Vísir - 03.03.1981, Side 18
Yngstí nautabani heims
Lous Maguel
Campano er 13 ára
gamall og litill eftir
aldri og hann vegur
aðeins 43 kiló. En þegar
hann kemur inn á
leikvanginn þar sem
nautaöt eru háð, er hann
risi, — enda yngsti
nautabani heims.
Það er aðeins rúmt ár siðan
Luis hóf feril sinn sem atvinnu-
maður i nautaati og á þeim tima
hefur hann barist viö tugi nauta
og haft sigur i öll skiptin, þrátt
fyrir þá staðreynd, að i saman-
burði við skepnurnar er hann eins
og dvergur. En hann ersnillingur
með skikkjuna og sverðiö og hef-
ur snilli hans á þessu sviði borið
hróður hans viða.
—„bessi drengur er i
sérflokki", — segir hinn reyndi
nautabani Carlos Avila, — „hann
er alveg laus við taugaóstyrk og
Hinn ungi, hugaði nautabani,
Louis Miguel, i viðureign við
naut.
veit nákvæmlega hvað hann er að
gera. Hann á eftir að ná langt og
verða rikur og frægur”, — segir
Carlos.
Don Vicente Zabala, sem er
einn helsti nautaats gagnrýnandi
Spánverja og hefur gefið út sex
bækur um nautaöt hefur látið svo
um mælt, að Luis sé efnilegasti
nautabani sem fram hefur komið
á Spáni á þessari öld og að hann
sé jafnframt sá yngsti i 60 ár.
Luis erfði áhuga sinn á nautaati
frá föður sinum sem staríar sem
aðstoðarmaður nautabana.
„Hann varð yfir sig hrifinn þegar
hann sá nautaat i fyrsta skipti og
ég veit að hann hefur allt til að
bera til að komast i fremstu röð",
— segir faðir drengsins.
Sjálfur segist Luis aðeins hafa
fundið til hreiðslu i fyrsta skiptið:
— „En ég vissi að hræðsla var
minn versti óvinur og mér tókst
að gleyma henni", — segir Luis,
sem hefuraldrei orðið misdægurt
i hringnum. En hann veit að ein-
hvern tima kemur að þvi að hann
fær að finna íyrir hornunum. —
„Það kemur fyrir hvern einasta
nautabana og þá á ég kannski eft-
ir að finna fyrir þvi hvað hræðsla
er”, — segir hann.
Blaöamenn skemmtu sér hið besta í veislunni
Hlaöan I
Óöali
— býöur upp á ýmsa möguleika
„Blaðamenn eru kannski ekki
vanir að þurfa að skeminta sér
sjálfir en cg sé að þeim hefur tek-
ist það bærilega hér í kvöld”, —
sagði Jón óðalsbóndi Hjaltason i
fjölmennu og vel heppnuðu
samsæti, sem heann hélt blaða-
mönnum nú nýverið i tilefni
ýmissa nýjunga sem fvrir-
hugaðar eru i rekstri óðals.
Meðal þeirra nýjunga má nefna
opnun nýs salar, Hlöðunnar og
Tunglskinsbarsins. Hlaðan er
innréttuð i grófum stil og snætt er
við langborð. 1 Hlöðunni verður
tekiö á móti hópum i smærri og
stærri veislur. Verðlag vcitinga i
Hlöðunni er i algerri andstöðu við
vcrðbólguna. Sem dæmi má
nefna, að grisa og kjúklingaveisla
ásamt fordrykk, vænni krús af
Baron bjór nieð matnum,
aðgangseyri og danstónlist,
kostar aðeins kr. 95,00. Það þarf
þvi ekki cinu sinni sérstakt tilefni
fyrir fclög, klúbba o.þ.h. til að
gera sér hressilegan dagamun.
lllöðuna er hægt að panta öll
kvöld vikunnar, fyrir hópa 16—100
manns. Tilvalið er fyrir hópa úr
dreifbýlinu, sem koma til höfuð-
borgarinnar t.d. i leikhúsferð, aö
bvrja eða ljúka ferðinni með
kostaveislu i Hlöðunni.
Þessi nýlunda losar auk þess
stjórnir og skemmtinelndir hinna
ýmsu samtaka við allt amstrið
sem þvi fylgir að taka á leigu sali
og atasl i öllu þvi sem fylgir
undirbúningi og framkvæmd
hátfða.
Halldór Arni, skemmtanastjóri, ásamt örvari Kristjánssyni og Texasbræðrum, en þeir félagar stjórn
uðu fjoldasong við góðar undirtektir. 1
Hér eru menn komnir I samkvæmisleikinn „Höfuð, herðar.hné
og tær" og Jón óðalsbóndi (t.h.) tekur að sjálfsögðu þátt I leikn-
um. Ómar Valdimarsson, fréttastjóri Dagblaösins (lengst t.v.)
er hins vegar þreyttur eftir amstur dagsins og lætur sér nægja
að fylgjast ineð úr sæti sinu.