Morgunblaðið - 25.03.2004, Qupperneq 31
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 31
Háskólanám á Hvanneyri
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2004
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri - www.hvanneyri.is
Almenn inntökuskilyrði - Það sama gildir um allar námsbrautir
við LBH að umsækjandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða
öðru, sem háskólaráð telur jafngilt. Námið tekur að lágmarki
þrjú ár til BS-prófs (90 einingar). Síðan er hægt að bæta við
sig 30 eininga sérnámi og rannsóknaþjálfun og brautskrást
með kandidatsgráðu (120 einingar).
Á Hvanneyri er þægileg nánd milli nemenda og starfsfólks og
góð aðstaða fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra í starfi og
leik. Þar eru nemendagarðar fyrir fjölskyldur jafnt sem einstak-
linga, grunnskóli og leikskóli. Útivistar- og afþreyingarmögu-
leikar eru fjölbreyttir og stutt í alla þjónustu. Hvanneyri er í
um klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík.
F jó ra r námsb raut i r t i l BS -p rófs
Búvísindi
Fjölbreytt nám með áherslu á búfjárrækt, jarðrækt og
bútækni auk margra valgreina. Undirstaða fyrir framhaldsnám
í búvísindum, ráðgjafarstörf, kennslu og rannsóknir auk
búrekstrar.
Landnýting (landgræðsla)
Skipulag, nýting og umhirða lands með áherslu á landgræðslu
og náttúruvernd við íslenskar aðstæður. Hentar vel til starfa við
landgræðslu, náttúruvernd, kortagerð og hvers kyns umhverfis-
mál.
Skógrækt
Námsbrautin er ný á Hvanneyri og með tilkomu hennar er nú
fyrst hægt að nema þessi fræði á háskólastigi á Íslandi. Fjallað
er m.a. um umhirðu og ræktun skóga, búskaparskógrækt,
ferskvatnsnýtingu, náttúruvernd og auðlindahagfræði.
Umhverfisskipulag (Landslagsarkítektúr)
Námið er fyrri hluti náms í landslagsarkítektúr og öðrum skipu-
lagsfræðum. Meðal áfanga er nýting og mótun lands, hönnun
útivistarsvæða, tölvustudd hönnun og vistfræði, mat á
umhverfisáhrifum, jarðvegsfræði og fríhendisteikning.
F ramha ldsnám að loknu BS -p róf i
Kandidatsnám
Boðið er upp á eins árs viðbótarnám og rannsóknaþjálfun til
kandidatsprófs í búvísindum og landnýtingu.
Námið hentar þeim einkar vel sem ætla að verða leiðbeinendur
í landbúnaði t.d. hjá búnaðarsamböndum, landgræðslu og
skógrækt. Inntökuskilyrði er BS-próf frá LBH eða sambærilegt
BS-nám frá öðrum háskólum.
Meistaranám (MS)
Meistaranám til 60 eininga í búvísindum. MS-námið veitir mögu-
leika á sérhæfingu á sviði búfjárræktar, jarðræktar og bútækni.
Meistaranám til 60 eininga í landnýtingu. MS-námið veitir
möguleika á sérhæfingu á sviði landgræðslu,
umhverfisstjórnunar, jarðræktar og bútækni.
MS-námið er skipulagt sem einstaklingsbundinn
námsferill með sveigjanlegri námsframvindu.
Inntökuskilyrði er BS-gráða í búvísindum, landnýtingu,
líffræði, landafræði eða annað sambærilegt BS-nám.
Á ÞESSUM tíma var mikið um að vinir og
vandamenn kæmi í heimsókn, það vildu nátt-
úrulega allir fá að sjá þig!
Meðalið var að virka og þótt
þú værir stundum óvær var
það ekkert á við hinn sára
grát sem fylgdi kveisunni
fyrst.
Við konurnar gátum og
getum enn, rætt um allt á
milli himins og jarðar svo lengi sem það tengist
meðgöngu, fæðingu eða barnseignum yfir höfuð.
„Finnst þér ekkert skrýtið að fara frá henni?“
var algeng spurning hjá vinkonum, eða „ertu
eitthvað búin að prófa að fara frá henni?“ „Já,“
svaraði ég og kinkaði kolli um leið og ég lýsti
fyrsta aðskilnaðinum okkar. Þú varst tveggja
vikna og móðurafi þinn kom þá að passa kl. 17 en
amma þín bættist síðan við eftir vinnu kl.18. Báð-
ir afar þínir voru frekar stressaðir með þig svona
litla, fengu hálfgerða vöðvabólgu þegar þeir
héldu á þér enda sátu þeir alltaf eins og krypp-
lingar með þig í fanginu, svo stífir voru þeir.
Pössunin gekk nú samt bara vel. Strax eftir að
ég var farin leit ég á gsm-símann á mínútu fresti
til að athuga hvort barnapíurnar væru ekkert
búnar að hringja. Um kl.19.30 hringdu þau (loks-
ins!) og þá varstu bæði vöknuð og búin með pel-
ann. Þú varst samt enn svöng þannig að auðvitað
þaut ég út í bíl og beinustu leið heim. Ég var í
rauninni hálffegin því að þau hringdu en á leið-
inni heim sá ég fyrir mér mér allra verstu mynd-
ir um að þú værir nánast hungurmorða vegna
þessarar fjarveru minnar. Auðvitað varstu samt
allt í lagi þegar ég kom og eftir nokkrar mínútur
á brjósti vorum við báðar búnar að gleyma þess-
ari óþægilegu tilfinningu. Allar konur sem ég
segi þessa sögu hafa kinkað kolli með skilningi
um leið og þær hlæja og segja „Já, ég man að
svona var þetta fyrst!“
DAGBÓK MÓÐUR
Ertu búin að
prófa að fara
frá henni?
Meira á morgun.
F
jöldi kvartana berst
reglulega inn á borð
Neytendasamtak-
anna vegna gjafa-
korta og vilja sam-
tökin benda gefendum á að í
sumum tilvikum nýtast gjafakort
ekki eins og skyldi. Gjafakort,
sem gilda í einni ákveðinni
sérvöruverslun, bindur viðtak-
andann við að velja gjöf úr tak-
mörkuðu vöruúrvali og ef hann
finnur ekki gjöf, sem honum
hugnast, situr hann uppi með
bundna fjárhæð, sem hefði betur
mátt ávaxta á annan hátt eða nýta
til annarra hluta, að sögn Sesselju
Ásgeirsdóttur, fulltrúa hjá Neyt-
endasamtökunum.
Nú er að fara í hönd tími ferm-
inga og brúðkaupa og vill þá vand-
ast málið hjá ættingjum og vinum,
sem vilja gleðja með gjöfum.
Gjafakort vill oft verða þrauta-
lendingin og er þá viðtakandanum
gefnar frjálsar hendur með það
hvernig nýta á gjöfina. Gjafakort,
sem bundin eru við ákveðnar
verslanir, eru án efa gefin í góðri
trú um að viðtakandi finni sér eitt-
hvað við hæfi í verslunum, en oft
vill glaðningurinn snúast upp í
andhverfu sína, að sögn Sesselju.
„Mál hafa komið upp vegna
fermingargjafa í formi gjafakorta
frá sérvöruverslunum. Sem dæmi
má nefna að fermingarbarn, sem
hafði óskað sér gjafa frá ákveðinni
sérvöruverslun, fékk það háar
upphæðir í formi gjafa og gjafa-
korta frá versluninni að fjölskyld-
an lenti í vandræðum með að taka
út á allar inneignirnar.“
Brúðkaupið og óskalistinn
Að sögn Sesselju hafa nokkur
brúðhjón leitað til Neytenda-
samtakanna þar sem verslanir
hafa ekki staðið við sín munnlegu
fyrirheit um það vöruúrval, sem
brúðhjónin hafa sett á óskalistann
sinn. „Algengt er að verðandi
brúðhjón fari á stúfana nokkrum
vikum fyrir brúðkaup og velja sér
vörulínu í matar- og kaffistelli í
þar til gerðum sérvöruverslunum.
Gestunum er síðan vísað á versl-
anirnar fyrir væntanlegt brúð-
kaup. Það kemur fyrir að ekki eru
til allir hlutir í viðkomandi vöru-
línu, en afgreiðslufólkið fullvissar
parið um að hlutirnir í stellinu
verði komnir fyrir áætlaðan brúð-
kaupsdag. Þegar gestirnir síðan
streyma inn í verslunina eru hlut-
irnir ekki sjáanlegir. Gefendum er
þá gjarnan sagt að sendingin sé á
leiðinni og verði komin innan
fárra daga. Gjafakort er þá freist-
andi kostur en ekki er öruggt að
hlutirnir skili sér í verslunina og
dæmi eru um að framleiðslu til-
tekinnar vörulínu hafi verið hætt.
Fólk kaupir gjafakort í fullvissu
um að allt gangi eftir, en ég mæli
með að fólk geri samning við
verslunina um að fá andvirði
gjafakortsins endurgreitt skili
varan sér ekki innan tiltekins
tímaramma,“ segir Sesselja.
Neytendasamtökin kappkosta að
gefa verslunum tækifæri til að
leysa ágreiningsmál með frið-
sælum hætti gagnvart sínum við-
skiptavinum og hafa þar milli-
göngu. Dæmi er um að verslanir
hafi ekki sinnt erindi Neytenda-
samtakanna og áskilja samtökin
sér þá rétt til að fjalla um málið á
opinberum vettvangi.
Sesselja segir að gjafa-
kort, sem sé ígildi pen-
inga, gildi í fjögur ár, sé
annað ekki tekið fram, en
það orki auðvitað tvímæl-
is að vera með peninga
bundna svo lengi án
vaxta. „Við viljum endi-
lega brýna fyrir fólki að
hugsa vel sinn gang þegar
keypt eru gjafakort. Það
skiptir máli hvort gjafa-
kortin eru bundin einni
verslun eða gildi í öllum
verslunum í verslunar-
miðstöð, eins og nú er al-
gengt. Fjölmörg dæmi
eru um að verslanir verði
gjaldþrota. Þá hefur eig-
andi gjafakorts í viðkom-
andi verslun ekki annarra
kosta völ en að lýsa kröfu
í þrotabúið, en sjaldgæft
er að nokkuð hafist upp úr
því. Affarasælla er ef við-
takandi getur valið sér
gjöf úr öllum þeim versl-
unum, sem eru t.d. í
Kringlunni, Smáralind-
inni eða á Laugaveginum.
Sumum kann að finnast ósmekk-
legt að gefa peninga, en ferming-
arbörnin eru því ekki sammála,
þar sem metingurinn er oftast um
það hver fær hæstu upphæðina.
Það þarf þó ekki að vera slæmt að
stuðla að því að gjafirnar fari í
einn sjóð, sem nýtist þá við kaup
stærri hluta.“
Innborgun á bankareikninga
Neytendasamtökin hafa reynt
að beina því til fjármálastofnana
að bjóða upp á tækifæriskort með
peningainneign, stíluð á ákveðin
nöfn. „Kortin yrðu meðhöndluð
líkt og ávísanir og eins gætu þau
virkað sem kvittun fyrir inn-
borgun á bankareikning.“
Gjafakortin
eiga að gleðja
Morgunblaðið/Kristinn
Fermingardagurinn: Það getur skyggt á
gleðina að sitja uppi með gjafabréf sem
ekki nýtist eins og til var ætlast.
Þótt gjafakort séu keypt í góðri trú, hafa Neyt-
endasamtökunum borist ótal kvartanir vegna
þeirra. Sesselja Ásgeirsdóttir, fulltrúi samtak-
anna, hvetur því fólk til að hugsa vel sinn gang.
join@mbl.is
NEYTENDUR| Brúðar- og fermingargjafir geta valdið vandræðum