Morgunblaðið - 25.03.2004, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 25.03.2004, Qupperneq 16
ERLENT 16 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, fer til Líbýu í dag þar sem hann mun eiga fund með Moammar Gaddafi, leið- toga lands- ins. Þykir þetta sýna vel bætt samskipti Líbýu við vestræn ríki eftir að Gaddafi ákvað að hætta öllum áformum um smíði gereyðingarvopna og taka upp fullt samstarf við Alþjóðakjarnorkumálastofnun- ina. Háttsettur, breskur emb- ættismaður, sem var með Blair við minningarathöfnina í Madríd um fórnarlömb hryðju- verkanna þar, sagði, að ferðin væri farin í virðingar- og þakk- lætisskyni fyrir ákvörðun Gaddafis. Michael Howard, leiðtogi Íhaldsflokksins, gagn- rýndi í gær, að Blair skyldi ætla að fara beint frá minning- arathöfninni í Madríd til Líb- ýu, sem hefði borið ábyrgð á mesta hryðjuverkinu í Evrópu, örlögum Pan Am-þotunnar, sem sprakk yfir Lockerbie í Skotlandi. Fórust þá 270 manns. Konur varað- ar við víni KOMIÐ hefur í ljós við rann- sóknir, að áfengisneysla eykur verulega líkur á því, að konur fái brjóstakrabbamein. Með það í huga hafa heilbrigðisyf- irvöld í Danmörku ráðlagt konum að drekka aldrei meira en sem svarar til 14 vín- skammta eða sjússa á viku. Sumir danskir krabbameins- sérfræðingar og danskt krabbameinsfélag telja hins vegar, að þessi skammtur sé allt of mikill og benda á, að rannsókn á 30.000 dönskum konum hafi sýnt, að hver ein- asti sjúss auki líkurnar á brjóstakrabbameini. Segir Anne Tjønneland, vísindamað- ur hjá krabbameinsfélaginu, að í meira en 5% tilfella sé beint samband á milli áfeng- isneyslu og brjóstakrabba- meins. Gagnrýnir hún heil- brigðisyfirvöld harðlega fyrir fyrrnefnda ráðleggingu. Offita ógnar börnunum HÆTTA er á að offita geri að engu það sem áunnist hefur í baráttunni fyrir betra heilsu- fari bandarískra barna síðustu 30 árin. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu en í henni segir, að 2002 hafi 15,6% barna á aldrinum 12 til 19 þjáðst af of- fitu. Margt annað hefur hins vegar batnað. Þetta ár mátti búast við, að 44,4 börn af 1.000 yrðu fyrir alvarlegu ofbeldi en 77,5 árið 1974. Þá hefur neysla eiturlyfja minnkað verulega frá 1978. Eitt helsta áhyggju- efnið hvað varðar velferð barna er atvinnuleysið en í tíð núverandi stjórnar hafa 2,2 milljónir manna misst vinnuna. STUTT Blair til fundar við Gaddafi Tony Blair NÝR æðsti leiðtogi Hamas-samtaka Palestínumanna, Khaled Meshaal, kveðst vilja að Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, verði ráðinn af dögum í hefndarskyni fyrir dráp Ísraela á Ahmed Yassin, stofnanda og andlegum leiðtoga Hamas, á mánudaginn. „Það er eðlilegt að óvininum sé svarað á þann hátt sem jafngildir glæp hans,“ sagði Meshaal í viðtali við arabíska dagblaðið al-Hayat í gær. Hann sagði ennfremur að ákvörðun um að drepa Sharon yrði einungis tekin af forystusveit vopn- aða arms Hamas. Nýr yfirmaður Hamas á Gaza- svæðinu, Abdelaziz Rantissi, útilok- aði í gær að samið yrði um vopnahlé við Ísraela fyrr en þeir létti hersetu sinni af landsvæðum Palestínu- manna. Rantissi var á þriðjudag út- nefndur eftirmaður Yassins sem leiðtogi Hamas á Gaza. Rantissi reyndi ennfremur að slá á ótta við að Hamas myndu beina spjótum sínum að bandarískum skotmörkum. „Það er heimskulegt að hafa áhyggjur af því, við höfum margoft sagt, að við munum ein- ungis ráðast gegn óvini okkar, ísr- aelska hersetuliðinu,“ sagði Rantssi. Bandarísk stjórnvöld hafa varað borgara sína við því að fara til Gazasvæðisins og fresta ferðum til Ísrael og palestínsku heimastjórn- arsvæðanna. Þegar George W. Bush Bandaríkjaforseti var spurður álits á drápinu á Yassin sagði hann: „Ísraelar eiga rétt á að verja sig fyrir hryðjuverkum.“ Þrátt fyrir alþjóðlega fordæm- ingu á drápinu á Yassin, sem var háaldraður og bundinn við hjólastól, hafa Ísraelar lýst því yfir að þeir ætli að halda áfram uppteknum hætti og þurrka út alla forystusveit Hamas. Ísraelska útvarpið sagði að varnarmálaráðherra landsins, Shaul Mofaz, hefði ráðgast við háttsetta öryggisráðgjafa og ákveðið að Rant- issi væri réttdræpur og lýst hann „hernaðarlega mikilvægasta óvin- inn“.                                                                  ! " #$ " %  "      " #$%%&   '( ) &' (  "   (            $ ( )                     '  $                     !" #$    %   $ # #       '  (    #)     %   *    #  '   $*#   )  ' + #*  ( , "* * +   * + , Gazaborg. AFP. Ariel Sharon verði ráðinn af dögum ABDEL Aziz al-Rantissi, sem orðinn er leiðtogi Hamas á Gaza-svæðinu, er einn einarðasti andstæðingur frið- arsamninga við Ísrael. Hann hefur sagt sjálfsmorðs- sprengjutilræði Palestínumanna gegn óbreyttum borg- urum í Ísrael réttlætanleg því að þau séu svör við hryðjuverkum Ísraela. Rantissi fæddist 1947 og er barnalæknir að mennt. Á námsárum sínum í Egyptalandi á áttunda áratugnum komst hann í kynni við Bræðralag múslíma, íslömsk út- lagasamtök. Hann komst til metorða innan Hamas í fyrri uppreisn Palest- ínumanna, intifata, gegn hersetu Ísraela á níunda og tíunda áratugnum. Hann hefur ítrekað gagnrýnt heimastjórn Palestínumanna fyrir að vilja miðla málum við Ísraela. Palestínska lögreglan handtók hann 1998 eftir að hann krafðist afsagnar nokkurra háttsettra manna í heimastjórn- inni. Rantissi Abdel-Aziz al-Rantissi KHALED Meshaal, sem hefur aðsetur í Damaskus, tók við sem leiðtogi Hamas-samtakanna eftir að Ísraelar drápu andlegan leiðtoga og stofnanda þeirra, Ahmed Yassin. Meshaal er um leið æðsti stjórnandi aðgerða samtakanna. Meshaal varð áberandi innan Hamas eftir að Írakar réðust inn í Kúveit 1990, en hann var þá leiðtogi Kúv- eitdeildar samtakanna og fór fyrir Palestínumönnum sem bjuggu og störfuðu í landinu. Hann kenndi um tíma eðl- isfræði í kúveitskum skólum. Eftir innrás Íraka fluttist hann til Jórdaníu, líkt og margir Palestínumenn, en þeir eru um 60% af íbúum landsins. Meshaal hafði yfirumsjón með fjár- söfnun fyrir Hamas á alþjóðavettvangi, en farið er með peningana til Vest- urbakkans og Gazasvæðisins og þeir notaðir til að standa straum af velferð- aráætlun samtakanna, en fullyrt er að eitthvað af peningunum hafi farið í að kosta sjálfsmorðssprengjutilræði. Meshaal Khaled Meshaal YFIRVÖLD samkeppnismála í Evrópusambandinu, ESB, sektuðu í gær bandaríska hugbúnaðarfyr- irtækið Microsoft um hálfan millj- arð evra, nærri 44 milljarða ísl. kr., fyrir að hafa misnotað raun- verulega einokunaraðstöðu sína á einkatölvumarkaðinum. Úrskurðurinn, sem getur haft í för með sér miklar breytingar á Windows-stýrikerfinu, gengur miklu lengra en það samkomulag, sem Microsoft gerði við sam- keppnisyfirvöld í Bandaríkjunum. Brást Microsoft við úrskurðinum með því að lýsa yfir, að hann væri „áfall fyrir allan iðnaðinn“ og kvaðst mundu áfrýja honum til Evrópudómstólsins. Mario Monti, sem fer með sam- keppnismál í framkvæmdastjórn ESB, kynnti úrskurðinn í Brussel í gær en rannsóknin á viðskipta- háttum Microsoft hefur staðið í fimm ár. Gaf hann jafnframt fyr- irtækinu 90 daga frest til að koma með á markað í Evrópu nýja út- gáfu af Windows, sem væri ekki með Media Player-forritið fyrir hljóð- og myndskrár, og 120 daga frest til að veita upplýsingar, sem gera öðrum fyrirtækjum kleift að famleiða vefþjóna, sem geta unnið með Windows. „Niðurstaðan er sú, að Microsoft hafi misnotað raunverulega einok- unaraðstöðu sína evrópskum einkatölvumarkaði,“ sagði Monti. Brad Smith, aðstoðarforstjóri og aðallögfræðingur Microsoft, sagði, að það myndi hafa alvarleg áhrif á Windows að fjarlægja Media Pla- yer og valda því, að kaupendur fengju minna fyrir peningana sína. Þeir, sem gagnrýnt hafa Micro- soft, segja, að í raun hafi fyr- irtækið stundað það að stela tækninýjungum frá öðrum fyrir- tækjum með því að búa þær í sinn eigin búning og tengja þær Wind- ows. Í úrskurðinum segir, að þessi háttur „kæfi nýjungar og valdi því, að neytendur eigi færri kosta völ en ella“. Þá segir, að Microsoft hafi neitað Sun Microsystems og öðrum fyrirtækjum um upplýsing- ar, sem hefðu gert þeim kleift að framleiða vefþjóna, sem unnið geta með Windows. Gagnrýnendur Microsoft fagna Talsmaður Sun Microsystems sagði í gær, að fyrirskipun ESB um að Microsoft skuli veita upp- lýsingar um forritaskil vefþjóna væri „óhemju mikilvæg“ og í sama streng tók talsmaður RealNet- works Sektin, sem Microsoft á að greiða, er sú hæst, sem ákveðin hefur verið innan ESB. Fyrir þremur árum var svissneski lyfja- risinn Hoffman-Laroche sektaður um rúmlega 40 milljarða ísl. kr. Microsoft hefur þó líklega minnst- ar áhyggjur af sektinni því að það á í handraðanum nærri 3.800 millj- arða ísl. kr. Microsoft sektað fyrir einokun á Evrópumarkaði Skipað að skilja að Media Player-forritið og Windows- stýrikerfið og veita upplýsingar um forritaskil vefþjóna Brussel. AFP. Mario Monti ANDERS Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, einn af staðföstustu stuðningsmönnum Bandaríkjanna í Íraksstríðinu, sagði í gær, að hann væri hlynnt- ur fyrirbyggjandi árásum, með eða án samþykkis Sameinuðu þjóð- anna. „Þegar okkur er ógnað af hryðjuverka- mönnum og gereyðingarvopnum, get- um við ekki leyft okkur að bíða end- anlegra sannana áður en við ráðumst til atlögu,“ sagði Rasmussen er danska þingið hóf í gær opna umræðu um Íraksstríðið og þátttöku Dana í því. Vitnaði hann í 51. grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna og sagði, að öll ríki hefðu rétt til að verjast þegar á þau hefði verið ráðist og einnig þegar árás á þau væri yfirvofandi. „Undir þeim kringumstæðum get- ur verið rétt, að einstök ríki taki málin í sínar hendur og hefji hernað til að verja eigin borgara,“ sagði Rasmus- sen og benti á, að NATO hefði ráðist á Kosovo þegar öryggisráð SÞ hefði verið ófært um að taka ákvörðun. Rasmussen varði þátttöku Dana í Íraksstríðinu og sagði, að Saddam Hussein hefði neitað að fara eftir ályktunum SÞ og gereyðingarvopna- hættan hefði ógnað friði og öryggi. Styður fyrirbyggj- andi árásir Kaupmannahöfn. AFP. Anders Fogh Rasmussen
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.