Morgunblaðið - 25.03.2004, Page 20

Morgunblaðið - 25.03.2004, Page 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Ánægja með frumvarpið | Stjórn Ey- þings, samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum hefur lýst yfir ánægju með að frumvarp til laga um verndun Mý- vatns og Laxár hafi verið lagt fram á Al- þingi, en um það var fjallað á síðsta fundi stjórnarinnar. Stjórnin telur að umdeilt bráðabirgðaákvæði III megi ekki koma í veg fyrir framgang frumvarpsins „og því geti reynst nauðsynlegt að fella það út náist ekki samkomulag um málið í tíma. Stjórnin telur bráðabirgðaákvæðið engu að síður mikilvægt því miklir hagsmunir eru í húfi. Sá möguleiki er fyrir hendi að breyta lög- unum síðar náist samkomulag svo hægt verði að framkvæma umhverfismat,“ segir í bókun frá fundi stjórnar Eyþings. Spænskir dagar verðaá Akureyri umhelgina, dagana 26. og 27. mars. Minerva Igl- esias Garcia frá Kramhús- inu ætlar þá að kenna Norðlendingum flamenco- dans. Kennslan fer fram í Vaxtarræktinni og er fyrir alla aldurshópa, en sér- stakur hópur verður fyrir stúlkur á aldrinum 7 til 9 ára. Um helgina verða líka spænskur matur í boði á veitingahúsinu Friðriki V við Strandgötu og boðið verður upp á dagskrá við borðhaldið. Kaffi Ak- ureyri, sem er í sama húsi og Friðrik V, verður svo með spænska stemningu á laugardagskvöld, 27. mars; Mínerva sýnir þá flamingó dans og boðið verður upp á tískusýningu frá Frúnni í Hamborg þar sem vor- og sumartískan verður sýnd. Spænskir dagar Sandgerði | Tuttugu ára afmæli leikskólans Sól- borgar í Sandgerði var haldið hátíðlegt síðastlið- inn mánudag. Börnunum og gestum var meðal ann- ars boðið upp á tertu. Leikskólin var opnaður 22. mars 1984 í eldra hús- næði en viðbygging við það var tekin í notkun á afmælisdegi skólans fyrir tveimur árum. Nú eru níutíu börn á leikskól- anum, þar af 34 í heils- dagsvistun. Þar eru nú fimmtán börn frá átta þjóðlöndum, utan Íslands. Þrjár deildir eru í skól- anum, Kópadeild, Kuð- ungadeild og Fiskadeild. Starfsmenn eru tuttugu. Jórunn Guðmundsdóttir er leikskólastjóri. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Afmæli á Sólborg Stefán S. Kristinssoná Reyðarfirði yrkirsvo í orðastað manns, sem ekki var al- veg sáttur við hlutskipti sitt í tilverunni: Allt er nú fyrir mér fipað, festur við gamla norn. Svo er mér skákað og skipað og skammaður út í horn. Stefán yrkir einnig um tilurð manns: Athöfn gerðist furðu frjáls fyrir neðan mitti. Þetta er víst mergur máls: Maður skaut og hitti. Loks yrkir Stefán um of- drykkjumanninn: Sýnist marga hildi heyja, heimskum er það jafnan tamt. Rembist við að reyna að deyja, en ræður ekki við það samt. Helgi Seljan fylgist með framgöngu Ástþórs Magnússonar, sem ætlar í forsetaframboð: Jólasveinn í framboð fer við friðartölvur laginn. Vill á tróninn tylla sér tómatsósugæinn. Mergur máls pebl@mbl.is setningu og leikstjórn en einn- ig hönnuðu þau og útbjuggu búningana sjálf með aðstoð annars þeirra, Grétu B. Jó- hannesdóttur, sem jafnframt kennir þeim hönnun. Batiklitun á hippamussum, saumaskapur og sköpunargleði var því stór hluti af undirbúningi sýning- arinnar. Heimsmálefnin stríð og friður virtust þeim ofarlega í huga en í prentaðri leikskrá þeirra var stutt ágrip um Þórshöfn | Mikil vinna og und- irbúningur var að baki þegar nemendur eldri deildar Grunn- skólans á Þórshöfn sýndu söng- leikinn „Hárið“ í leikgerð Balt- asar Kormáks. Húsfyllir var á fyrstu sýningu og fögnuðu áhorfendur þessum ungu og áhugasömu leikendum ákaft en kraftur og leikgleði einkenndu sýninguna. Unglingarnir fengu aðstoð tveggja kennara sinna við upp- helstu staðreyndir Víetnam- stríðsins. Í hléi var kaffisala en stór hluti af ágóða sýningarinnar fer í kostnað vegna heimsóknar danskra nemenda úr vinaskóla í Assens sem eru væntanlegir í apríl. Önnur sýning á Hárinu verð- ur í kvöld, fimmtudaginn 25. mars og vonast aðstandendur sýningarinnar til að sjá sem flesta. Morgunblaðið/Líney Sýna söngleikinn „Hárið“ Leiklist Unga fólkið hefur haft í mörgu að snúast síðustu vikur við búningahönnun, saumaskap o.fl. VIÐGERÐ er hafin á Baldvini Þorsteins- syni í Noregi en skipið var tekið í slipp rétt sunnan við Álasund síðla dags á mánudag. Sjö menn úr áhöfn Baldvins fór til Noregs með skipinu og voru flestir þeirra væntan- legir heim í gær. Ekki liggur fyrir hversu langan tíma viðgerðin mun taka né hver heildarkostnaður vegna hennar verður enda heildarskoðun á botni skipsins ekki endanlega lokið. Svipað tjón og við höfðum ímyndað okkur Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, sagði í samtali við Morgunblaði frá Noregi, að botn skipsins sé svolítið lask- aður en endanlegri skoðun á því sé þó ekki lokið en ekki séu þó neinar stórar dældir á skrokk skipsins. „Þetta eru svona minni dældir og það þarf að skipta um nokkrar plötur. Skrúfan er heil en stýrið er skemmt og það þarf að gera við það. Vélin er í lagi en það þarf að skipta um kúplingsdiskana í gírnum. Ég myndi orða að þetta sé svipað og við höfðum ímyndað okkur, við vorum náttúrulega búnir að láta kafara skoða und- ir skipið,“ segir Kristján. Spurður um skemmdir á öðrum búnaði í Baldvini segir Kristján hann að mestu vera heilan. „Það eru nokkrar dælur sem hefur farið sandur í og það þarf að skipta um þétt- ingar og legur í þeim og hreinsa út kæla.“ Kristján segir að gengið hafi verið að til- boði í umræddum slipp rétt sunnan við Ála- sund og þá í einingaverð á þeim hluta við- gerðanna sem hafi verið þekktir. Kristján segist ekki treysta sér til áætla hversu langan tíma viðgerðin muni taka þar sem eftir sé að fara betur yfir hvort fara þurfi í stálvinnu á skipinu. Kostnaðartölur vegna viðgerðanna liggi þar af leiðandi held- ur ekki fyrir að svo komnu máli. Engar stórar dældir eru á skrokk Baldvins EA Morgunblaðið/RAX Svarfdælskur mars | Um komandi helgi verður haldinn svarfdælskur mars, sem svo er kallaður, og hefst að venju með heimsmeistaramóti í Brús í Rimum í Svarfaðardal á föstudagskvöld, 26. mars. Spilað verður í meist- araflokki og 1. flokki auk þess sem kennsla verður fyrir byrjendur. Málþing um Dalvík- urskjálftann 1934 verð- ur haldið í Dalvík- urskóla á laugardag kl. 11. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur flytur erindi um skjálft- ann, orsakir hans og af- leiðingar. Einnig verða fluttar endurminningar fólks sem var að alast upp á Dalvík þegar skjálftinn varð og nemendur Dalvíkurskóla verða með at- riði. Söngfélagið sunnan heiða, Samkór Svarfdæla og Kór Dalvíkurkirkju verða með tónleika í Dalvíkurkirkju á laugardag kl. 14. Söngkonurnar Kristjana Arngríms- dóttir og Guðrún Lóa Jónsdóttir koma einnig fram ásamt Helgu Bryndísi Magn- úsdóttur píanóleikara. Svarfdælasaga, leikrit eftir Ingibjörgu og Hjörleif Hjart- arson sem byggt er á Svarfdælasögu, verður frumsýnd kl. 17 í Ungó. Þar er sagt frá landnámi dalsins og víkurinnar. Karlakór Dalvíkur tekur þátt og syngur frumsamda tónlist eftir Guðmund Óla Gunnarsson. Marsinn verður svo tekinn að Rimum um kvöldið undir stjórn Ingunnar Mar- grétar Hallgrímsdóttur.    Úr bæjarlífinu Ragnar Stefánsson jarðskjálfta- fræðingur. HÉÐAN OG ÞAÐAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.