Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 10
LJÓSATÍMAR í ljósabekkjum eru eitt af því sem sumar ungar stúlkur og konur hafa mikið sótt fyrir hátíðleg tækifæri, m.a. ferm- ingar. En það eru ekki allir sáttir við þá út- litsfegrun sem í hinum brúna lit er talin fólg- in, einkum eru læknar áhyggjufullir vegna heilsufarshættu sem slík ljós hafa í för með sér og þykir brúni liturinn á stundum dýr- keyptur. Bárður Sigurgeirsson húðsjúkdómalækn- ir vitnar til ályktunar Alþjóða heilbrigð- ismálastofnunarinnar í þessu sambandi. „Sú stofnun hefur varað eindregið við ljósabekkjanotkun,“ segir Bárður. „Af því tilefni þykir ástæða til að vara for- eldra og börn við þeirri hættu sem getur hlotist af notkun ljósabekkja. Sú hætta felst í aukinni tíðni húðkrabbameins. Það er varað við því alls staðar í heiminum að sól- argeislar og ljósabekkir séu miklu hættu- legri en menn töldu áður, einkum hvað ungt fólk varðar. Algengi sortuæxla hefur þrefaldast hjá konum á undanförum þremur árum árum og nú er svo komið að sortuæxli er algengasta krabbameinið meðal ungra kvenna. Það eru einkum konur sem hafa sótt í ljósabekki en hættan á húðkrabbameini er auðvitað fyrir hendi líka hjá karlmönnum sem sækja í sólböð og ljósabekki. Hér hafa verið gerðar rannsóknir sem sýna að Íslendingar eiga líklega heimsmet í ljósabekkjanotkun og þar eru konur í mikl- um meirihluta. Fyrir 25 árum var sjaldgæft að ungar konur fengju sortuæxli en nú er það algengt – við erum að sjá ungar konur látast um þessum sjúkdómi. Vitað er að það tekur nokkur ár frá því að húðin verður fyrir skaða þar til meinið tekur sig upp, þess vegna er ályktað að grunn- urinn sé lagður snemma með ljósabekkja- notkun, jafnvel á fermingaraldri. Af þessum orsökum viljum við koma þeim ábendingum til fermingarbarna og for- eldra þeirra að notkun ljósabekkja getur haft hættu í för með sér, hún getur orsakað krabbamein innan fárra ára.“ Bárður Sigurgeirsson húðsjúkdómalækn- ir varar unglinga við notkun ljósabekkja. Notkun ljósabekkja skapar hættu Kjóll og fagrar slæður Morgunblaðið/Móa Glæsilegur kjóll úr fínlegu efni sem mikið hefur verið keyptur sem fermingarkjóll, og slæður í pastellitum sem hafðar eru yfir ermalausa fermingarkjóla. Fæst í Deben- hams.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.