Vísir - 03.03.1981, Síða 13
Þriöjudagur 3. máfs 1981.
BókaUtldn á vegum kvenna-
deildarinnar.
Rauöi krossinn:
300 konur
sjálfboða-
liðar á flegi
hverjum
Um þrjií hundruö konur starfa
fyrir Rauöa krossinn i sjálfboöa-
vinnu á degi hverjum.
Kvennadeild Reykjavikur-
deildar Rauöa kross tslands ann-
ast margvisleg störf tengd
sjiikrahiísum borgarinnar og má
þar nefna rekstur sölubiíöa
deildarinnar á Landakotsspitala,
Landspitalanum og á Borgar-
spitalanum. Þá hafa þær einnig
heimsóknarþjónustu, annast
heimsendingar á mat handa
öldruöum og sjúkum og vinna aö
margvislegum félagsmálum fyrir
eldri borgara I samvinnu viö
Félagsmálastofnun Reykjavikur-
borgar. Þá er ótalin bókaútlána-
þjónustan sem konurnar sjá um á
sjúkrahúsunum, en þar hafa þær
komiö á fót bókasöfnum og ann-
ast útlán bókanna sjálfar.
Hluti tekna, sem deildin fær
fyrir merkjasölu nú á öskudaginn
rennur einmitt til kaupa á bókum
i söfnin.
Ljóðasafn
Snorra
Hjartarsonar
gellð út I
tilelni hðk-
menntaverð-
launanna
Ljóöasafn Snorra Hjartarsonar
— „Kvæöi 1940-1966” — kemur út
einhvern næstu daga i tilefni af
þvi, aö Snorri tekur við bók-
menntaverðlaunum Noröur-
landaráðs á fundi ráösins i Kaup-
mannahöfn i dag.
Þá hefur Snorri áritað 100 ein-
tök af ljóðabókinni „Hauströkkriö
yfir mér”, og er hún dagsett i
dag, 3. mars 1981, og verða þessi
eintök seld i bókabúð Máls og
menningar og e.t.v. öörum bóka-
búöum.
Sérstck hátiðarsamkoma verö-
ur haldin á vegum Máls og menn-
ingar og Norræna hússins 22.
mars n.k. og verður þar fjallaö
um skáldskap Snorra og lesiö úr
verkum hans.
VtSIR
13
Visir hefur nú tekiö upp enn
nýja þjónustu viö hina fjöl-
mörgu smáauglýsendur blaös-
ins. — Allir þeir, sem leiö eiga
um Hlemm daglega, geta nú
komiö smáauglýsingum til
snyrtivöruverslunarinnar Söru I
biöskýlinu viö Hlemm. Þar
veröur tekiö á móti smáauglýs-
ingum á opnunartima versiana
eöa alla virka daga kl. 9 til 18 og
til kl. 19 á föstudögum. Á
laugardögum veröur móttaka
kl. 9 til 12.
Þeir, sem koma smáauglýs-
ingum sinum til Söru við
Hlemm, geta eins og aðrir smá-
auglýsendur fengið smáauglýs-
Nú veröur ekki aöeins hægt aö kaupa snyrtivörur I Söru á Hlemmi, heldur geta þeir, sem leiö eiga um
komiö inn smá-auglýsingu I Visi. —Verslunin Sara er i þeim hluta biöskýlisins, sem snýr út aö
Laugavegi.
Þjónusta við smáauglvsenflur Visis enn bætt:
Vísls-smáauglýsingarnar
fá aðsetur á Hiemmi
inguna birta strax daginn eftir.
Visir væntir þess, aö við-
skiptavinirblaösins kunnivel aö
meta þessa nýjung, ekki siöur
en þeir hafa kunnað aö meta þá
þjónustu blaösins, sem nýlega
var tekin upp, aö smáauglýs-
endur fá birta mynd meö smá-
auglýsingum sinum án auka-
kostnaöar vegna myndbirt-
ingarinnar.
Að sjálfsögöu veröur einnig
tekið viö smáauglýsingum
framvegis sem hingað til á af-
greiðslum blaösins og i síma
86611.
1891-1981
Málef ni aldraðra
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur borgarafund
um málefni aldraðra að Hótel Sögu, Átthagasal,
laugardaginn 7. marz klukkan 14.00.
Fundurinn er öllum opinn.
Þeirra hlutskipti í dag, verður okkar á morgun.
Hvernig búum við að þeim sem arfleiddu okkur að velferðarþjóðfélaginu?
Eru kjör þeirra í samræmi við hugmyndir æskunnar um eigið ævikvöld?
Frummælendur verða:
Skúli Johnsen
borgarlæknir.
Adda Bára Sigfúsdóttir,
formaður heilbrigðisráðs
Reykjavíkurborgar.
Albert Guðmundsson
alþingismaður.
Ásthildur Pétursdóttir
húsmóðir.
Pétur Sigurðsson
alþingismaður.