Vísir - 03.03.1981, Page 11
s*u;in c.
Þriöjudagur 3. mars 1981.
11
[Laúsáskluídum-lbuö~ábý99lenda']
i breytt í 10 ára skuldabréf? i
í janúar skipaði
2 rikisstjórnin nefnd til
þess að athuga með
hvaða hætti unnt væri
að breyta lausaskuld-
um húsbyggjenda i lán
til lengri tima, og i sið-
ustu viku skilaði nefnd-
in tillögum til rikis-
stjórnarinnar, þar sem
gert er ráð fyrir þvi að
öllum lausaskuldum
verði breytt i verð-
trvggð lán til 10 ára
með 2% vöxtum.
Gert er ráö fyrir þvi að láni&
veröi i formi skuldabréfs, sem
Húsnæðismálastofnun rikisins
myndi gefa út á banka eöa
sparisjóö.
„A þessu stigi málsins er
þetta hugsaB sem brú fyrir þá
sem hafa keypt eöa byggt á siö-
ustu fjórum árum, og eru nú að
kikna undir okurvöxtum”, sagði
Jón G. Sólnes i samtali viö
blaöamann, en Jón er formaöur
ofangreindrar nefndar.
Jón sagöist á þessu stigi ekki
vilja tjá sig um hvernig þessar
tillögur eru útfærðar, — enda
séu þetta aöeins frumdrög sem
rikisst jórnin á eftir að fjalla um.
Eriendum tosku-
heildsölum fer
fjOlgandi hérlendls
Félag islenskra stórkaup-
manna hefur bent á i ályktun sem
samþykkt var á aðalfundi félags-
ins að erlendir aðilar sæki i sivax-
andi mæli inn á islenskan markað
i þvi formi að erlendir heildsalar
reki starfsemi sina hér á landi
auk þess sem notkun pöntunar-
lista fari i vöxt og jafnvel að bein
verslun þessara aðila, sem ekki
greiða hér skatta og skyldur, hafi
einnig farið vaxandi.
Visir hafði samband við Jónas
Þór Steinarsson framkvæmda-
stjóra Félags islenskra stórkaup-
manna og innti hann nánar eftir
máli þessu. Þá var rætt við
Kristján Hafliðason yfirmann
Bögglapóststofunnar og hann
spurður hvort póstsendingar til
einstaklinga frá erlendum fyrir-
tækjum hafi farið i vöxt að undan-
förnu. Þá er lagaleg hlið þessa
máls aðeins reifuð.
,,Það er ljóst að á undanförnum
árum hefur það sifellt farið i vöxt
að hingað komi erlendir sölu-
menn, sem búa hér á hótelum i 1-4
vikur og jafnvel lengur. Þeir
ganga i fyrirtæki og selja vöru
sina en hafa hér enga starfsað-
stöðu eða verslunarleyfi i sam-
ræmi við islensk lög”, sagði
Jónas Þór Steinarsson fram-
kvæmdastjóri Félags islenskra
stórkaupmanna er Visir innti
hann nánar eftir þvi hvað hæft
væri i fullyrðingum um stóraukin
umsvif erlendra kaupsýslumanna
hér á landi.
„Þeir safna saman pöntunum
sem þeir svosenda hingað. Benda
má á, aö slik starfsemi er ólögleg
auk þess sem verslunin flyst að
verulegum hluta úr landi og
birgðahald er að mestu leyti er-
lendis. Hér er oft um aö ræða
danska og þýska sölumenn og t.d.
er ekki lengra siðan en fyrir
nokkrum dögum að við höfðum
fregniraf einum slikum dönskum
sölumanni sem var reyndar ný-
farinn úr landi en hafði verið hér i
um það bil vikutima og selt
vefnaðarvöru. Þessi aðili kemur
hér reglulega tvisvar á ári og hef-
ur engan innlendan umboðs-
mann”, sagði Jónas Þór.
„Erlendir umboðsaðilar
stunda hér farandsölu-
mennsku”
,,Þá hefur einnig farið i vöxt að
islenskir aðilar sem óskað hafa
eftir að kaupa vörur frá erlendum
framleiðendum t.d. i Danmörku
er vinsamlega bent á það að
ákveðin heildverslun i Kaup-
mannahöfn hafi einkaumboð fyrir
Island og þeir geti aðeins fengið
vöruna keypt hjá þeim aðilum og
hafa komið upp dæmi að þetta eru
þeir aðilar sem hér stunda
farandsölumennsku en hafa
starfsemi sina að öðru leyti i
Kaupmannahöfn. Einnig hefur
þetta vandamál komið upp varð-
andi vörur t.d. frá Ameriku að
ameríski framleiðandinn tilnefnir
ákveðinn umboðsmann á Norður-
löndum sem einkaumboösmann
fyrir Island m.a., þannig að is-
lenskt fyrirtæki getur ekki keypt
þessa vöru nema frá umboðs-
manninum á Norðurlöndum, sem
oft þýðir þá óhagkvæmt verð.
Benda má á að i nýlegu tölublaði
„Business America” sem gefið er
út af bandariska viöskiptaráðu-
neytinu er bent á þetta og fram-
leiðendur hvattir til að selja beint
til Islands.”
Erlenú viðskiptl hér ð landi:
Skaðleg og ólögleg
Samkvæmt lögum um
verslunaratvinnu, nr. 41
frá 1968, er fullljóst að
hinir títtnefndu tösku-
heildsalar, sem hingað
koma til landsins og
selja vörur til einstakl-
inga og i verslanir, eru
með þvi að brjóta is-
lensk lög.
í 2. gr. þessara laga er bent á
við hvað sé átt með orðinu versl-
un, og er þar nefnd heildverslun,
umboðsverslun og smáverslun. 1
3. gr. er bent á að verslun sam-
kvæmt 2. grein sé óheimilt að
reka á íslandi eða i islenskri land-
helgi nema til komi leyfi sam-
kvæmt lögum þessum.
Þá segir meðal annars i 4. greim
að eitt skilyrði til þess að maður
fái leyfi til verslunar, sé að hann
hafi islenskt rikisfang og sé
heimilisfastur á tslandi.
Það á þvi að vera fullljóst sam-
kvæmt lögum þessum að starf-
semi erlendra aðila hér sem
staldra hér við um tima og bjóða
varning sinn til sölu er ólögleg og
ætti hverjum viðskiptavini þeirra
að vera ljóst að slikir aöilar
greiða hvorki skatta né aðrar
skyldur hérlendis og færa þvi
væntanlegan hagnað ekki aftur
inn i þjóðarbúið.’
— AS