Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 12
sama á auðvitað við þegar fólk leigir sali og sér sjálft um veitingar og skipulagningu. En eitt er víst að enginn verður óbarinn biskup í þeim efnum og því veitir ekki af góðum ráðum og uppskriftum, ekki síst þegar fólk er að halda sína fyrstu stóru veislu, sem fermingarveislur eru oft. Sjálf segist Stefanía muna sáralítið eftir sinni eigin fermingarverislu. „Ég var fermd í Kirkjubæjarkirkju í Hró- arstungu austur á Fljótsdalshéraði en þar er ég fædd og uppalin,“ segir hún. „Sjálfsagt hefur stór hluti dagsins farið í ferðina til og frá kirkju á holóttum mold- arvegum og eitthvað kaffi var síðan fyrir nánustu fjölskyldu þegar heim var komið. En ég man miklu meira eftir fermingu bróður míns sem er þremur árum eldri en ég. Þá var sameiginleg fermingarveisla haldin á prestssetrinu á Kirkjubæ og öllum kirkjugestum boðið í kaffi.“ Hinn glæsilegi Royal-bæklingur „Fyrrnefnd veisla var sú stærsta og eft- irminnilegasta sem ég hafði nokkru sinni upplifað. Og undirbúningurinn hefur aldrei úr minni mínu liðið. Það stóð svo mikið til á heimilinu og hátíðarstemmning lá í loftinu. Föðursystir mín sem þótti afar myndarleg í öllum verkum kom í heimsókn til að hjálpa til við baksturinn. Og þá hafði nýverið borist inn á heimilið auglýsingabæklingur sem átti að undirstrika ágæti Royal-lyftiduftsins og í honum voru kökuuppskriftir. Ég held að þetta hafi verið fyrsti uppskriftabækling- urinn sem gefinn var út á Íslandi og dreift var meðal almennings. Í bæklingnum var uppskrift af tertu sem var í þremur lögum og var eitt lagið bleikt, annað var gult og það þriðja grænt. Það var matarlitur sem sá um litrofið. Frænka mín bakaði nokkrar svona kökur og sprautaði þær listilega með Á ÞEIM mótum æsku- og fullorðinsára sem tengist ímynd fermingarinnar í hugum fólks er ekki ónýtt að gera sér grein fyrir þýðingu matar fyrir heill og hamingju fólks. Stund- um er jafnvel sagt að leiðin að hjarta mannsins liggi í gegnum magann – en leið- in að hjarta konunnar er þó víst fremur stráð blómum og jafnvel demöntum, ef marka má stöðugar ábendingar í þá átt í kvikmyndum og öðrum fjölmiðlum. Stefanía Valdís Stefánsdóttir aðjunkt við heimilisfræðideild Kennaraháskóla Íslnds tók að sér að stjórna aðgerðum þegar útbú- in var „fermingarveislan góða“ eins og Stef- anía orðaði það þegar veislan sem hér er birt í uppskriftum og myndum var í und- irbúningi. Flestir landsmenn hafa setið ferming- arveislur í heimahúsum og vita að það þarf bæði útsjónarsemi og smekkvísi til þess að útbúa og stjórna slíkum veislum. Það Góða veislu gjöra skal Morgunblaðið/Ásdís „Fermingarveislan góða.“ Borðið er fagurlega skreytt með servíettum, kertum og hvítum blómum frá Blómagalleríi, Hagamel 67. Stefanía Valdís Stefánsdóttir. Það er list að halda góða veislu en þá list má læra og er Stefanía Stefánsdóttir kjörinn lærimeistari í þeim efnum. Hún hefur í fyrsta lagi haldið fjölbreyttar veisl- ur í heimahúsum en einnig er hún „sprenglærður“ heimilisfræðikennari og starfar sem aðjunkt við Kennaraháskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.