Vísir - 03.03.1981, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 3. mars 1981.
vísm
útvarpsráð hefur
sent trá sér
ályktun varðandi
fjárhagsstöðu
stofnunarinnar og
niðurskurð á
dagskrá.
Útvarpsráð gekk
á fund
forsætlsráðherra
á laugardaginn
og afhenti honum
ályktunina.
sem hér hirlist:
veigaminni dagskrá
og skert Hiónusta
Undanfarin tvö ár hefur
Rikisútvarpið verið rekið með
halla, sem nemur samtals 16,5
milljönum króna.
Það er mat yfirstjórnar Rikis-
útvarpsins að til þess að ná jafn
vægi i rekstri á yfirstandandi
ári, miðað við tekjulikur nú,
þurfi að draga saman kostnað
við dagsrkrárgerð i hljóðvarpi
um 14% og i sjónvarpi um 9%.
Útvarpsráð telur þetta óvið-
unandi, enda hlýtur slikur sam-
dráttur að skerða þjónustu
Rikisútvarpsins við hlustendur
og torvelda stofnuninni að
framkvæma fyrirmæli útvarps-
laga um hlutverk hennar.
Nú blasir við annað tveggja
varðandi sjónvarpið:
1. Að lengja lokunartima að
sumrinu um viku, binda sið-
degissjónvarp á sunnudögum
við 3 mánuði i skammdeginu,
stytta daglegan útsendingar-
tima um 30 minútur fjóra daga
vikunnar og stytta timabil
vetrardagskrár, sem er viða-
meiri en sumardagskrá, um 1
1/2 manuð.
2. útsendingar sjónvarps
verði aðeins 5 daga i viku i stað
6.
Ljóst er að samdráttur, sem
annað hvort lýsir sér i styttri
eða þá veigaminni dagskrá muii
einnig bitna á hljóðvarpi
Hvaða kostur sem valinn yrði
þýðir i raun, að Rikisútvarpinu
mun reynast erfiðara að halda
uppi eðlilegri og vandaðri dag-
skrárgerð.
Tilgangur Rfkisútvarpsins er
lögum samkvæmt að stuðla að
almennri menningarþróun
þjóðarinnar. Til þess að þau orð
verði ekki dauður bókstafur
verður að halda uppi fjöl-
breyttri dagskrárgerð i hljóð-
varpi og sjónvarpi.
Útvarpsráð telur, að afnota-
gjöld Rikisútvarpsins séu óeðli-
lega lág, en þau eru nú sem
svarar áskriftarverði dagblaðs
fyrir hljóðvarp og litasjónvarp
samanlagt.
Útvarpsráð vill ekki hverfa aö
þvi ráði að skerða stórlega dag-
skrárgerð án þess að gera rikis-
stjórninni sérstaka grein fyrir
þvi sem framundan er.
Fjársveltistefna sú; sem
stjórnvöld islensku þjóðarinnar,
gerir Rikisútvarpinu ókleift að
rækja lögbundið hlutverk sitt.
Útvarpsráð lýsir fullri ábyrgð á
hendur stjórnvöldum, sem nú
hafa i hendi sér hvort dagskrá
verður stytt.
Samþykkt samhljóða á fundi
útvarpsráðs þann 27. febrúar
1981.
utvarpsins ao ui pess ao na ,ia - degissjónvarp á sunnudögum mun reynast erfiðara að halda samanlagt. 1981.
Mígpænum’sjúiiiúgá
vélaverkfræðlngsins
Telja verður það mjög
ánægjulegt og athyglisvert að
stungið skuli niður penna um
mál eins og tengingu hitakerfa,
en hefði mátt vera með öðru
hugarfari en pistill höfundar,
þvi um veigamikið mál er að
ræða fyrir alla þá fjölmörgu, er
tengja hús sin hitaveitum.
Haldin hafa verið sjö nám-
skeiði'stillingu hitakerfa, þar af
fjögur i Reykjavik en einnig á
tsafirði, Egilsstöðum og Akur-
eyri. Hefur Byggingaþjónustan
og Iðnaðarráðuneytið staðið að
þessum námskeiðum, en þau
hafa i alla staði tekist vel og er
fjöldi þátttakenda orðinn á
fjórða hundrað. Leiðbeinendur
voru verkfræðingar, pipulagn-
ingameistarar og sölumenn
undir stjórn ólafs Jenssonar,
framkvæmdastjóra Bygginga-
þjónustunnar.
Einfalt eða tvöfalt hita-
kerfi
Það er rétt hjá vélaverk-
fræðingnum að nauðsynlegt er
aðhalda mismunaþrýstingi yfir
hitakerfi innan hæfilegra
marka, þegar notaðir eru sjálf-
virkir ofnlokar. Vil ég þó benda
honum á, að ef góður árangur á
að nást við stillingu hitakerfis
án uppblöndunar, er ávallt
nauðsynlegt að jafna mismuna-
þrýsting yfir hitakerfið, hvort
sem um er að ræða sjálfvirka
ofnhitastilla eða handstillta ofn-
loka. í pistlinum er réttilega
lýst muninum á svokölluðum
einföldum og tvöföldum fjar-
varmaveitum, en hitt er forðast
að nefna hvað sé mismuna-
þrýstingur innan hæfilegra
marka, eins og hann orðar það.
Ég hefði talið að ekki þyrfti að
fræða hann um þetta, en honum
hefði ef til vill verið gagnlegt að
taka þátt i námskeiðinu og þá
verða einhvers visari m.a. um
mat hlutlausra aðila. Nokkrir
verkfræðingar og tæknifræðing-
ar hafa veriö þátttakendur á
umræddum námskeiðum án
þess að sjá ástæðu til að mót-
mæla fullyrðingum fyrirlesara
um mismunaþrýsting yfir kerfi
eða einstaka loka. Þess má þó
geta, að fyrirlesari varð nokkuð
fróðari að námskeiði loknu um
álit pipulagningamanna o.fl. á
þrýstiminnkurum.
Hvað er innan hæfi-
legra marka
Innan hæfilegra marka telst
minnsti mögulegi mismuna-
þrýstingur yfir hitakerfið við
mesta álag þess, þ.e.a.s. I kald-
asta veðri. í venjulegu mið-
stöðvarkerfi með dælu er al-
gengast að mismunaþrýstingur
yfir kerfi geti orðið mest 1-2
metra vatnssúla við minnsta
álag, en fellur við vaxandi álag.
Verða þvi hönnuðir hitakerfa að
ganga út frá þessum forsendum
m.a. og hefur það væntanlega
verið gert við hönnun eldri húsa
sem nýrra, er tengjast fjar-
varmaveitum. Fjöldieldri kerfa
eru þó hönnuð sem eigin-
þyngdarkerfi og I þeim kerfum
getur verið þörf á enn nákvæm-
ari stillingu á mismunaþrýst-
ingi.
Samkvæmt ofanrituðu er rétt
stilling þrýstijafnara mis-
munaþrýstingur minni en 1-2
metra vatnssúla yfir hitakerfið.
Þessi stærð er stillanleg með
membrustýrðum þrýstijöfnur-
um, sem framleiddir eru og
seldir af fjölda fyrirtækja. Rétt
er, að þrýstijafnarar eru dýrari
en þrýstiminnkarar, en sá
þrýstijafnari, sem er mest seld-
ur og notaður hér á landi, er sá
ódýrasti á markaðnum, miðað
við kröfur, sem gerðar eru um
nákvæmni. A fyrsta námskeið-
inu, þar sem rætt var um still-
ingu hitakerfa og öllum seljend-
um loka og stillitækja var boðið
að kynna vöru sina, mætti véla-
verkfræðingurinn og félagi
hans. Einnig voru þar fyrir
Danfoss-sölumenn, en aðrir
seljendur sýndu málinu ekki
áhuga. Sölumaður spurði hann
við þetta tækifæri, hver væri ná-
kvæmni stillingar þrýstiminnk-
ara þeirra, er hann kynnti, og
var svarið 5 m vatnssúla, eins
og fjöldimanns varð vitni að, en
þetta er hliðstætt við upplýsing-
ar um aðra þrýstiminnkara.
Reyndin er hins vegar sú. að
erfitt mun vera að stilla þá
þrýstiminnkara, sem á
markaðnum eru hér á landi, á
þá nákvæmni, sem upp er gefin.
Er undirrituðum kunnugt um,
að nákvæmari þrýstiminnkarar
finnast, en þá á hærra verði.
Hveijir eru ókostirnir
Ókostir óþarflega mikils mis-
munaþrýstings yfir kerfi eru
verulegir, þö þrýstingur sé inn-
an þeirra hámarksmarka, er
framleiðendur handstilli- og
h itastill iloka tilgreina sem
mesta þrýsting yfir lokana. Get-
ur þetta m.a. komið fram I
rennslissuði i lokum og kerfinu
sjálfu, sveiflukenndri starfsemi
sjálfvirkra ofnhitastilla, þ.e.a.s.
snöggheitum eða -köldum ofn-
um á vixl með þar af leiðandi
meiri vatnsnotkun og óþægind-
um Dæmi: Fáist 100% rennsli
við þrýstihlutfall 1 og þrýsti-
hlutfalliö sé fjórfaldaö t.d. úr 1
metra vatnssúlu i 4 metra yfir
kerfi, eykst rennsli um 100% eða
tvöfaldast. Af þessu dæmi sjá
þeir, sem áhuga hafa, að ekki
aðeins þarf að stilla þrýstijafn-
ara af kunnáttu, heldur einnie
það, að þrýstiminnkarar henta
illa til þessarpr notkunar, hvort
sem um er að ræða einfalda eða
tvöfalda fjarvarmaveitu.
Gisli Jóhannsson, einn
af sölumönnum Danfoss-
umboösins, skrifar í til-
efni pistils Hafsteins
Blandons, vélaverkfræö-
ings í Visi þriðjudaginn
24. febr. s.l. Gisli vill upp-
lýsa aö Hafsteinn er sölu-
maöur hjá Danfoss-
umboöinu, enda þótt hann
vilji sýnilega ekki að það
komi fram.
. Það getur orðiö I mörgum til-
fellum dýr eftirleikur húsráð-
enda, ef illa teksttil um stillingu
kerfis og ekki má vænta að
vinnan sé gefin, ef skipta þarf
um tæki.
Orðasambandið „allt I græn-
um sjó” var fengið að láni hjá
öðrum leiöbeinanda á umræddu
námskeiði, þá notað um kerfi i
slæmu ásigkomulagi og á þvl
einnig við um kerfi með þrýsti-
minnkara. Að lokum vill undir-
ritaður taka undir lok-aorð véla-
verkfræðings, að miklum fjár-
munum er varið i uppbyggingu
fjarvarmaveitna og þvi sé full
ástæða til aö hvet ja húseigendur
og aðra, er fyrirhuga tengingar
við hitaveitu, að kynna sér vel
'hvers eðlis hitakerfiö er, svo
velja megi hagkvæmustu
stjórntæki f hverju tilfelli.
Einnig þetta, tilgangur að-
standenda margræddra nám-
skeiða hefur væntanlega verið
sá að fá leiöLeinendur, er best
gætu miölað upplýsingum, og þá
sérstaklega til þeirra, sem
vinna f ndnu sambandi við ney t-
endur, um mikilvægi þess, að
hitakerfi þeirra væru rétt stillt.
Við skulum vona að það hafi
borið árangur.
GIsli Jóhannsson