Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 19
Einfaldur
rækjuréttur
1 kg rækjur
1–2 heildósir blandaðir
ávextir (t.d. Del Monde)
2 dósir sýrður rjómi (10%)
2 tsk. sykur
2 tsk. provencale krydd
(Knorr)
1. Þíðið rækjurnar, látið vökvann
renna vel af ávöxtunum og bland-
ið þessu saman.
2. Leggið salatblöð í grunna, glæra
skál og setjið rækjublönduna of-
an á.
3. Hrærið sýrða rjómanum, sykr-
inum og provencale kryddinu
saman og berið fram með rétt-
inum.
Þessi réttur er bæði góður og fal-
legur á borði. Þarf að útbúa sam-
dægurs. Verð u.þ.b. 2000 kr.
Kaldur kjúklingur
á grænmetisbeði
7 kjúklingar grillaðir
1 poki veislusalat
1 höfuð jöklasalat (iceberg)
rifið niður
4 paprikur rauðar og gular
250 g sveppir skornir í sneiðar
1–2 öskjur furuhnetur ristaðar
1. Hreinsið kjúklingana af beinum og skerið
í litla bita.
2. Rifið veislusalatið smærra ef þarf.
3. Rifið jöklasalatið niður.
4. Ristið hneturnar á þurri pönnu við góðan
hita.
5. Skerið paprikurnar í litla ferninga.
6. Skerið fersku sveppina í sneiðar að
morgni veisludags.
Blandið saman veislusalati, jöklasalati,
paprikum og sveppunum. Komið fyrir á
sléttu fati eða stórum diski. Kjúklingabit-
arnir settir ofan á og ristuðum hnetunum
stráð yfir.
Sinnepssósa:
1½ dós (300 g) sýrður rjómi
½ dós (125 g) léttmajones
franskt sætt sinnep
Sýrður rjómi og majones hrært saman og
smakkað til með frönsku sinnepi.
Sósan ásamt heimabökuðu brauði borin
fram með réttinum.
Daginn fyrir veisluna er hægt að kaupa
grillaða kjúklinga, kæla þá og skera í litla
bita. Þeir kosta um það bil 700 kr. hver. Á
þetta fermingarborð ætti 1/2 uppskrift að
nægja.
Þessi uppskrift er ætluð fyrir tuttugu
manns sem aðalréttur.
Pottþéttur
pottréttur
2,5 kg beinlaust svínakjöt
eða lambakjöt í bitum
4 tsk. karrí
3 laukar saxaðir
500 g sveppir, skornir í sneiðar
matarolía til steikingar
2 krukkur Sweet Relish
2 krukkur Mango Chutney
4 stórir súputeningar
2½ dl vatn
heildós ananas, í bitum
2 rauðar paprikur, skornar
í bita
1. Hitið olíu og brúnið kjötið, kryddið með
karrí og setjið í pott.
2. Brúnið laukinn og sveppi og setjið út í
pottinn.
3. Bætið Sweet Relish og Mango Chutney
út í ásamt súputeningum og vatninu. Lát-
ið sjóða við vægan hita í 45 mínútur.
Hrærið í af og til.
4. Bætið ananas og paprikubitum út í áður
en rétturinn er hitaður upp. Passið að
láta suðuna koma upp á réttinum áður
en hann fer á borðið.
Ef notað er svínakjöt er kostnaður um
það bil 4.200 kr. En með lambakjöti er
kostnaðurinn u.þ.b. 6.700.
Hrísgrjón:
15 dl (u.þ.b. 1½ kg) hrísgrjón
soðin í 3 lítrum af vatni.
1. Þrýstið hrísgrjónunum ofan í kringlótt
kökuform með gati í miðjunni sem bleytt
hefur verið með köldu vatni.
2. Hvolfið síðan á disk. Ef diskurinn er lít-
illega bleyttur er auðvelt að laga hringinn
til á honum.
3. Skreytið með hálfum ananassneiðum og
rauðum kokkteilberjum með stilk, utan
með hringnum á fatinu.
Það er fallegra að nota Basmati villihrís-
grjónablöndu en venjuleg hvít hrísgrjón.
500 g kosta 400 kr. en hvít grjón 200 kr.
Kartöflur í eldföstu móti
3 kg kartöflur
5 laukar
2 tsk. salt (má sleppa)
2 fernur matreiðslurjómi
500 g rifinn ostur
1. Afhýðið laukinn og skerið í þunnar sneið-
ar.
2. Flysjið hráar kartöflur og skerið í þunnar
sneiðar.
3. Leggið kartöflur og lauk til skiptis í smurð
eldföst mót þannig að kartöflur séu
neðst og efst.
4. Hellið rjómanum yfir og bakið við 200° C
neðarlega í ofni í 45–50 mínútur.
5. Stráið rifna ostinum yfir og bakið með
síðustu 10 mínúturnar.
Laukinn má brytja daginn áður og geyma í
gleríláti til næsta dags. Kartöflurnar má
einnig flysja og geyma heilar í fersku vatni í
lokuðu íláti.
Hagstæðast er að velja kartöflur í lausu
og kaupa stóran ostbita.
Samanlagður kostnaður er 1.300 kr.
Þetta kartöflufat er gott að bera fram
með kaldri skinku.
Fyrir fermingarnar verður til bæði eðal-
skinka og raftaskinka í Nóatúni í Austurveri
á tilboðsverði. Gott væri að kaupa báðar
tegundirnar, sneiða þær þunnt, raða á fat
með heilum aspas og litlum gulrótum. Áætl-
ið 100 g á manninn þ.e. 2 kg fyrir þetta boð
eins og það er uppsett.
Morgunblaðið/Þorkell
Ostabakki úr handblásnu gleri úr Tékkkristal.