Morgunblaðið - 25.03.2004, Side 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FORMENN aðildarfélaga Starfs-
greinasambands Íslands komu sam-
an til fundar í gær þar sem staða
viðræðna við ríkið var rædd. Á
þriðjudag slitnaði upp úr fundi hjá
ríkissáttasemjara og ákváðu for-
mennirnir í gær að bera það undir
samninganefndir í hverju félagi fyr-
ir sig, alls 28 að tölu um land allt,
hvort gripið verði til vinnustöðvun-
ar á næstu vikum. Komi til vinnu-
stöðvunar nær það til á fjórða þús-
und ófaglærðra starfsmanna hjá
ríkinu þar sem langflestir vinna á
sjúkrahúsum og öðrum heilbrigð-
isstofnunum, m.a. í mötuneytum,
þvottahúsum og við ræstingar.
Björn Snæbjörnsson, formaður
samninganefndar SGS í viðræðun-
um við ríkið, segir viðræðurnar við
ríkið vera í hnút. Ákveðið hafi verið
í gær að ræða við samninganefndir
hvers félags um framhaldið. Telur
Björn alveg jafn miklar líkur á
vinnustöðvun sem öðrum aðgerðum.
Hvert félag fyrir sig verði að taka
eigin ákvörðun. Að sögn Björns
mun það skýrast um eða upp úr
næstu helgi hvort til vinnustöðvana
kemur eða að sest verði að samn-
ingaborðinu á ný. Það sé undir rík-
issáttasemjara komið að boða til
næsta samningafundar. Björn segir
að ef félög ákveði vinnustöðvun geti
atkvæðagreiðsla um það tekið ein-
hvern tíma og síðan verði að til-
kynna verkfall með sjö sólarhringa
fyrirvara.
Sú krafa sem ríkið kom fram með
á fimmtudag, sem SGS sætti sig
ekki við, var að sögn Björns að for-
gangsréttur til starfa hjá ríkinu félli
niður ef jafna ætti lífeyrisréttindi á
við aðra opinbera starfsmenn.
Björn segir það ekki hafa komið til
greina að fallast á þessa eða aðrar
kröfur.
Vinnustöðvun áhyggjuefni
Guðmundur H. Guðmundsson,
varaformaður samninganefndar rík-
isins, segir það vissulega vera
áhyggjuefni ef til vinnustöðvunar
kemur á sjúkrahúsum og öðrum op-
inberum stofnunum. Hins vegar sé
ekki einfalt mál að koma til móts við
aðalkröfur Starfsgreinasambands-
ins. Samræming við samninga ann-
arra félaga opinberra starfsmanna
sé flókin og erfitt geti verið að taka
upp nýtt fyrirkomulag án þess að
fórna einhverju á móti eða leggja
ekki niður eldra fyrirkomulag. Rétt-
indin verði ekki eingöngu jöfnuð í
aðra áttina. Bendir Guðmundur á að
félagar SGS starfi ekki undir sömu
samningalögum og aðrir ríkisstarfs-
menn og réttindin séu mismunandi,
m.a. varðandi verkfallsheimildir og
forgang á störf. Ekki sé þó öll nótt
úti enn um lausn í viðræðunum.
Vonandi takist að finna nýja fleti.
Formannafundur Starfsgreinasambandsins fjallaði um viðræðuslit SGS og ríkisins
Aðildarfélögin ákveði hvort
til vinnustöðvunar kemur
TVÆR konur og einn karlmaður
voru flutt á slysadeild eftir árekstur
tveggja bíla á gatnamótum Barma-
hlíðar og Lönguhlíðar sem endaði
með því að annar bíllinn kastaðist á
húsvegg við Barmahlíð 33. Slysið
átti sér stað um klukkan 15 í gær.
Ekki var talið að fólkið hefði slasast
alvarlega.
Þegar bíllinn kastaðist á húsið
brotnuðu rúður í glugga kjallara-
íbúðar auk þess sem skemmdir
Þrennt á slysadeild eftir árekstur í Barmahlíð
Morgunblaðið/Júlíus
urðu á húsinu. Slysið varð með
þeim hætti að bíl var ekið suður
Lönguhlíð og beygt í akstursstefn-
una austur í átt að Barmahlíð og í
veg fyrir aðra bifreið sem var ekið
norður Barmahlíð. Við áreksturinn
kastaðist annar bíllinn á vegg á
húsi á horni Barmahlíðar og
Lönguhlíðar. Einn maður var í
kjallaraíbúðinni en sakaði ekki.
Kona sem ók öðrum bílnum var
flutt á sjúkrahús en tvö börn henn-
ar sem voru með henni í bílnum
sakaði ekki. Þá voru karl og kona í
hinum bílnum flutt á sjúkrahús.
Töluverðar skemmdir urðu á bíl-
unum og voru þeir dregnir á brott
með kranabíl. Loka varð Lönguhlíð
til norðurs um tíma á meðan lög-
regla og sjúkralið athöfnuðu sig á
vettvangi. Þá var Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins kallað út með
tækjabíl en ekki reyndist þörf á að
nota hann.
Bíllinn kastaðist á
húsvegg eftir árekstur
HEIMSÓKN Jaap de Hoop
Scheffer, framkvæmdastjóra
NATO, til Íslands hefur verið
frestað um óákveðinn tíma
vegna annarra skyldustarfa.
Scheffer var væntanlegur
hingað til lands í gærkvöldi og
áformað að hann héldi af landi
brott í kvöld eftir fundi með
forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra.
Samkvæmt upplýsingum frá
utanríkisráðuneytinu er fram-
kvæmdastjórinn væntanlegur
hingað síðar en ekki hefur verið
gengið frá endanlegri dagsetn-
ingu.
Heimsókn fram-
kvæmdastjóra
NATO til Íslands
Frestað
um óákveð-
inn tíma
Morgunblaðið/Jim Smart
„ÉG heyrði væl í hjólbörðum fyrir utan hjá mér og
við slysið lenti annar bíllinn utan í húsinu mínu,“
sagði Obinna Sturla Chijioke Anuforo, íbúi í
Barmahlíð 33, sem var heima við þegar árekst-
urinn varð á mótum Lönguhlíðar og Barmahlíðar
í gær. „Ég var nokkrum sentímetrum frá glugga
sem brotnaði við áreksturinn en slapp samt við
meiðsli. Glerbrotunum rigndi inn og ég þaut út til
að athuga hvað gerst hafði. Þar reyndist ökumað-
urinn sem lenti á húsinu hafa meitt sig í hálsinum
og var fluttur á sjúkrahús ásamt farþegum sínum.
Ég hringdi í pabba minn til að segja honum tíð-
indin. Glugginn er nú brotinn og það var reynt að
hylja hann með viðarplötum.“
Að sögn annars íbúa sem var inni við annars
staðar í húsinu þegar atvikið varð heyrði hann
hávaða og læti fyrir utan og sagðist hafa verið viss
um að árekstur hefði orðið.
„Glerbrotunum
rigndi inn“
ARNAR Jensson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn segir að í kjölfar birtingar
á yfirheyrslum og öðrum gögnum
verði lögreglan að
endurskipuleggja
sína vinnu við
rannsóknina í lík-
fundarmálinu. Í
raun hafi lögregl-
an þegar skipu-
lagt nýja aðgerða-
áætlun.
Arnar segir að
líkleg áhrif af birt-
ingu gagnanna
séu þau að erfitt verði að sanna eða ná
utan um þræði sem ná til Litháen eða
mögulegra samverkamanna hér á
landi. Líkur á að slíkt takist hafi
minnkað með birtingu á gögnunum.
Hins vegar teljist upplýstir þeir
þættir málsins sem snúi að komu
Vaidas Jucevicius til lands, dauða
hans og meðferðar á líkinu. Þeirri
rannsókn sé þó ekki lokið og enn beð-
ið niðurstaðna úr DNA-greiningum.
Einnig sé búið að ganga frá sýnatök-
um á gólfi íbúðarinnar í Kópavogi
sem Vaidas dvaldi í. Þar hafi parket
verið tekið upp í svefnherbergi hins
látna í gær til að ná betri lífsýnum.
Fyrri sýni hafi ekki reynst nógu góð
til DNA-greiningar og ný sýni verði
send utan.
Vitni hafði samband
Eftir að yfirheyrslur voru birtar í
heild sinni í DV segir Arnar að eitt
þeirra vitna sem þar er nefnt á nafn
hafi sett sig í samband við lögreglu og
lýst áhyggjum sínum af stöðu mála.
Lögreglan hafi rætt við viðkomandi
en ekkert frekar verið gert að svo
stöddu.
Lögregla skipu-
leggur nýja
aðgerðaáætlun
Rannsókn á líkfundarmálinu
Arnar Jensson
AFTURHLUTI bifreiðar fannst
á mánudag á Kópsvatnseyrum í
Hvítá rétt ofan við Flúðir. Að sögn
rannsóknarlögreglumanns við
lögregluembættið á Selfossi er
verið að kanna uppruna bílsins en
taldar eru líkur á að um sé að
ræða bifreið, sem hafnaði í Hvítá
við Brúarhlöð í byrjun ágústmán-
aðar árið 2002. Tveir ungir menn
voru í bílnum, annar bjargaðist
við illan leik en leit að hinum bar
ekki árangur.
Bílflakið er illa farið og var tek-
ið í vörslu sýslumannsins á Sel-
fossi til frekari rannsóknar.
Bílflak fannst í Hvítá