Vísir - 03.03.1981, Page 28
Þrið|udagur 3. mars 1981
síminn er 86611
veðurspá
úagsins
Við suðurströnd Englands
er 995 mb lægð, sem þokast
suðaustur, en viðáttumikil
1040 mb hæð yfir Norðaust-
ur-Grænlandi. Heldur mun
kólna i veðri.
Veðurhorfur næsta sólar-
hring:
Suðurland: Norðaustan gola,
súld með köflum.
Faxaflói og Breiöafjörður:
Austanognorðaustangola eða
kaldi, viða dálitil slydda eða
súld.
Vestfiröir: Norðaustan kaldi,
en stinningskaldi á miðum, él,
einkum norðan til.
Strandir og Norðurland vestra
og Norðurland eystra: Austan
og norðaustan kaldi eða stinn-
ingskaldi. Viða él.
Austurland að Glettingi og
Austfirðir: Norðaustan stinn-
ingskaldi, él eöa slydduél.
Suðausturland: Norðaustan
gola eða kaldi, súld eða rign-
ing.
Veöriö hér
09 par
Veður kl. 6 i morgun:
Akureyrialskýjað -r2, Bergen
léttskýjað -í-9, Helsinki þoku-
móða -í-19, Kaupmannahöfn
alskýjað -^2, Osló léttskýjað
-fl4, Heykjavik rigning 1,
Stokkhólmur alskýjaö h-4,
Þórshöfn alskýjað 2.
Veður kl. 18 i gær:
Aþena léttskýjað 8, Berlln
rigning 4, Chicago hálfskyjað
1, Feneyjar þokumóða 3,
Frankfurt hálfskýjað 8, Nuuk
skýjaö 1, London skúr 9,
Luxemborgskyjað 4, Las Pal-
mas skýjað 17, Mallorka létt-
skýjaö 13, Montrealsnjókoma
1, New Yorkalskýjað 7, Paris
rigning8, Rómrigning 12, Ma-
laga heiðskýrt 19, Vln súld 0,
Winnipeg léttskýjað -^8.
ingölfur Jonsson um (rétt Visis um steinullarvérksmiöiuna á sauðárkróki:
Kröflu- eða Þórs-
hafnarævlntyri?
,,fcg held, að þetta sé svoddan
fjarstæða, að Sauðkræklingar
geri þetta á meðan stjórnskipuð
nefnd er að vinna,” sagði
Ingólfur Jónsson, fyrrv. ráð-
herra og einn af helstu frum-
kvöðlum um steinuIlarverk-
smiðju á Suðurlandi, um fréttir
af véla- og tækjakaupum Sauð-
kræklinga til steinullarverk-
smiðju.
„Það getur ekki verið stað-
reynd, þvl að þeir verða aö fara
til ríkisstjórnar og Alþingis með
þetta og þetta gerir enginn án
þess að hafa vaðið fyrir neðan
sig. Þeir Skagfirðingar, sem ég
þekki, eru ekki þannig að þeir
hlaupi svona á sig.
Er þarna kannski eitthvaö
Kröfluævintýri eða Þórshafnar-
ævintýri á ferðinni? Ég ætla
ekki að fullyrða neitt um það, en
ég veit, aö það á ekki að vinna
svona. Þaö þarf lög um stað-
setningu þessarar verksmiöju
og til þess aö setja þau þarf
meirihluta á Alþingi, eins og
fyrir Þórshafnartogaranum.
Verði álit nefndarinnar, að
Þorlákshöfn sé betri staður fyr-
ir verksmiðjuna, þá verður hún
byggö þar,” sagði Ingólfur.
„Við vissum, að þeir voru i
viðræðum við franska aðila,”
sagði Vilhjálmur Lúðvfksson,
formaður þeirrar nefndar, sem
á að gera tillögur um staðarval
fyrir steinullarverksmiöjuna,
þegar hann var spurður um álit
á fréttinni.
„Hafi þeir gengið frá kaup-
um, er það væntanlega uppá
þeirra ágin spýtur, það hefur
ekkert álit komið frá okkur um
hagkvæmni þess né ráðgjöf til
rikisins um að taka þátt i sliku.
Þetta er þá þeirra mál,” sagði
Vilhjálmur og aðspurður sagöi
hann, aö niðurstöðu frá nefnd-
inni væri að vænta innan
tveggja vikna. SV
Heldurðu ekki, að hún sé góð þessi, Matthias, sagði Sveinbjörn Sveinsson viö Matthias Guðmundsson,
verkstjóra hjá Bæjarútgeröinni, Imorgun, þegar þeir voru að velja tunnu fyrir slaginn I fyrramálið.
(Vísismynd: EÞS)
Helmíldarmannamállð:
FER FYRIR
HÆSTARÉTT
Sakadómur Reykjavikur hefur
úrskurðað, að Atla Steinarssyni
og Ómari Valdimarssyni, blaða-
mönnum hjá Dagblaðinu, beri að
geta heimildarmanna sinna að
frétt Dagblaðsins 31. janúar um
það meðal annars, að Björg
Benjaminsdóttir, sem varð völd
að dauða eiginmanns sins i bruna
i Kötlufelli, hafi viöurkennt
verknaðinn fyrir forstöðumanni
þess trúarsafnaðar, sem hún til-
heyrir. Einar J. Gislason, for-
stöðumaður Filadelfiusafnaðar-
ins óskaði eftir þvi að rannsakað
skyldi með hvaða hætti fréttin
varð til, þar sem mál þetta snerti
trúnaðarsamband forstöðumanns
við sóknarbarn sitt.
„Við höfðum neitað að gefa
heimildarmenn upp óg þá krafð-
ist Hallvarður þess, að dómurinn
úrskurðaði að við skyldum opna
munninn”, sagði Atli Steinarsson,
blaðamaður.
Visir hafði samband við Hall-
varð Einvarðsson, rannsóknar-
lögreglustjóra en hann sagðist
ekki vilja láta neitt eftir sér hafa
um þetta mál. Aðspurður hvort
rannsóknin snerist nú að hugsan-
legum „leka” innanhúss, sagðist
Hallvarður ekki hafa ástæðu til að
gruna neinn sinna manna á þessu
stigi málsins. ÁS/—ATA
Nu sláum við köttlnn ur tunnunni
Vlslr blður Reykjavfkurbörn um aðstoð vlð að reka l burtu llla anda, - siá kðttlnn úr tunnunnl
t fyrramálið klukkan 10 mun
Vlsir standa fyrir þvi meö góðra
manna hjálp, að sleginn verði
kötturinn úr tunnunni á Lækjar-
torgi. — Að þvl er örlygur
Sigurðsson segir á fjölskyldusiðu
blaðsins i dag, er þar með verið
að hreinsa borgina af illum önd-
um þetta árið og má þvi nærri
geta hvaða gagn þau munu gera
borginni sinni, börnin, sem mæta
I furðufötum i fyrramáliö til
þessa gagnlega starfs.
öll börn eru velkomin til þessa
ieiks. Visir hefur fengið kunnáttu-
mann frá Akureyri, Aðalstein
Bergdal leikara, til að stjórna
þessum akureyrska sið, sem við
erum núað flytja til Reykjavikur
með velþóknun borgaryfirvalda,
en þess má geta að Æskulýðsráð
og Bæjarútgerðin leggja Visi lið i
þessu máli.
Börnin eru hvött til þess að
koma i furðufötum með grimur
eða máluð, almennt þess likleg að
geta hrakið illa anda af höndum
okkur. — Akureyrsk börn nota oft
tækifærið, þegar kötturinn hefur
verið sleginn úr tunnunni til að
safna fé fyrir verðugt verkefni
auk þess að snikja sér ofurlitið
sælgæti i búðum og fara þau þá
gjarnan syngjandi um bæinn sinn
i alls kyns búningum, sem athygli
vekja.
Æskilegt er, að börnin komi
niður á Lækjartorg skömmu fyrir
kl. 10, en athöfnin mun hefjast
stundvislega.
Sjá nánar um köttinn úr tunn-
unni á bls. 12
segir
1 tilefni af dansk-islenskri
samvinnu fáum við hér einn
„Loka" að láni úr dönsku
pressuhni um helgina:
„Kvartaö er undan þvl I
blaðagrein, að Danir éti alltof
litiö af lambakjöti. Það er
sennilega þess vegna sem
Danir ætla hreinlega að éta
hana Vigdlsi”.
Haraidur ðlafsson. dðmari I „velslu svarið?”
HEF KVEDIÐ UPP ÚRSKURÐ OG
HONUM VERDUR EKKI RREYTT
PP
„Þetta getur veriö vafaatriði,
en eftir að hafa borið spurning-
una, eins og hún var oröuö I þætt-
inum, undir tvo menn sem hafa
mikla þekkingu á þessu sviði,
kvað ég upp þann úrskurð, að
Gullbringusýsla væri rétt svar og
þvl verður ekki breytt”.
Þetta sagði Haraldur ólafsson,
lektor, þegar blaðamaður Visis
ræddi við hann um útvarpsþátt-
inn „Veistu svarið” i fyrrakvöld,
en i Visi i gær var frá þvi greint,
að áhöld kynnu að vera um dóms-
úrskurð i sambandi viö svar við
spurningu um i hvaða sýslu flestir-
kaupstaðir hafa risið.
„Eins og spurningin var orðuð
verður að telja Gullbringusýslu
rétt svar en þetta er vafaatriði og
ég ætla að sjá til þess aö það verði
ekki fleiri slik”, sagði Haraldur.
Blaöamaður hafði einnig sam-
band við Jónas Jónasson, stjórn-
anda þáttarins, oe sagði hann að
dómarinn hefði úrskurðað i þessu
máli og hann gæti engu breytt þar
um.
„Ef hann hins vegar vill breyta
úrskurði sinum, þá skal ekki
standa á mér”, sagði Jónas.
—P.M.