Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 26
ÞAÐ á við um fermingarbörn eins og aðra hópa. Við komum í öllum stærðum og gerðum en það vill vera svo að það sem er í boði fyrir fermingarbörn í búðunum er oft- ast í ákveðnum stærðum og úr- valið því oft lítið fyrir stráka og stelpur í yfirstærðum og mjög litlum stærðum. Sumir hafa því tekið á það ráð að láta hanna og sauma á sig fermingarföt en ein af þeim sem hefur tekið að sér slík verkefni er Alda Björg Guðjónsdóttir, fata- hönnuður og stílisti. „Það er góður valmöguleiki að láta sauma á sig fermingarfötin og þá er hægt að koma með myndir úr tímaritum eða ganga út frá einhverju sem viðkomandi hefur litist vel á í verslunum,“ segir Alda. Það er afar mikilvægt að líða vel á ferming- ardaginn og fatnaðurinn gegnir þar veiga- miklu hlutverki. Það má segja að þarna sé einstaklingurinn að velja sér í fyrsta skipti föt til þess að koma fram í á opinberum vett- vangi. Áhrif frá sjötta áratugnum Það sem einkennir straumana í ferming- arfötum stúlkna í ár er nokkuð mikil litagleði, pastellitir og þá einkum og sér í lagi bleikur, sægrænn, gulur og ljósfjólublár, og svo er hvítur alltaf klassískur og ef til vill meira svart en áður að sögn Öldu. „Áhrif níunda áratugarins eru á undanhaldi og nú eru það áhrif frá þriðja og sjötta áratug síðustu aldar sem eru áberandi. Gollur í pastellitum og stutt pils við, gjarnan með tjulli og mynstruð, eru vinsæl og má einnig sjá örla fyrir áhrifum frá skólabúningum og jafnvel tennisbúningum. Hnésíðir kjólar í anda sjötta áratugarins og þá gjarnan í ýms- um mynstrum koma sterkt inn og hæfa vel fermingardeginum.“ Annars er fjölbreytnin mikil í verslunum í ár og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og greinilegt er að stelpur eru djarfari í fatavali en áður, það er að segja þær eru óhrædddari við að klæða sig óhefðbundið og fylgja sínum eigin stíl. Það er oft pressa á fermingarbörnin að þau séu svona og hinseg- in en Alda telur að mikilvægt sé að að vera sjálfum sér samkvæmur í fatavali sem stuðli þá frekar að vellíðan á sjálfan fermingardag- inn. Alda mælir með því að stelpur fari á milli búða og púsli sjálfar saman í stað þess að kaupa allt dressið á sama stað. Einnig er það hagkvæmissjónarmið að velja flíkur sem hægt sé að nota áfram í daglegu lífi en ekki aðeins opinberan fermingarkjól sem hangir svo bara inni í skáp engum til nytjar né gleði. Toppurinn að vera í teinóttu „Jakkaföt eru alltaf klassísk á strákana á fermingardaginn. En í dag þurfa foreldrar svo sannarlega ekki að þvinga þá til þess að klæðast þeim því jakkaföt eru mjög í tísku hjá strákum um þessar mundir og þeir sjá þarna gott tækifæri til þess að eignast góð föt sem hægt er að nota á árshátíðir seinna. Teinótt jakkaföt eru mjög vinsæl í dag svo og flauelsföt, brún, blá , grá og svört,“ segir Alda og bendir á að ekki sé nauðsynlegt að vera alltaf í skyrtu og með bindi við jakkafötin þótt vissulega sé það glæsilegt, það er einn- ig flott að vera í fallegum bolum undir jökk- um. Varast ber að vera í mjög klunnalegum skóm, fallegast er að vera í penum skóm við jakkafötin. Fermdist í skotapilsi Elsti sonur Öldu, Ágúst Ari Þórisson, fermdist í fyrra og valdi sér afar óvenjuleg fermingarföt. Þegar Alda spurði Ágúst í hverju hann vildi fermast svaraði hann hiklaust að hann vildi fermast í skotapilsi en hann hafði séð leikarann Samuel L. Jackson klæðast einu slíku í kvikmyndinni 51st Street. „Hann skar sig vissulega úr fjöldanum þar sem skotasokkarnir komu undan ferming- arkyrtlinum og það var mikið um þetta rætt í skólanum en öllum fannst þetta flott og spurðu Ágúst hvort hann væri Skoti. Ætli hann gifti sig ekki í pilsinu næst, það var vel við vöxt,“ segir Alda að lokum og hlær. Tískan leikur mikið hlutverk í undirbúningi fermingarfatn- aðar. Móeiður Júníusdóttir ræðir við Öldu Björgu Guð- jónsdóttur, stílista og fata- hönnuð, um fermingartísk- una í ár, snið, liti og efni. Enginn er eins Morgunblaðið/Jim Smart Alda Björg, fatahönnuður og stílisti, segir litagleði einkenna fermingartískuna 2004. Gallerí Sautján. Ágúst Ari Þórisson fermdist í skotapilsi. Gallerí Sautján. Gallerí Sautján. Retro. Módel: Svandís, Orka, Aþena Ragna, Guðlaug, Aron Breki, Gunnar hjá Eskimo Models. Fermingarbörn í ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.