Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 16
Heitt rúllutertubrauð (upphaflega frá Jóa Fel) 1 rúllutertubrauð 1 askja paprikuostur 2 msk majónes 3 msk sýrður rjómi örl. súputeningur mulinn fínt 1/3 græn paprika 1/3 rauð paprika 3 msk maískorn „season all“ krydd léttmajónes rifinn ostur paprikuduft 1. Blandið saman paprikuosti, sýrðum rjóma, majónesi og örl. muldum súputeningi. 2. Skerið paprikurnar niður í smáa teninga og blandið saman við ostahræruna og krydd- ið með „season all kryddi“ eftir smekk. 3. Jafnið ostahrærunni á rúllutertubrauðið og rúllið upp. 4. Smyrjið brauðtertuna með þunnu lagi af léttmajónesi að utan og stráið rifnum osti og paprikudufti yfir. 5. Bakið rúllutertubrauðið við 200°C í u.þ.b. 20 mín. eða þar til osturinn fer að brúnast. Á þetta borð sem við ætluðum fyrir 20 manns tvöfölduðum við þessa brauðtertu og bök- uðum hana í venjulegu eldföstu móti. Morgunblaðið/Ásdís Fallegar vörur á góðu verði Grímsbæ • Bústaðavegi • sími 588 8488 Kjólar, pils, buxur & peysur Stærðir 38-50 Skór Glæsibæ • Álfheimum • Sími 588 8050                             Laxa- og rækjubrauðterta 5 harðsoðin egg 250 g Hellmans light-majónes 1 dós sýrður rjómi 10% 2½ msk sítrónusafi 250 g reyktur lax 300 g rækjur 2½ msk dill ferskt 1½ rúllutertubrauð 1. Setjið rækjur og lax í blandara og mauk- ið. 2. Sjóðið egg, kælið og saxið og blandið öllu saman sem á að fara í salatið og hrærið og kryddið og bragðið til. 3. Smyrjið salatinu jafnt á rúllutertu- brauðin, rúllið upp og skerið síðan nið- ur í hæfilegar sneiðar (ekki þunnar) með beittum hnífi. Raðið sneiðunum þétt í botninn á djúpu kringlóttu tert- umóti (pie móti með háum köntum) með smellulæsingu á hliðinni. 4. Raðið áfram sneiðum þétt upp með hliðinni og fyllið siðan formið með sneiðum eða rifnu brauði og salati. Látið brauð vera efsta lagið ef það er notað. 5. Látið tertuna standa í ísskáp nokkra klukkutíma. 6. Losið tertuna úr forminu með því að fara með hníf hringinn í kring í forminu. 7. Hvolfið á fat og skreytið með fersku dilli og raðið salati á fatið í kring. Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.