Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 11
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
Ný sending
af Lloyd og LXL herraskóm
30% afsláttur
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær rúmlega fertugan
karlmann í 2 mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og 13,4 milljóna
króna sekt fyrir brot á lögum um
virðisaukaskatt og staðgreiðslu
opinberra gjalda.
Ákærði var stjórnarmaður í
einkahlutafélagi sem úrskurðað
var gjaldþrota árið 2002 og var
ákærður fyrir að standa ekki skil
á tæplega 7 milljónum króna.
Málið dæmdi Finnbogi H. Alex-
andersson héraðsdómari. Málið
sótti Helgi Magnús Gunnarsson
fulltrúi ríkislögreglustjóra.
Tveggja mánaða
fangelsi fyrir skattsvik
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær þrjá fiskútflytjendur í
6 milljóna króna sekt fyrir brot
gegn tollalögum og almennum
hegningarlögum með því að hafa
sammælst um að flytja út sjávaraf-
urðir til fimm landa Evrópusam-
bandsins sem um íslenskar væri að
ræða.
Málið var höfðað af efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra og
snerist um samtals 803,1 tonn af
þorskafurðum sem unnar voru hjá
fiskvinnslufyrirtækinu Sæunni Ax-
els á Ólafsfirði og fluttar voru út af
inn- og útflutningsfyrirtækinu Va-
leik í 76 sendingum út til Spánar,
Ítalíu, Danmerkur, Frakklands og
Grikklands á árunum 1998 og 1999.
Dómurinn komst að þeirri nið-
urstöðu að fyrirsvarsmenn fyrir-
tækjanna hefðu sammælst um út-
flutninginn og að gefa út rangar
yfirlýsingar um að varan væri af
íslenskum uppruna á vörureikning-
um og útflutningsskýrslum, sem
afhentar voru Tollstjóranum í
Reykjavík og Sýslumanninum á
Akureyri.
Afurðirnar vann Sæunn Axels úr
hráefni sem Valeik flutti inn frosið
og veitt hafði verið við Alaska og
Rússland af erlendum fiskiskipum.
Vegna yfirlýsinga um að þær væru
íslenskar nutu afurðirnar tollfríð-
inda við innflutning til ESB.
Í ákæru segir að með þessu hafi
verið komið í veg fyrir að greiða
þyrfti tolla af afurðunum við inn-
flutning sem að lágmarki nam um
56,9 milljónum króna.
Leitaði dómurinn til dómstóls
EFTA um túlkun á álitaefnum
varðandi upprunareglur þorskaf-
urðanna og byggir héraðsdómur á
þeirri niðurstöðu sem var á þann
veg að þíðun, hausun, flökun, bein-
hreinsun, snyrting, söltun og pökk-
un á heilfrystum fiski, sem fluttur
var inn á EES-svæðið, gæti ekki
talist nægileg aðvinnsla í skilningi
bókunar fjögur í EES-samningum
til þess að varan geti talist upp-
runnin á EES.
Ekki fullframið blekking-
arbrot hjá ákærðu
Ákærðu neituðu sök og kröfðust
sýknu vegna þess að þeir bæru
ekki refsiábyrgð. Einnig lögðu þeir
þunga áhersla á að yrðu þeir
fundnir sekir væri um afsakanlega
lögvillu að tefla hjá þeim. Báru
þeir fyrir sig óvissu varðandi upp-
runareglur og aðvinnslu afurð-
anna.
Dómurinn taldi varhugavert að
telja að tilgangurinn með útgáfu
rangra útflutningsskjala hafi verið
að blekkja í lögskiptum. Lét dóm-
urinn mennina njóta þess vafa sem
leikið hefði á því hvort umræddar
sjávarafurðir teldust vera af ís-
lenskum uppruna og komst að
þeirri niðurstöðu að ekki hefði ver-
ið leidd fyrir því lögfull sönnun að
fullframið blekkingarbrot í merk-
ingu 158. gr. almennra hegning-
arlaga hafi átt sér stað. Um gá-
leysisbrot hafi verið að ræða og
hafi mennirnir ekkert hagnast per-
sónulega á því.
Dómurinn segir að í málinu
verði að telja að um miklar sakir
hafi verið að ræða þegar horft
væri til hinna miklu hagsmuna sem
í húfi voru, en aftur á móti hefur
verið litið svo á að um gáleysisbrot
hafi verið að ræða. Af þeim sökum
var talið að brot ákærðu varði þá
sektum en ekki fangelsi að auki.
Málið dæmdi Sveinn Sigurkarls-
son héraðsdómari. Verjendur
ákærðu voru Rúna Soffía Geirs-
dóttir Hansen hdl., Magnús Thor-
oddsen hrl., og Lárentíus Krist-
jánsson hdl. Málið sótti Helgi
Magnús Gunnarsson fulltrúi rík-
islögreglustjóra.
Þrír menn dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness í 6 milljóna
króna sekt fyrir að flytja út Rússaþorsk sem íslenskan
Gáfu út rangar yfirlýsing-
ar um uppruna afurðanna
ÁRNI Magnússon félagsmálaráð-
herra opnaði í gær nýja hæfing-
arstöð að Dalvegi 18 í Kópavogi.
Þar er gert ráð fyrir að þjónusta
37 fatlaða einstaklinga, en hæfing
og félagsleg þjónusta miða að því
að auka hæfni fatlaðra til starfa
og til þátttöku í daglegu lífi.
Opnun stöðvarinnar býður upp
á möguleika til aukinnar sérhæf-
ingar í þeirri þjónustu sem veitt
verður þar, segir Sigríður Krist-
jánsdóttir, framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra
á Reykjanesi. „Til dæmis not-
uðum við tækifærið og end-
urskipulögðum alla starfsemi
okkar í hæfingastöðinni í Fann-
borg, sem er einnig í Kópavogi.
Þar er lögð áhersla á að bjóða
einhverfum og ungu fólki upp á
hæfingu og starfsþjálfum,“ segir
Sigríður.
„Frábær aðstaða“
Á Dalveginum verða aftur á
móti frekar eldri þjónustunot-
endur sem þurfa einstaklingsmið-
aðri þjónustu, en einnig sérhæfir
nýja stöðin sig í mikið fötluðum
einstaklingum. Í nýju hæf-
ingastöðinni eru sjö rými til að
mæta sértækum þörfum, fimm
hóprými og tvö einstaklingsrými.
„Þetta er alveg frábær aðstaða,
og það sem er merkilegt við
þessa hæfingarstöð er að verkefn-
isstjórnin kom að allri hönnun
ásamt eiganda og þeim sem hann-
aði húsnæðið. Við vorum í und-
irbúningsferlinu, bæði efnisvali,
uppskiptingu hússins og fleiru,“
segir Sigríður Kristjánsdóttir
framkvæmdastjóri um hina nýju
aðstöðu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árni Magnússon félagsmálaráðherra opnaði miðstöðina í Kópavogi í gær og afhenti lykla.
Ný hæfingarstöð í Kópavogi
FLUGFÉLAG Íslands hefur ákveð-
ið að bjóða áætlunarflug til Kangerl-
ussuaq, eða Syðri Straumfjarðar, á
vesturströnd Grænlands. Er flugið í
samvinnu við ferðaheildsalana Katla
DMI, Troll Tours og Thomas Cook.
Flogið verður tvisvar í viku, á
mánudögum frá Reykjavík með
Fokker 50-vélum og á fimmtudögum
frá Keflavík með þýska flugfélaginu
Aeroflight á Airbus 320-þotum.
Hefjast ferðirnar upp úr miðjum júní
og standa fram yfir miðjan ágúst.
Fargjaldið er báðar leiðir 49.900 kr.
með sköttum. Hægt er að fara aðra
leiðina með Flugfélagi Íslands en
hina með þýska félaginu. Flugtíminn
með Fokker er rúmir þrír tímar en
rúmir tveir með Airbus.
Skrifað var undir samstarfssamn-
ing um flugið í gær og segja forráða-
menn Flugfélags Íslands að þetta
nýja áætlunarflug opni ýmsa mögu-
leika á að tengja saman ferðalög er-
lendra ferðamanna til Íslands og
Grænlands. Einnig sé þessi leið mik-
ilvæg Íslendingum og Grænlending-
um.
Kangerlussuaq er í um 25 km fjar-
lægð frá jökulröndinni og ýmis af-
þreying er í boði, m.a. bátsferðir um
Syðri Straumfjörð sem er einn
lengsti fjörður Grænlands. Þá segja
þeir góða tengimöguleika frá Kang-
erlussuaq til flestra staða á vestur-
strönd Grænlands og þýska ferða-
skrifstofan Troll Tours hefur sett
upp leiguflug til Ilulissat eða Jakobs-
havn, í tengslum við komu vélanna
frá Íslandi.
Sveigjanleiki í ferðum
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Flug-
félags Íslands, segir að með samn-
ingum við ferðaheildsalana hafi
Flugfélagið selt þeim ákveðinn sæta-
fjölda í hverri ferð en félagið selji
síðan sjálft afganginn. Með þann
grunn hafi verið ákveðið að hefja
flugið og kveðst hann ekki í vafa um
að áhugi sé á þessum ferðamögu-
leika. Bendir hann á þann sveigjan-
leika að geta farið í þriggja, fjögurra
eða sjö daga ferðir með því að nýta
sér ferðirnar með öðru félaginu aðra
leiðina og hinu til baka.
Samið um Græn-
landsflug í sumar
Morgunblaðið/Ásdís
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Flugfélags Íslands (lengst til hægri), Michael
Ricken, frá Troll Tours, og Andreas Lutze, frá Thomas Cook.
LÖGREGLAN í Keflavík stöðvaði í
gærmorgun 17 ára ökumann á Garð-
vegi í Leiru á 149 kílómetra hraða.
Á þessum stað er 90 kílómetra há-
markshraði og má pilturinn búast
við því að missa ökuskírteinið í einn
mánuð og þurfa að greiða 50 þúsund
krónur í sekt og fá að auki 4 punkta í
ökuferilsskrá.
Tekinn á 149
km hraða