Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 42
ÞAÐ ER töluverð fjölbreytni í fjölskyldu Steinunnar Lilju
Logadóttur sem nú fermist senn borgaralegri fermingu.
Systir hennar Freyja, sem er 17 ára, fermdist til ásatrú-
ar, og var eina barnið við þá athöfn, Helga, móðir Stein-
unnar, fermdist alls ekki en faðir hennar fermdist til lút-
erskrar trúar. Níu ára frænka hennar, Eva Lind
Guðjónsdóttir, er einmitt nú að taka sín fyrstu skref í átt
að fermingu til kaþólskrar trúar og Sólbjört, 10 ára systir
Steinunnar, er að hennar sögn mikið að hugsa um hvern-
ig hún eigi að hafa þetta þegar hún kemst á ferming-
araldur.
En hvers vegar skyldi Steinunn hafa ákveðið að ferm-
ast borgaralegri fermingu?
„Það á betur við mig en allt hitt sem ég átti kost á,“
segir Steinunn.
„Ég hef farið níu sinnum í fermingarfræðslu í Kvenna-
skólanum og lært þar mikið um samskipti, hvernig mað-
ur á að haga sér þegar maður er að stíga sín fyrstu skref
sem fullorðin manneskja, mér finnst ég vita miklu meira
um mannlega hegðun nú þegar. Þetta minnir á lífsleikni-
tíma í skólanum. Það kemur fólk og talar við okkur og
fræðir okkur um hin ýmsu svið. Okkur hefur verið kynnt
forvarnarstarf gegn vímuefnum, einnig hefur verið rætt
um einelti, og síðast kom kona frá ÍTR og ræddi um þá
ímynd sem okkur er gefin í fjölmiðlum, t.d. hvað varðar
útlit og hvernig maður á að vera í vaxtarlagi og klæðnaði.
Hún sagði okkur frá átröskun og ýmsu öðru sem er
slæmt fordæmi, sýndi okkur myndir af módelum, popp-
stjörnum og skipti okkur svo í kynjahópa og stelpurnar
áttu að teikna hinn fullkomna karlmann en strákarnir
hina fullkomnu konu. Ég teiknaði Óla prik og pílur sem ég
skrifaði við hvernig eiginleika maðurinn á að hafa. Þetta
er allt mjög frjálslegt og það er einmitt það sem mér
finnst svo skemmtilegt við það. Sumir vilja ekki kalla
þetta fermingu en samt er þetta eins konar ferming þótt
við lærum ekki boðorð og sálma. Ég verð fermd borg-
aralega í Háskólabíói þann 4. apríl nk. Ég hugsa að það
verði veisla heima hjá mér á eftir.
Fermist
borgaralega
Frænkurnar Steinunn Lilja Logadóttir og Eva Lind Guðjónsdóttir. Steinunn fermist borgaralegri fermingu en
Eva Lind er kaþólsk og er um þessar mundir að undirbúa sína fyrstu altarisgöngu.
Barna & fjölskyldumyndir. www.ljósmyndir.net
Steinunn Lilja Logadóttir.
LJÓSMYNDASTOFAN Barna- og fjölskyldu-
ljósmyndir, Núpalind 1 í Kópavogi, hefur bryddað
upp á þeirri nýjung að taka allar sínar myndir
stafrænt og leyfa fólki að velja úr þeim jafn-
óðum.
„Við erum eina ljósmyndastofan á landinu sem
getur sýnt myndirnar strax á risaskjá um leið og
myndatakan fer fram og við gefum fólki kost á
að velja sjálft myndirnar jafnóðum. Þannig geta
viðskiptavinir okkar haft mikil áhrif á hvernig
myndir eru teknar meðan sjálf myndatakan fer
fram, það fylgist með í tölvu,“ segir Gunnar Leif-
ur Jónasson hjá Barna- og fjölskylduljósmyndum.
En skyldi tískan í fermingarmyndum hafa
breyst mikið nú upp á síðkastið?
„Já, nú er meiri áhersla lögð á taka fallegar og
skemmtilegar myndir af krökkunum, eins og þau
eru, en áður fyrr voru fermingarmyndir t.d. nær
eingöngu kyrtilmyndir. Þetta er gjörbreytt.
Slíkar „englamyndir“ eru á undanhaldi.
Nú er hægt með þessari nýju tækni að taka
mikið af myndum og af fjölbreyttu tagi og velja
svo eftir á í tölvunni hverjar koma vel út og
verða notaðar.
Með þessari nýju tækni er hægt að laga ým-
islegt í útliti fólks, taka af bauga undir augum,
fjarlægja bólur og spangir á tönnum, hvítta tenn-
ur og þannig mætti telja, allt eftir óskum fólks.
En slík þjónusta kostar aukalega.
Áður kom fólk t.d. til mín og pantaði ljós-
myndapakka og fékk þá þær myndir sem ég
valdi. Nú kemur fólk og fær mig til að taka
myndir eftir sínu höfði og velur sjálft hverjar eru
notaðar. Þannig er hægt að fá eina mynd, fjórar,
tíu eða fimmtíu óháð hversu oft er smellt af.
Við hvetjum fólk t.d. til að taka með sér ýms-
an fatnað í myndatökuna og það sem tengist
áhugamálum þess, til þess að auka fjölbreytn-
ina. Einnig mega koma margir úr fjölskyldunni
þótt um eina myndatöku sé að ræða.“
Er þetta dýr myndataka?
„Nei, hún kostar ekki nema
5.000 krónur með einni stækkun og svo er
hægt að velja eins margar myndir og fólk vill og
borga í samræmi við það.“
Ný tækni
í ljósmyndun