem
hagur Evrópulanda versnar
efnahagslega og atvinnulega.
Eftir þvi sem efnahagserfiö-
leikar vaxa, þvi verra verður
ástandið meðal jafnaöarmanna
og sósfalista.
Atvinnuleysi i Vestur-Evrópu
nær til 10 milljóna manna, iðn-
framleiðslan minnkar, við-
skiptakjör fara versnandi og
vafamál er hvort nokkurt
Evrópuriki hefur efni á aö spýta
meira fjármagni i atvinnulifið,
öðru visi en verðbólgan magn-
ist. Þessi staöa dregur skarpari
linu á milli þeirra vinstri
manna, sem vilja auka rikisaf-
skiptin, og hinna, sem vilja fara
vægar i sakirnar, en i þeirra
hópi eru hinir praktisku eða
pragmatisku flokksforingjar.
Kaldhæönin er sú að fram-
gangur sósialista var hvaö
mestur, þegar vöxtur landanna
i efnahagslegu tilliti, stóö meö
blóma. Nú, þegar veikleikar
hins kapitaliska þjóöfélags
koma svo glögglega i ljós, bitn-
ar það ekki siöur á samstöðu
vinstri flokkanna.
Flótti er brostinn á
Afstaðan til Moskvu hefur og
haft sin áhrif. Berlinger, foringi
italskra kommúnista og Carrillo,
spánski kommúnistaforingina
halda enn i kenningar sinar um
„Evrópukommúnisma”, en sá
siðarnefndi á nú i miklum erfið-
leikum, einmitt vegna þessarar
höröu anti-Sovét afstöðu sinnar.
Á hinn bóginn er brostinn á flótti
úr franska kommúnistaflokkn-
um, vegna þess hve harður og
ósveigjanlegur Marchais, for-
maöur flokksins, er i fylgi sinu
við Sovétrikin.
Innrás Sovétrikjanna i
Afghanistan, og stjórn Reagan i
Bandarikjunum hafa og haft sin
áhrif inn i raðir kommúnista i
sitt hvora áttina. Þegar Banda-
rikjamenn færast til hægri, ger-
ist nær sjálfkrafa að jafnaðar-
menn i Evrópu færast lengra til
vinstri.
Sundurlyndi evrópskra vinstri
manna er mismunandi frá einu
landi til annars. En þó er ljóst,
að jafnaðarmannaflokkar og
reyndar flokkar lengra til
vinstri við þá, ganga um þessar
mundir i gegnum timabil, sem
getur reynst þeim afdrifarikt i
framtiðinni.
Þýtt og endursagtúr Newsweek