Morgunblaðið - 13.03.2004, Síða 33
Á LANDSBYGGÐINNI, rétt eins og á höfuð-
borgarsvæðinu, nálgast nú fermingarat-
hafnir. Víðast er fermt í kringum páska en þó
er það ekki algilt. Séra Lára G. Oddsdóttir er
prestur í Valþjófsstaðarprestakalli sem hef-
ur fimm sóknir innan sinna vébanda.
„Það viðhorf er ríkjandi hér um slóðir og
líklega víðar í sveitum að annaðhvort sé
æskilegt að ferma fyrir eða eftir sauðburð,“
segir séra Lára.
„Núna þetta vorið fermi ég sautján börn í
fimm athöfnum. Ég fermi í fjórum kirkjum af
fimm í prestakallinu. Fyrsta fermingin er á
skírdag í Valþjófsstaðarkirkju, síðan fermi
ég aftur í þeirri kirkju um hvítasunnu. Fyrsta
sunnudag í júní fermi ég í Áskirkju í Fellum,
þar fermist stærsti hópurinn, níu börn. Síð-
an fermi ég 20. júní í Hofteigskirkju á Jök-
uldal og 27. júní fermi ég tvö börn í Möðru-
dalskirkju á Fjöllum. Það eru raunar börn
sem eru ekki mín sóknarbörn heldur er þar
um að ræða afkomendur Jóns Stefánssonar
í Möðrudal. Afkomendur hans eiga þessa
kirkju og halda henni vel við og þar fara fram
kirkjulegar athafnir af og til og reglulega er
þar sumarmessa.“
Foreldrar og börn fá
fermingarfræðsludag
En hvernig gengur fermingarfræðslan fyrir
sig í svona dreifðu umdæmi?
„Börnin sem tilheyra Áskirkju í Fellum
ganga í Fellaskóla og fræðsla þeirra fer fram
í Fellabæ. Börnin sem fermast í Valþjófs-
staðarkirkju ganga í Hallormsstaðarskóla
ásamt börnum úr Skriðdal og af Völlum.
Þessum börnum sinnum við saman, ég og
séra Vigfús Ingvar Ingvarsson sem er prest-
ur í Vallanesprestakalli en situr á Egils-
stöðum. Í Brúarásskóla á Norðurhéraði eiga
fjórar sóknir fermingarbörn, tvær þessara
sókna eru úr mínu prestakalli og tvær úr
Eiðaprestakalli. Þessum börnum, sem eru
alls átta talsins, sinnum við séra Jóhanna
Sigmarsdóttir Eiðaprestur. Fyrir utan hina
vikulegu fermingarfræðslu þá eru sameig-
inlegar fermingarbúðir fyrir öll fermingarbörn
á Austurlandi í kirkjumiðstöðinni á Eiðum.
Auk þessa höfum við, þessir þrír prestar á
Héraði, boðið öllum fermingarbörnum okkar
og foreldrum þeirra upp á ferming-
arfræðsludag einu sinni á vetrinum.
Mikil tengsl eru á milli okkar þriggja
presta hér á Héraði og við höfum kappkost-
að að öll fermingarbörnin okkar fái sams-
konar undirbúning.
Við leggjum til grundvallar bók sem heitir
„Líf með Jesú“ og tengjum trúarjátninguna
sem öll börnin læra utan að við texta Bibl-
íunnar. Reynum og að æfa þau í lestri í bibl-
íulegum texta, hvetja þau til þátttöku í helgi-
haldinu með okkur eftir því sem aðstæður
leyfa.
Auk þess tökum við ýmis önnur efni til
umræðu og horfum á bíómyndir og leitum að
trúarlegum stefjum. Í haust lét ég ferming-
arbörnin skrifa á miða hvað þau vildu tala
um og það kom mér nokkuð á óvart að all-
mörg óskuðu eftir að tala um mat og líka
tónlist niðurstaðan úr þessu er að við mun-
um taka upp nokkra texta úr Biblíunni þar
sem matur er sérstaklega ræddur og börnin
ætla jafnframt að bjóða foreldrum sínum í
mat. Matseðillinn er alveg ákveðinn en hann
mun tengjast páskalambinu.
Einnig eru börn í Brúarásskóla að safna
efni í tónlistarkvöld með trúarlegum textum.
Mikið gert úr
fermingarathöfninni eystra
Það eru viss forréttindi að fá að vera með
svona fá börn í fermingarfræðslu og vera í
þessu góða samstarfi sem við prestar hér
erum í. Það eru líka forréttindi að geta komið
til móts við óskir foreldra um fermingardaga,
en það getum við hér gert vegna þess að við
erum ekki eins niðurnjörvuð og gerist í
kirkjum á höfuðborgarsvæðinu.
Þess má geta að mikið er gert úr ferming-
arathöfninni hér eystra yfirleitt eins og gerist
annars staðar á landinu. Þetta eru fjöl-
skylduhátíðir með tilheyrandi veisluhöldum
og gjöfum.“
Séra Lára G. Oddsdóttir gefur tóninn í
fermingarfræðslunni.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Fermingarbörnin
vilja tala um tónlist
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Kringlunni & Smáralind
Öll vinsælustu
fermingarúrin
fást hjá mebu/rhodium í Kringlunni og Smáralind!
Verð frá kr.
7.500