Morgunblaðið - 25.03.2004, Síða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRNENDUR Century Aluminum hafa
um árabil fylgst með áliðnaðinum á Íslandi
og segjast horfa björtum augum á þátttöku
sína í áliðnaði hér með kaupunum á Norður-
áli sem falli vel að rekstri félagsins. Þeir
gera sér vonir um að auka megi fram-
leiðslugetu Norðuráls umfram fyrirhugaða
stækkun í 180 þúsund tonn, sem þeir telja að
eigi að geta gengið hratt og vel fyrir sig, en
taka fram að það velti auðvitað á orku-
framboði og orkuverði.
Þetta kom fram á blaðamannafundi með
Kenneth Peterson, eiganda Columbia Vent-
ures, Craig A. Davies, stjórnarformanni og
forstjóra, og Jack Gates, framleiðslustjóra
Century Aluminum.
Þeir Davies og Gates vildu ekki nefna
ákveðna tölu þegar þeir voru spurðir um
hver æskileg framleiðslugeta Norðuráls
væri að þeirra mati en sögðu greinilega
vera svigrúm til þess að auka hana enn frek-
ar eftir stækkunina í 180 þúsund tonn, al-
geng framleiðslugeta álvera væri 200–300
þúsund tonn þótt vissulega væru reist enn
stærri álver. Kenneth Peterson sagðist sem
fyrr vera opinn fyrir fjárfestingum hér á
landi. Ekkert hafi enn verið ákveðið í þeim
efnum en hann muni skoða fjárfesting-
armöguleika hér.
Þá benti Peterson einnig á að Century Al-
uminum – og þar með Norðurál – væri skráð
á Nasdaq-markaðinn vestra og það kynni að
auka almennan áhuga á fjárfestingum á Ís-
landi.
Kaupin á Norðuráli falla vel
að stefnu Century Aluminum
Craig A. Davies segir kaupin á Norðuráli
falla vel að stefnu Century Aluminum, sem
hafi einbeitt sér að frumframleiðslu á áli og
hafi að undanförnu keypt lítil eða meðalstór
fyrirtæki á því sviði. Þetta séu þó fyrstu
kaupin í álframleiðslu utan Norður-
Ameríku. Bæði Davies og Gates hafa lengi
starfað í álgeiranum og þekkja vel til Ís-
lands og sögðust því ekki hafa þurft að
skoða efnhagsumgjörð eða aðstæður hér
sérstaklega vegna kaupanna. Davies sagði
Century Aluminum hafa rætt við Kenneth
Peterson fyrir nokkrum árum vegna hugs-
anlegs samstarfs sem ekki hafi orðið af á
þeim tíma. Fyrir um hálfu ári hafi Century
Aluminum síðan aftur rætt við Petersen.
Þeim viðræðum hafi síðan lyktað með kaup-
um félagsins á Norðuráli og það horfði nú til
þess að starfa til frambúðar á Íslandi, stað-
setningin væri hentug og allt til staðar hér
sem tryggt geti hagkvæma álframleiðslu.
Svigrúm til frekari
stækkunar Norðuráls
Morgunblaðið/Ásdís
Kenneth Peterson ásamt Jack Gates framleiðslustjóra (t.v.) og Craig A. Davies, stjórnarfor-
manni Century Aluminum, á blaðamannafundi sem þeir héldu í gærmorgun.
ÞORKELL Helgason orkumála-
stjóri sagði á ársfundi Orkustofn-
unar í gær að það væri vandi í
uppsiglingu varðandi keppni orku-
fyrirtækja um auðlindirnar, sam-
anber áhuga þeirra á virkjun í
Skjálfandafljóti og rannsóknarleyfi
í Brennisteinsfjöllum. Hvatti Þor-
kell stjórnmálamenn til að leggja á
ráðin um lausn þessa vanda í tæka
tíð. Einnig taldi Þorkell í ræðu
sinni að það hlyti að mega einfalda
ferlið við að reisa orkuver hér á
landi.
Þorkell vitnaði til nýlegra frétta
um að Orkuveita Reykjavíkur og
Norðurorka bæru sig eftir heimild
til að virkja Skjálfandafljót. Áður
hefðu fleiri en eitt fyrirtæki sóst
eftir rannsóknarleyfi með fyrirheit
um nýtingarleyfi í Brennisteins-
fjöllum. Þorkell sagðist hafa á árs-
fundi Orkustofnunar fyrir sex ár-
um bent á nauðsyn þess að settar
yrðu reglur um útdeilingu á að-
gengi að auðlindum og að þær
yrðu mótaðar áður en keppni hæf-
ist um auðlindirnar.
„Nú sýnist mér
vandinn vera í upp-
siglingu. Það er ekki
hlutverk Orkustofnun-
ar að gera beina til-
lögu um það á hvern
hátt taka megi á þess-
um útdeilingarvanda,
enda um pólitískt við-
fangsefni að ræða.
Hér er fyrst og fremst
verið að vekja athygli
á viðfangsefninu og
hvetja stjórnmála-
menn til að leggja á
ráðin um lausn þess í
tæka tíð þannig að
markaðsvæðingu raf-
orkubúskaparins fylgi ekki sama
óvissan og deilurnar sem verið
hafa um langa hríð um aðganginn
að fiskimiðunum,“ sagði Þorkell.
Orkumálastjóri rifjaði upp það
sem kom fram nýlega á ráðstefnu
Samorku um stefnumótun í orku-
málum að það kallaði á annan tug
leyfa hjá hinum ýmsu aðilum til að
reisa og reka orkuver. Þorkell
sagði að þetta hlyti
að mega einfalda. Til
dæmis mætti hugsa
sér að fyrirtækin
legðu fram eina heil-
steypta umsókn um
þau leyfi sem heyra
undir ríkið og gætu
gert það á einum
stað. Það væri síðan
ríkisins að miðla
gögnunum til hinna
einstöku leyfis- og
umsagnaraðila. Varp-
aði Þorkell fram
þeirri hugmynd til
umhugsunar að Orku-
stofnun gæti tekið við
þessum umsóknum líkt og syst-
urstofnun hennar í Noregi gerði.
Hins vegar mætti eflaust sjá á
þessari hugmynd einhverja fram-
kvæmdaörðugleika.
Álið gæti vikið fyrir vetni og
útflutningi um sæstreng
Í ræðu sinni vék Þorkell að end-
ingu að nýtingu orkunnar í fram-
tíðinni. Ef vilji væri fyrir því að
efla þjóðarhag með beislun orku-
lindanna yrði að flytja raforkuna
út beint eða óbeint, eða að auka
innanlandsmarkaðinn með sérstök-
um hætti. Nýtingarkostirnir væru
orkufrekur iðnaður og þá einkum
álver, framleiðsla á gervieldsneyti
eins og vetni og beinn útflutningur
um sæstreng. Þorkell sagði að enn
væru sjávarafurðir hornsteinninn í
vöruútflutningi en álið væri að
sækja í sig veðrið og allt stefndi í
að álútflutningur yrði jafnoki sjáv-
arafurða innan áratugar. Þorkell
sagði að til lengri tíma litið gæti
álvinnslan hins vegar vikið fyrir
öðru til að gefa rúm fyrir eldsneyt-
isframleiðslu eða beinum útflutn-
ingi. Undir lok þessarar aldar taldi
hann þó að hvergi nærri yrði búið
að fullnýta orkukostina. Árið 2100
gæti nýtingin verið komin í 35
teravattstundir á ári, af um 50
teravattstundum sem talin er vera
hámarksorkugeta hér á landi.
Notkunin í dag er um 8,5 teravatt-
stundir á ári.
Þorkell Helgason orkumálastjóri á ársfundi Orkustofnunar
Vandi í uppsiglingu vegna
keppni um auðlindirnar
Þorkell Helgason
GYLFI Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands Ís-
lands, segir afstöðu íslenskra
stjórnvalda um að lögtaka ekki til-
skipun Evrópusambandsins um
jafnan rétt til atvinnu, frá árinu
2000, veikja samninginn um Evr-
ópska efnahagssvæðið og skapa
ójafnvægi í löggjöf ríkja Evrópu.
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingar, vakti máls á þessu í fyr-
irspurnatíma á Alþingi fyrir
skemmstu og sagði Íslendinga
hafa lagt lykkju á leið sína til að
varna því að tilskipunin yrði tekin
upp í samningnum.
Félagsmálaráðherra hefur bent
á að ekki sé einhugur um að um-
rædd tilskipun sé ein þeirra sem
Íslendingum beri samkvæmt EES-
samningnum að festa í lög. „Ég er
hins vegar þeirrar skoðunar að
það sé full ástæða til að fara yfir
þessa tilskipun og fella mörg meg-
inatriði hennar inn í okkar lög,“
sagði ráðherra á Alþingi fyrir
skemmstu.
Tengsl við aukna
örorkutíðni
Gylfi segir mikilvægt að treysta
réttarstöðu fatlaðra og annarra
jaðarhópa með því að lögfesta um-
rædda tilskipun sem átti að taka
gildi í síðasta lagi 2. desember sl.
Með henni sé verið að leiða í gildi
lágmarksreglur til að koma í veg
fyrir að fólki sé mismunað á
grundvelli trúarbragða, skoðana,
fötlunar, aldurs eða kynhneigðar.
Samkvæmt tilskipuninni er að
hluta tekin upp öfug sönnunar-
byrði í þá veru að telji einstakling-
ur að á sér hafi verið brotið verður
atvinnurekandinn að sýna fram á
að reglan um jafna meðhöndlun
hafi ekki verið brotin.
„Það er ljóst að afstaða ís-
lenskra stjórnvalda hefur verið sú
að standa gegn því að þessi til-
skipun verði innleidd. Að okkar
mati hefur í því sambandi verið
beitt lagatæknilegum forsendum
um að það sé ekki skylda að inn-
leiða tilskipunina sem byggist á
reglum sem verði til eftir gild-
istöku EES-samningsins.“
Gylfi bendir á að fólk fari æ fyrr
á eftirlaun, fólk með skerta starfs-
orku fái í mörgum tilvikum ekki
atvinnu og eftir að hafa verið lengi
á atvinnuleysisbótum sé því í raun
„ýtt út í örorku“. Samband sé á
milli þess að fólk sé þvingað út af
vinnumarkaðnum og aukinnar ör-
orkutíðni.
„Það eru mikil vonbrigði fyrir
okkur að það eigi að undanskilja
þennan þátt og að jaðarhópar njóti
ekki þeirrar réttarbótar sem Evr-
ópska efnahagssvæðið er að veita
okkur að öðru leyti,“ segir Gylfi
Arnbjörnsson.
Að sögn Gylfa hafa norsk stjórn-
völd ákveðið að innleiða tilskip-
unina.
Tilskipun ESB um jafnan rétt til atvinnu átti að innleiða í lok árs í fyrra
Afstaða stjórnvalda
veikir EES-samninginn MAGNÚS Norðdahl, deildarstjórilögfræðideildar AlþýðusambandsÍslands, kynnti í gær nýútkomið rit
með viðmiðunarreglum Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar, ILO, um
málefni fatlaðra á vinnustað undir
heitinu Fötlunarstjórnun á vinnu-
stað.
Í reglunum eru reifaðar meg-
inskyldur atvinnurekenda og settar
fram viðmiðunarreglur til leiðbein-
ingar fyrir atvinnurekendur sem
eiga að auðvelda þeim að taka upp
aðgerðaáætlanir um hvernig skuli
tekið á málefnum fatlaðra á vinnu-
stöðum. Reglurnar eru ekki laga-
lega bindandi. „Þetta eru almennar
leiðbeiningareglur um það sem við
getum oft á tíðum sagt að sé heil-
brigð skynsemi ef menn beita já-
kvæðri hugsun til þess að nálgast
atvinnumál fatlaðra.“
Unnið er að því að koma
bæklingnum í dreifingu.
Viðmiðunarreglur um
málefni fatlaðra
á vinnustöðum
Komnar út
á íslensku
ÞRÍR nýir menn voru kjörnir
í stjórn Bensínorkunnar á að-
alfundi fyrirtækisins í gær.
Bensínorkan er að meirihluta
í eigu Skeljungs, sem Pálmi
Haraldsson keypti nýverið,
og aðrir eigendur eru félög á
vegum bræðranna Sigurðar
Gísla og Jóns Pálmasona.
Nýir í stjórn voru kjörnir
Gunnar Karl Guðmundsson,
forstjóri Skeljungs, Pálmi
Haraldsson og Einar Þór
Sveinsson, en Óskar Magn-
ússon var endurkjörinn í
stjórnina.
Gunnar Skaftason, fram-
kvæmdastjóri Bensínorkunn-
ar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að reksturinn hefði
gengið þokkalega í fyrra.
Fyrirtækið, sem væri á sínu
níunda starfsári, hefði alltaf
verið rekið með hagnaði.
Hann sagði tvo starfsmenn í
föstu starfi hjá félaginu, auk
þess sem notast væri við
verktaka, en bensínstöðvar
þess eru tíu.
Þrír nýir
í stjórn
Bensín-
orkunnar