Vísir - 03.03.1981, Page 10
VtSIR
Þriöjudagur 3. mars 1981.
Hriíturinn
21. mars—20. april
Þetta er ekki rétti dagurinn til aö taka
mikilsverðar ákvaröanir.
Nautiö
21. april-21. mai
Þér finnast vandamálin vera að vaxa þér
yfir höfuð. Þettaer engum að kenna nema
sjálfum þér.
I
Tviburarnir
22. mai—21. iúni
Þér finnst þú þurfa að verðlauna þig með
einhverjum hætti. Vertu ekki of eyöslu-
samur.
Krabbinn
21. júni—23. júli
ÞU átt i einhverjum útistöðum við náinn
vin. Þau mál leysast mjög óvænt á hag-
stæðan máta.
Ljónið
24. júli—23. águst
Erfiðleikar þínir eru þér sjálfum einum
að kenna. Gættu tungu þinnar i dag.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.
Þér veitir ekki af dálítilli tilbreytingu og
hvild í dag eftir erfiði siðustu daga.
Vogin
24. sept —23. okt.
Þú átt þér draum sem gæti haft mikil
áhrif á framtið þina, en vertu vongóður.
Drekinn
24. okt.—22. nóv.
. Il ...•
Þér finnstþú verahafðurfyrirrangri sök.
Littu i eigin barm.
Bogmaöurinn
23. nóv.—21. des.
Það liggur einhver órói i loftinu á vinnu-
stað. Reyndu aö sigla á milli skers og
báru.
Steingeitin
22. des.—20. jan.
Saklaus vinátta er misskilin. Dæmdu ekki
svo að þú verðir ekki dæmdur sjálfur.
Vatnsberinn
21—19. febr
Ungur vinur þinn þarfnast aðstoðar þinn-
ar. Gefðu þér góðan tíma til að sinna hon-
um. >
Fiskarnir-
'20. febr.—20. mars
Láttu ekki skapið hlaupa meö þig á gönur1
i dag, allra sist á vinnustaö.
'F&svlTO?
_ lO-IS’j
^^lll/ % © Bulls
Þiö eruö nýir, svo þiö geriö
bara alveg eins og ég
segi ykkur.
Ég heid ég hafi ekki gert þetta nógu ljóst.