Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 22
RAUÐARÁRSTÍG 14-16, SÍMI 551 0400 • KRINGLUNNI, SÍMI 568 0400 • www.myndlist.is
Fossil, Diesel, Armani, DKNY og Storm úr,
flottar fermingargjafir!
GUNNHILDUR, Hugi og Þorvarður eru nem-
endur í 8. bekk Kársnesskóla og fara þrjár
mismunandi leiðir á fermingarárinu.
Fyrst verður fyrir svörum Gunnhildur Æv-
arsdóttir, sem kveðst ekki ætla að ferm-
ast. „Ég er alin upp við guðstrú, en er bú-
in að missa hana. Ástæðuna veit ég ekki.
Ég byrjaði að efast mikið síðastliðið sum-
ar. Auk þess trúi ég ekki á ferminguna
sem slíka og hef aldrei séð tilganginn
með henni, svo ég hefði hvort eð er ekki
fermst,“ segir hún.
Þess í stað ætlar hún til Bretlands, til
London og Jersey nánar tiltekið, í menn-
ingarferð. Í ferðinni verða auk Gunnhildar,
foreldrar hennar og systur og kærasti
næstelstu systur hennar.
„Ég mátti ráða hvert við færum. Í Lond-
on er mikið af söfnum og ég ætla að
reyna að komast á British Museum og Mu-
seum of Natural History. Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á Fornegyptum og valdi að
fara til London þegar ég sá safnaþátt um
British Museum í sjónvarpinu,“ segir hún.
Spurð um hugðarefni sín kveðst hún
hafa áhuga á dulspeki, göldrum og spá-
dómum. „Og öllu sem tengist Netinu, forn-
leifum og þess háttar.“
Engin veisluhöld eru á döfinni á næst-
unni, segir Gunnhildur að síðustu. „Ég hélt
upp á 14 ára afmælið mitt 2. mars síðast-
liðinn, það var það eina sem ég gerði fyrir
fjölskylduna.“
Kjúklingasalat og Kanarí
Þorvarður Örn Einarsson hyggst fermast
í Kópavogskirkju hinn 28. mars næstkom-
andi. Að athöfninni lokinni verður fjölskyld-
unni boðið upp á veitingar, meðal annars
kalt borð, og kveðst Þorvarður hafa valið
sérstaklega kjúklingasalat, sem móðir
hans býr til og honum þykir gott. Um
páskana fer fjölskyldan síðan til útlanda,
það er til Tenerife á Kanaríeyjum. „Ég fer
með foreldrum mínum, bróður og systur,
og síðan kemur frænka mín og foreldrar
hennar,“ segir hann.
Hvað fermingarfötin varðar, var ekki bú-
ið að kaupa þau, þegar viðtalið fór fram,
en Þorvarður kvaðst ætla að spá í það
innan tíðar. Einnig sagðist hann hlakka
nokkuð til athafnarinnar. „Já, svona frek-
ar, aðallega til veislunnar á eftir og
svona.“
Hvað gjafirnar varðar, sagðist hann ekki
hafa pantað neitt sérstakt. „Nei, eiginlega
ekki, bara pening eða eitthvað.“
Aðspurður segir Þorvarður sjónvarps-
tæki og græjur algengar óskir meðal ferm-
ingarbarna.
Ekki kveðst hann hafa þurft að velta því
mikið fyrir sér, hvort hann ætti að fermast
eða ekki. „Nei, ég var búinn að ákveða að
ég ætlaði að fermast í kirkju. Mér finnst
það réttast. Flestallir sem ég veit um ætla
að fermast í kirkju,“ segir hann loks.
Ekki jafnstór skuldbinding
Hugi Leifsson hefur hug á borgaralegri
fermingu og fer athöfnin fram í Há-
skólabíói hinn 4. apríl. „Mér fannst það
bara eitthvað einfaldara og leist betur á
þetta. Maður þarf ekki að mæta í fullt af
messum og læra helling af bænum. Þetta
er ekki jafnstór skuldbinding.“
Síðar um daginn verður veisla. „Senni-
lega bara hérna heima,“ segir hann um
staðsetninguna. „Svona kaffidæmi. Kökur
og svoleiðis,“ bætir hann við.
Kaffiveisluna valdi hann sjálfur og þá
sérstaklega döðlutertu með banönum,
rjóma og súkkulaði.
„Svo held ég ekkert meira upp á þetta,“
segir hann líka.
Hvað fötin varðar, kvað Hugi hugsanlegt
að búið væri að kaupa þau. „Þá eru þau
sennilega bara inni í skáp.“
Gjöfum hafði hann hins vegar velt fyrir
sér og þá rafmagnsgítar, magnara og
myndbandsupptökuvél.
Heldurðu að þú fáir þetta?
„Sennilega rafmagnsgítarinn og magn-
arann en ég er nú ekki viss með mynd-
bandsupptökuvélina.“ |hke@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Gunnhildur Ævarsdóttir, Hugi Leifsson og Þorvarður Örn Einarsson eru á
fermingaraldri og nemendur í 8. bekk Kársnesskóla.
Menningarferð,
kirkjuferming og
borgaraleg athöfn