Morgunblaðið - 25.03.2004, Síða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Doug Aitken
Pash Buzari
Steve Christer
Ólafur Elíasson
Gabríela Friðriksdóttir
Elín Hansdóttir
Carsten Höller
Hekla Dögg Jónsdóttir
Jessica Morgan
Hans Ulrich Obrist
Philippe Parreno
Dagur Kári Pétursson
Anri Sala
Edi Rama
Sigurjón Sighvatsson
Þorvaldur Þorsteinsson
á laugardag
Morgunblaðið/RAX
BÆNDUR eru margir hverjir farnir að huga að því að
brenna sinu á túnum og logaði glatt á þessum bæ í
Borgarfirði þegar ljósmyndara bar að garði. Bóndinn
notaði nokkuð nýstárlega aðferð til að hafa stjórn á
eldinum eins og sjá má á myndinni. Rétt er að minna á
að bændur þurfa leyfi sýslumanns til að brenna sinu í
landi sínu, og því af sem áður var þegar heilu héruðin
loguðu og reykurinn lá yfir sveitunum.
Brennir sinu í Borgarfirði
BLAÐAMANNAFÉLAG Íslands hefur ákveðið að veita
árlega blaðamannaverðlaun. Verða þau afhent í fyrsta
sinn á pressuballi á Hótel Borg 21. apríl n.k. Verðlaun
verða veitt í þremur flokkum og fær hver verðlaunahafi
gullpenna, 100 þúsund krónur og viðurkenningarskjal.
Fulltrúar Blaðamannafélagsins kynntu verðlaunin á
blaðamannafundi í gær og segir Róbert Marshall, for-
maður félagsins, að tilgangur þeirra sé að stuðla að
vönduðum vinnubrögðum og hvetja til faglegrar um-
ræðu. Segist hann vona að þessi verðlaunaveiting verði
blaðamönnum hvatning til dáða. Stjórn félagsins hefur
skipað dómnefnd en framvegis verður hún kjörin á aðal-
fundi félagsins. Formaður dómnefndar er Birgir Guð-
mundsson og aðrir eru Elín Pálmadóttir, Elín Alberts-
dóttir, Sigmar Guðmundsson og Lúðvík Geirsson.
Flokkarnir þrír eru besta umfjöllun ársins 2003, rann-
sóknarblaðamennska ársins 2003 og blaðamannaverð-
laun ársins 2003. Birgir segir að undir fyrsta flokkinn,
besta umfjöllun ársins, falli röð frétta og frásagna þar
sem blaðamaður hefur fylgt máli vel eftir og gert flókið
mál aðgengilegt og upplýsandi. Einnig segir hann að
tekið verði til hversu mikilvægt málið sé almannaheill.
Fyrir verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins
segir hann verða horft til rannsóknarvinnu viðkomandi
blaðamanns og sé ætlunin að verðlauna fyrir mál þar
sem hverjum steini sé velt við og metið hversu mikilvægt
það er. Þriðju verðlaunin, blaðamannaverðlaun ársins,
segir hann veitt þeim sem þykir hafa sýnt eftirtektarvert
framtak á sviði fjölmiðlunar.
Óskað er eftir tilnefningum og er hægt að koma þeim
á framfæri á vefsíðunni press.is til 6. apríl.
Blaðamannafélag Íslands hyggst veita árleg blaðamannaverðlaun
Tilgangurinn að stuðla að
vönduðum vinnubrögðum
Morgunblaðið/Ásdís
Arna Schram, varaformaður Blaðamannfélags Íslands,
Birgir Guðmundsson, formaður dómnefndar, og Ró-
bert Marshall, formaður félagsins, kynntu verðlaunin.
FORELDRAR 12 ára barna fengu í
fyrradag sendan heim markpóst frá
Íslandsbanka undir fyrirsögninni
„Má bjóða þér páskaegg?“ Í mark-
póstinum var að finna páskatilboð
frá svokallaðri XY þjónustu bankans
sem ætluð er börnum á aldrinum 12–
16 ára. Í bréfinu, sem stílað var á for-
eldri og barn, var útskýrt hvernig
barnið gæti, með því að sækja um
hraðbankakort og leggja eitt þúsund
krónur inn á kortið, nælt sér í páska-
egg númer 4 frá Nóa Síríusi. Eina
myndefni markpóstsins var mynd af
páskaeggi.
Móðir drengs sem er nýorðinn tólf
ára sagði við Morgunblaðið að henni
þætti bankinn leggjast lágt með
svona markaðssetningu. Kirsten
Rühl, móðir tveggja drengja í Hafn-
arfirði, varð hissa þegar hún fékk
markpóstinn í hendur.
„Það virðist allt gert til að veiða
þessi börn, meira að segja með
páskaeggjum. Mér finnst þetta ósið-
legt. Við neytendur verðum að vera
duglegir við að tala um svona hluti,
annars verður þessi yfirgengni alveg
sjálfsögð.“
Kirsten kveðst hafa sett póstinn
beint í ruslið, enda vildi hún ekki að
sonur sinn læsi hann. Hún segist
telja að fjármálin eigi ekki heima í
litlum höndum og telur ljóst að gylli-
boð bankans miði að því að ná sér í
viðskiptavini. „Mér finnst bankinn
leggjast lágt með þessu,“ segir
Kirsten.
Íslandsbanki býður börnum
páskaegg fyrir viðskipti
Móðir 12 ára drengs telur
bankann leggjast lágt með
slíkri markaðssetningu
JÓN Þórisson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka, segir
að bankinn hafi haft samráð við umboðsmann barna
varðandi markpóst sem sendur er forráðamönnum
barna. „Við höfum lagt áherslu á að þetta sé gert af
ábyrgð. Pósturinn er stílaður á forráðamann og það
er því á hans valdi hvort barnið sér póstinn eða fær
að vita af honum,“ segir Jón. Hann segir að nafn
barnsins hafi einnig komið fram á markpóstinum en
það hafi verið skyggt og í næstu línu fyrir neðan
nafn forráðamanns.
Spurður um ástæður þess að páskaegg hafi verið
í boði segir Jón það vera hluta af því að ná til krakkanna. „Það er stöð-
ugt erfiðara að ná í gegn, ná athygli. Þetta er partur af því. En fólk
ræður því hvort það þiggur boðið eða ekki,“ segir Jón.
Hann segir mikilvægt að fjármálastofnanir taki ábyrgð og veki athygli
ungmenna á mikilvægi sparnaðar. „Okkur finnst að með þessu stuðlum
við að því að þetta fólk umgangist nútímagreiðsluhætti með ábyrgð í
framtíðinni.“
Jón segir að mörkin séu dregin við fjórtán ára aldur varðandi debet-
kort en 12 ára börn geti fengið hraðbankakort. Hann segir að ekki sé
hægt að taka út meira en sem nemur upphæðinni á reikningnum á hrað-
bankakortunum. Yfirdráttarheimildir séu ekki veittar fólki undir 18 ára
aldri.
Partur af því að ná athygli
Jón Þórisson
RIÐA hefur komið upp á bænum
Vatnsleysu í Biskupstungum og þarf
að skera niður allt fé á bænum, um
230 talsins, af þeim sökum. Þetta er í
þriðja skipti sem riða kemur upp í
Biskupstungum í vetur.
Katrín Andrésdóttir, héraðsdýra-
lænir á Suðurlandi, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að tvö riðutilfelli hefðu
komið upp á Vatnsleysu og hefði
greiningin fengist staðfest á föstu-
daginn var. Það þýddi að skera þyrfti
allt fé niður á bænum, um 230 talsins.
Að auki þyrfti að skera niður allt fé,
30–40 kindur, á tveimur nágranna-
bæjum, Vatnsleysu II og Heiði, en
mikill samgangur væri á milli bæj-
anna.
Katrín sagði að þetta væri þriðja
tilfellið af riðu sem komið hefði upp í
héraðinu í vetur. Riða hefði komið
upp rétt eftir áramótin í Vegatungu
og skömmu síðar í Hrosshaga, en bæ-
irnir væru einnig báðir í Biskupstung-
um. Landfræðilega væri stutt á milli
bæjanna og þar af leiðandi töluverður
samgangur fjár bæði heima og á fjalli.
„Ég veit ekkert hvort ég er búin að
finna síðasta bæinn. Ég lofa engu um
það,“ sagði Katrín aðspurð ennfrem-
ur.
Hún sagði að samtals hefðu verið
skornar niður um 200 kindur á þess-
um bæjum og bæjum í næsta ná-
grenni. Ekkert annað ráð væri til við
riðuveikinni en niðurskurður. Að auki
gæti fjárbúskapur á bæjunum ekki
hafist á nýjan leik fyrr en eftir tvö ár
og umfangsmikil sótthreinsun færi
fram í millitíðinni.
Katrín sagði að þetta væri sorglegt
ástand og mikið áfall fyrir þá sem
lentu í þessu og yrðu fyrir niðurskurði
og einnig fyrir þá sem áfram byggju
með fé. Engin leið væri að ráða við
það hvar sjúkdómurinn stingi sér nið-
ur. Meðgöngutími sjúkdómsins væri
mjög langur og engin leið að greina
hann fyrr en kindurnar væru orðnar
veikar.
Þriðja tilfelli
riðu í Biskups-
tungum í vetur
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ hefur
auglýst kjördag vegna forsetakosn-
inga í sumar laugardaginn 26. júní.
Framboð þurfa að hafa borist eigi
síðar en fimm vikum fyrir kjördag
sem er föstudagurinn 21. maí.
Í auglýsingunni kemur fram að
framboðum til forsetakjörs skuli
skila til dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins, ásamt samþykki forseta-
efnis, nægilegri tölu meðmælenda
og vottorðum yfirkjörstjórna um að
þeir séu kosningabærir, eigi síðar
en fimm vikum fyrir kjördag. For-
setaefni þarf að hafa meðmæli
minnst 1.500 kosningabærra
manna, en mest 3.000, og skipast
þeir þannig eftir fjórðungum að úr
Sunnlendingafjórðungi kemur ekki
færri 1.181 meðmælandi og ekki
fleiri en 2.362, úr Vestfirðingafjórð-
ungi ekki færri en 75 en mest 150,
úr Norðlendingafjórðungi ekki
færrri en 178 en mest 355 og úr
Austfirðingafjórðungi minnst 66 en
mest 133.
Forsetakjör
fer fram 26. júní
Framboðs-
frestur renn-
ur út 21. maí