Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 33
Á LANDSBYGGÐINNI, rétt eins og á höfuð- borgarsvæðinu, nálgast nú fermingarat- hafnir. Víðast er fermt í kringum páska en þó er það ekki algilt. Séra Lára G. Oddsdóttir er prestur í Valþjófsstaðarprestakalli sem hef- ur fimm sóknir innan sinna vébanda. „Það viðhorf er ríkjandi hér um slóðir og líklega víðar í sveitum að annaðhvort sé æskilegt að ferma fyrir eða eftir sauðburð,“ segir séra Lára. „Núna þetta vorið fermi ég sautján börn í fimm athöfnum. Ég fermi í fjórum kirkjum af fimm í prestakallinu. Fyrsta fermingin er á skírdag í Valþjófsstaðarkirkju, síðan fermi ég aftur í þeirri kirkju um hvítasunnu. Fyrsta sunnudag í júní fermi ég í Áskirkju í Fellum, þar fermist stærsti hópurinn, níu börn. Síð- an fermi ég 20. júní í Hofteigskirkju á Jök- uldal og 27. júní fermi ég tvö börn í Möðru- dalskirkju á Fjöllum. Það eru raunar börn sem eru ekki mín sóknarbörn heldur er þar um að ræða afkomendur Jóns Stefánssonar í Möðrudal. Afkomendur hans eiga þessa kirkju og halda henni vel við og þar fara fram kirkjulegar athafnir af og til og reglulega er þar sumarmessa.“ Foreldrar og börn fá fermingarfræðsludag En hvernig gengur fermingarfræðslan fyrir sig í svona dreifðu umdæmi? „Börnin sem tilheyra Áskirkju í Fellum ganga í Fellaskóla og fræðsla þeirra fer fram í Fellabæ. Börnin sem fermast í Valþjófs- staðarkirkju ganga í Hallormsstaðarskóla ásamt börnum úr Skriðdal og af Völlum. Þessum börnum sinnum við saman, ég og séra Vigfús Ingvar Ingvarsson sem er prest- ur í Vallanesprestakalli en situr á Egils- stöðum. Í Brúarásskóla á Norðurhéraði eiga fjórar sóknir fermingarbörn, tvær þessara sókna eru úr mínu prestakalli og tvær úr Eiðaprestakalli. Þessum börnum, sem eru alls átta talsins, sinnum við séra Jóhanna Sigmarsdóttir Eiðaprestur. Fyrir utan hina vikulegu fermingarfræðslu þá eru sameig- inlegar fermingarbúðir fyrir öll fermingarbörn á Austurlandi í kirkjumiðstöðinni á Eiðum. Auk þessa höfum við, þessir þrír prestar á Héraði, boðið öllum fermingarbörnum okkar og foreldrum þeirra upp á ferming- arfræðsludag einu sinni á vetrinum. Mikil tengsl eru á milli okkar þriggja presta hér á Héraði og við höfum kappkost- að að öll fermingarbörnin okkar fái sams- konar undirbúning. Við leggjum til grundvallar bók sem heitir „Líf með Jesú“ og tengjum trúarjátninguna sem öll börnin læra utan að við texta Bibl- íunnar. Reynum og að æfa þau í lestri í bibl- íulegum texta, hvetja þau til þátttöku í helgi- haldinu með okkur eftir því sem aðstæður leyfa. Auk þess tökum við ýmis önnur efni til umræðu og horfum á bíómyndir og leitum að trúarlegum stefjum. Í haust lét ég ferming- arbörnin skrifa á miða hvað þau vildu tala um og það kom mér nokkuð á óvart að all- mörg óskuðu eftir að tala um mat og líka tónlist niðurstaðan úr þessu er að við mun- um taka upp nokkra texta úr Biblíunni þar sem matur er sérstaklega ræddur og börnin ætla jafnframt að bjóða foreldrum sínum í mat. Matseðillinn er alveg ákveðinn en hann mun tengjast páskalambinu. Einnig eru börn í Brúarásskóla að safna efni í tónlistarkvöld með trúarlegum textum. Mikið gert úr fermingarathöfninni eystra Það eru viss forréttindi að fá að vera með svona fá börn í fermingarfræðslu og vera í þessu góða samstarfi sem við prestar hér erum í. Það eru líka forréttindi að geta komið til móts við óskir foreldra um fermingardaga, en það getum við hér gert vegna þess að við erum ekki eins niðurnjörvuð og gerist í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu. Þess má geta að mikið er gert úr ferming- arathöfninni hér eystra yfirleitt eins og gerist annars staðar á landinu. Þetta eru fjöl- skylduhátíðir með tilheyrandi veisluhöldum og gjöfum.“ Séra Lára G. Oddsdóttir gefur tóninn í fermingarfræðslunni. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins Fermingarbörnin vilja tala um tónlist Engjateigi 5, sími 581 2141. Kringlunni & Smáralind Öll vinsælustu fermingarúrin fást hjá mebu/rhodium í Kringlunni og Smáralind! Verð frá kr. 7.500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.