Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 35
Veldu gæði, veldu Babyliss •BaByliss vörurnar fást um land allt Bablyss Men, glæsilegar hárklippur í álkassa Klippa 30.000 hár á sek., titanium blöð og kambur, fjölbreyttar stillingar. Mjög vandaðar hárklippur. hársnyrtitæki Sléttu-, vöfflu- og krumpujárn með gufu 3 tæki í einu. Auðvelt að skipta um plötur, kælitakki, læsing á handfangi o.fl. Skegg- og hársnyrtir með 3 hausum. Fyrir skegg, augabrúnir, nef og eyrnahár. Einfalt og þægilegt í notkun. Babyliss blásari Sá öflugasti á markaðnum 2300 w. Glæsileg hönnun, 2 hraðastillar, kælitakki o.fl. Blásari fyrir þá sem gera kröfur Babyliss sléttujárn Mjög stórar plötur, greiða sem hægt er að fjarlægja, on/off takki, mjög vandað sléttujárn. Babyliss blásari 1800 w flottur og hjóðlátur, 2 hraða og hitastillar, kælitakki, 2 stútar. NÝTT Babyliss ceramic sléttujárn Frábært tæki til að slétta og móta hárið. Þunnar og mjúkar ceramic plötur, hitnar á 1 mínútu, nákvæm hitastilling, sjálvirkur ofhitavari. NÝTT! Babyliss sléttibursti með gufu Frábær nýjung, þú greiðir í gegnum hárið og sléttar það. Hitnar á 1 mínútu, sjálvirkur búnaður sem varnar ofhitun, ótrúlega auðvelt og þægilegt í notkun. Langvinsælustuhársnyrtitækiná Íslandi FLOTTAR FERMINGARGJAFIR FYRIR STELPUR OG STRÁKA ÞAÐ hefur í sívaxandi mæli tíðkast að hafa kerti á fermingarborðum sem merkt eru sérstaklega ferm- ingarbarninu. Margrét Ása Karlsdóttir, starfsmaður í Blómavali, hefur sérhæft sig í að merkja fermingarkerti. „Ég nota kertaliti og gyllingu í túpum til merking- anna. Þetta eru hvor tveggju efni sem ekki kviknar í og það er þýðingarmikið,“ segir Margrét Ása. „Það er hægt að skrifa á næstum allar gerðir kerta, ef þau eru ekki of gróf. Algengast er nú að fólk kaupi pýramídakerti og láti skrifa á þau tilefnið, dagsetningu fermingarinnar og nafn ferming- arbarnsins. Áletrun og kerti kosta saman um 3.000 krónur. Eftirspurn eftir þessari þjónustu hefur aukist mikið undanfarin þrjú ár. Kerti af öllu tagi eru mikið notuð á fermingarborð, hægt er að skreyta kerti á ýmsan máta, t.d. með krossum og áteiknuðu skrauti. Margir láta líka árita servíettur og það er hægt að fá slíkt hér. Hægt er að árita flestar tegundir af servíettum en heppilegustu fermingarservíetturnar af þessu tagi eru þær sem eru með litlu skrauti svo gott pláss sé fyrir texta. Ef miðað er við 80 stykki þá kostar áletrunin 2.490 krónur. Við erum auðvitað með mikið framboð af blóma- skreytingum á borð og jafnvel í hár. Með kertunum er oft pöntuð skreyting í kringum það. Við bjóðum líka upp á alls kyns skreytingarefni fyrir veisluborð." Áletruð kerti og servíettur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.