Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 26
AUSTURLAND
26 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
w w w. m o s . i s
- Þjónusta í þína þágu
Þjónustuver Mosfellsbæjar sími: 525 6700
Fermingarúrið í ár
Kjarna Mosfellsbæ • Sími: 544 4990
Kjarna, Þverholti 2, Mosfellsbæ
Sími 566 6090
Öll fermingarbörn
fá gjöf.
3 heppnir fá
óvæntan glaðning.
Munið að panta tímanlega fyrir fermingar
20%
afsláttur
Ágætu Mosfellingar! Nú er tilboð á málningu og
tengdum vörum frá HörpuSjöfn. Hjá okkur fást
einnig; garðyrkjuáhöld, ljósaperur, lampar og ljós,
fittings, rafmagns- og handverkfæri, hestaskeifur og
verkfæri, heimilistæki, gjafavörur og margt fleira.
ALLT Á GÓÐU VERÐI
Urðarholti 4, s. 586-1210
KJARNA Þverholti 2,
Mosfellsbæ
Sími: 534 3424
• Rakakrem
• Hreinsifroða
• Förðunanburstasett
• Minimaskari
Fermingartilboð
kr. 1.900
Í fallegri tösku
Háaleitisbraut 58-60 s: 5535280 • Urðarholti 2 s: 566 6145 • mosbak@mosbak.is
SÖÐLASMIÐURINN MOSÓ
þverholti 2 , 270 mosó
S: 566 8540 / 893 5777
d-tour@d-tour.is
ÍSLAND SLEIPNIR
Ferja | Vegagerð ríkisins hefur aug-
lýst eftir tilboðum í útgerð ferju sem
siglir tvisvar í viku á milli Mjóa-
fjarðar og Norðfjarðar. Vélbáturinn
Anný frá Mjóafirði hefur verið í
þessum siglingum í áraraðir, en nú
vill Vegagerðin semja um reksturinn
til ársins 2006.
Ný vefur | Skeggjastaðahreppur
hefur opnað vefinn bakkafjordur.is
og er þar hægt að fræðast um sveit-
arfélagið í formi almennra upplýs-
inga, aflafrétta, fréttabréfs og fund-
argerða, svo eitthvað sé nefnt.
Skriðuklaustur | Á sunnudaginn
kemur mun Einar Már Guðmunds-
son rithöfundur lesa úr verkum sín-
um og fjalla um hugðarefni sín í
Skriðuklaustri í Fljótsdal. Þá ætlar
franska listakonan Anne Pesce jafn-
framt að sýna vídeóverk sem hún
hefur unnið síðustu vikur í gesta-
íbúðinni Klaustrinu. Verk eftir Anne
Pesce verða jafnframt til sýnis í
Galleríi Klaustri.
Skriðuklaustur verður opið á
sunnudag milli kl. 14 og 17. Þar eru
nú til sýnis ýmis listaverk í eigu
Gunnarsstofnunar, en einnig nokkr-
ir munir frá Þjóðminjasafni Íslands.
Sögustundin hefst kl. 14.30.
Uppsagnir | Bæjarstjórn Austur-
Héraðs ætlar að segja öllum starfs-
mönnum áhaldahúss bæjarins upp
vegna skipulagsbreytinga. Á að
minnka verklegar framkvæmdir
áhaldahússins til stórra muna og
bjóða þær fremur út. Selja á bifreið-
ar og áhöld og verður áhaldahúsið í
framtíðinni þjónustumiðstöð sem
sinnir einnig eftirliti. Er reiknað
með endurráðningu flestra starfs-
manna sem þess æskja.
Fjarðabyggð | Stýrihópur vinnur
nú að mótun fjölskyldustefnu í
Fjarðabyggð og á að kynna hana á
íbúaþingi sem haldið verður um
miðjan apríl í sveitarfélaginu.
Í stýrihópnum eiga sæti Kristinn
S. Einarsson forstöðumaður fé-
lagsþjónustusviðs, Árdís Að-
alsteinsdóttir og Sigrún J. Geirs-
dóttir úr félagsmálanefnd og
Sigríður Stefánsdóttir æskulýðs-
og íþróttafulltrúi. Hefur hópurinn
undanfarið haft samband við ein-
staklinga, félagasamtök, stofnanir
og nefndir með óskum um tillögur
að inntaki fjölskyldustefnunnar. Þá
hafa íbúar í Fjarðabyggð verið
hvattir til að hafa áhrif á fjöl-
skyldustefnuna með ábendingum
og hugmyndum. Stefnt er að því að
leggja fyrstu drög að fjöl-
skyldustefnu Fjarðabyggðar fyrir
íbúaþing, sem halda á 17. apríl n.k.
Kristinn Einarsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að það sem
helst væri verið að taka á um þess-
ar mundir í félagsþjónustunni væri
fyrrnefnd fjölskyldustefna, málefni
aldraðra, málefni íbúa af erlendum
uppruna og forvarnir.
Veruleikatengd markmið
„Ég á von á að þessir málaflokk-
ar verði samtvinnaðir í eina öfluga
fjölskyldustefnu“ segir Kristinn og
segist sjá fyrir sér að Fjarðabyggð
taki forystu í þessum málaflokki og
marki brautina. „Ég vona að þau
erlendu fyrirtæki sem eru að taka
hér til starfa, eins og Bechtel og
Alcoa, komi að vel mótaðri stefnu
sem þau geta tekið þátt í. Þá skipt-
ir öllu máli að þetta séu ekki að-
eins háleit markmið, heldur til-
lögur að raunhæfum aðgerðum
sem menn ætla sér að fram-
kvæma.“
Kristinn segir mótun fjöl-
skyldustefnu gríðarlega víðtækt
verkefni og inntak hennar snúist
um það hvers konar samfélag íbú-
arnir vilji að Fjarðabyggð sé og
hvaða þjónustu eigi að veita þar.
„En umfram allt verður stefnan að
vera veruleikatengd.“
Kristinn segist hafa nokkrar
áhyggjur af því að í þeim gríð-
arlegu framkvæmdum sem standa
fyrir dyrum finni konur sér ekki
farveg í þeim störfum sem skapist.
„Við þurfum að ná eyrum kvenna
og opna augu þeirra fyrir tækifær-
um í atvinnusköpun og þátttöku.
Það er ekki fullnægjandi að segja
konur geta unnið störf sem skapast
við byggingu álvers á fram-
kvæmdatíma og þegar það er tilbú-
ið, það þarf eitthvað meira til.“
Kristinn segir undirbúning að
íbúaþinginu í apríl í fullum gangi
og verði megininntak þess stefnu-
mótun sveitarfélagsins. „Mér finnst
afar mikilvægt að íbúarnir komi
með markvert tillegg í stefnumót-
unarvinnu og hana þarf jafnframt
sífellt að endurskoða.“
Börnin eru framtíð byggðarlagsins: Tvíburarnir Haukur og Hafþór, Hildur
Írena og Höskuldur, starfsmaður leikskólans í Neskaupstað.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hugað að þörfum íbúanna: Kristinn S. Einarsson, forstöðumaður félags-
þjónustusviðs Fjarðabyggðar, vinnur ásamt stýrihópi að fjölskyldustefnu.
Gríðarlega víðtækt og áríðandi verkefni
Unnið að mótun heildstæðrar fjölskyldustefnu í Fjarðabyggð