Morgunblaðið - 25.03.2004, Síða 39

Morgunblaðið - 25.03.2004, Síða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 39 mikilli ánægju tveggja ferða sem við fórum saman til Sovétríkjanna á 9. áratugnum í boði sovéskra sam- starfsmanna okkar. Þar var gaman að verða vitni að þeirri virðingu sem þar var borin fyrir Guðmundi, jafnt sem vísindamanni og skákmanni. Nú hafa leiðir skilið og Guðmund- ur er horfinn á braut. Minning hans mun lifa í verkum hans um langa framtíð og hans verður minnst sem eins merkasta jarðvísindamanns Ís- lands á 20. öld. Starfsfólk Íslenskra orkurannsókna hugsar til Guð- mundar með þakklæti og virðingu um leið og við sendum Ólöfu konu hans, sonum hans og öðrum ætt- ingjum okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Ólafur G. Flóvenz. Guðmundur Pálmason var í far- arbroddi Íslendinga í alþjóðasam- starfi um jarðhita í þrjá áratugi. Jarðhitadeild Orkustofnunar, sem hann stýrði 1964–1996, varð á þess- um árum heimsþekkt meðal þeirra sem vinna að rannsóknum og vinnslu á jarðhita. Jarðhitamenn frá öllum heimshornum komu til Ís- lands til að kynnast hvernig staðið væri að verki við jarðhitaleit, jarð- hitavinnslu og hitaveituvæðingu landsins. Jafnframt var mikið leitað eftir samstarfi við Íslendinga og þátttöku þeirra í tæknilegum ráð- stefnum. Guðmundur var góður fyr- irlesari og mjög eftirsóttur í alþjóð- legar nefndir sem fjölluðu um jarðhita og jarðskorpurannsóknir. Það var lærdómsríkt að fylgjast með honum í nefndum. Hann hafði til að bera mikla fræðilega þekk- ingu, langa og fjölþætta reynslu, rökfastan málflutning og ljúfmann- lega framkomu. Í nefndastörfum hugsaði hann gjarnan nokkra leiki fram í tímann eins og í skákinni. Hann náði framúrskarandi árangri á báðum sviðum. Guðmundur tók mikinn þátt í undirbúningi að stofnun Jarðhita- skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, var í undirbúningsnefnd af hálfu ís- lenskra stjórnvalda og stýrði alþjóð- legum vinnufundi á Laugarvatni 1978 þar sem ákveðið var að mæla með stofnun skólans. Skólinn var síðan vistaður hjá Jarðhitadeild Orkustofnunar. Guðmundur tók mjög virkan þátt í jarðhitaráð- stefnum á vegum Sameinuðu þjóð- anna í Pisa 1970 og San Francisco 1975. Hann var einn af frumkvöðl- um að stofnun Alþjóðajarðhitasam- bandsins 1989 og sat í stjórn þess og framkvæmdastjórn fyrstu tvö kjör- tímabilin til 1995. Hann vann mikið þrekvirki sem dagskrárstjóri fyrstu alþjóðajarðhitaráðstefnu sambands- ins í Flórens 1995. Þar voru kynnt yfir fimm hundruð fræðileg erindi og þátttakendur voru um þúsund. Guðmundur var einn af frum- kvöðlum að stofnun Jarðhitafélags Íslands árið 2000 og einróma kjör- inn fyrsti formaður þess. Í apríl 2003 var hann kjörinn heiðursfélagi Jarðhitafélagsins. Í viðurkenningar- skyni við hans mikla framlag til al- þjóðlegs jarðhitasamstarfs var hon- um ekki afhent heiðursfélagaskjalið fyrr en við setningu alþjóðlegrar jarðhitaráðstefnu í Reykjavík í sept- ember 2003 þar sem um tvö hundr- uð þátttakendur frá 32 löndum hylltu hann. Fyrir hönd Alþjóðajarðhitasam- bandsins, Jarðhitafélags Íslands og Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna vil ég þakka Guðmundi fyrir hans mikla og gifturíka fram- lag til alþjóðlegrar jarðhitastarf- semi. Við Þórdís sendum Ólöfu og fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Ingvar Birgir Friðleifsson. Hjá okkar litlu þjóð tengjast flestir með einhverju móti, að ætt, með vináttu, í starfi eða með öðrum hætti. Þetta rifjast upp þegar ein- hver fellur frá. Þá verður okkur ljósara en ella að við erum ein þjóð- arfjölskylda sem finnur til sam- kenndar og hlýju. Fyrsta minning mín um dr. Guð- mund Pálmason er frá unglingsár- um mínum í Vogahverfinu í Reykja- vík, þegar þau hjón, Guðmundur og Ólöf fluttu í næsta nágrenni við föð- urhús mín. Guðmundur var þá þekktur sem taflmaður mikill og Ólöf var úr minni föðursveit, og efa- laust skyld mér eins og allir aðrir þar á milli sanda. Næsta minning mín um Guðmund er þegar ég er ný- kominn heim frá námi til starfa á Raunvísindastofnun Háskólans en hann að vinna þar að doktorsrit- gerð, grundvallarverki um gerð jarðskorpu Íslands. Síðan skildu leiðir þar til ég tók við starfi orku- málastjóra 1996, en þá var hann for- stöðumaður jarðhitadeildar stofnun- arinnar. Skipulagi og hlutverki deildarinnar var síðan gjörbreytt og kaus Guðmundur að draga sig í hlé sem stjórnandi en nota síðustu starfsárin til að helga sig fræðistörf- um. Það var gæfuspor því nú gat hann einbeitt sér að því að nýta sína víðfeðmu þekkingu og reynslu til að draga saman mikið yfirlitsrit um jarðhita á Íslandi. Honum auðnaðist að ljúka ritinu, Jarðhitinn, fyrir andlát sitt og mun það senn koma út hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi. Fáir hafa skilað ríkulegra ævi- starfi en Guðmundur. Ekki svo að skilja að starfið hafi skilað honum miklum persónulegum auðævum; það verður seint sem launamaður hjá hinu opinbera. En þeim mun meira var framlag hans og sam- starfsmanna hans til hagsældar þjóðarinnar. Guðmundur var einn af forvígismönnum í leit að jarðhita og beislun hans. Þegar Guðmundur hóf störf naut minna en fjórðungur þjóðarinnar yls úr iðrum jarðar, nú nær fjórir fimmtu. Guðmundur og félagar hans slógu tölum á ábatann af þessum gæðum og reiknast svo til að þjóðartekjurnar séu um hálfu öðru prósenti hærri en þær væru ef hita þyrfti upp hús með dýrari hætti. Auðvitað eiga margir hlut- deild í þessum ávinningi, en ekki hvað síst jarðhitadeildin sem Guð- mundur stýrði. Orkustofnun minnist farsæls for- ystumanns og félaga sem var allra hugljúfi. Fjölskyldu hans eru send- ar hugheilar samúðarkveðjur. Þorkell Helgason, orkumálastjóri. Ég kynntist Guðmundi Pálmasyni um það leyti sem hann kom til starfa hjá raforkumálastjóra, sem mun hafa verið 1955. Hóf hann þar störf hjá dr. Gunnari Böðvarssyni, sem hafði með höndum stjórn jarð- hitarannsókna raforkumálastjóra. Samskipti okkar voru þá ekki mikil umfram það sem gengur og gerist milli starfsmanna á sama vinnustað. Hann kom mér strax fyrir sjónir sem hæglátur, íhugull maður; mað- ur sem vildi fremur vera en sýnast. Hefur mér fundist það einkenna hann alla tíð. Fljótlega eftir að hann kom til starfa fór ég til námsdvalar erlendis um tíma. Eftir heimkom- una fól raforkumálastjóri mér að sjá um vatnsorkurannsóknir þær sem embætti hans hafði með höndum. Um það leyti var m.a. farið að beita jarðeðlisfræðilegum rannsóknarað- ferðum við að kanna aðstæður á virkjunarstöðum vatnsorku. Gunnar Böðvarsson hafði þá þegar innleitt slíkar aðferðir í rannsóknir raforku- málastjóra á jarðhita. Var því leitað til hans um þessar kannanir og fól hann Guðmundi Pálmasyni að ann- ast þær og stjórna mælingaflokki sem í voru aðallega stúdentar í sum- arvinnu. Mér er enn minnisstætt með hvílíkri prýði Guðmundur og flokkur hans luku þessu verkefni. Þetta voru mín fyrstu nánari kynni af Guðmundi og vandvirkni hans í vinnubrögðum. Árið 1964 fluttist Gunnar Böðv- arsson búferlum til Bandaríkanna og varð Guðmundur þá forstöðu- maður jarðhitadeildar raforkumála- stjóra og stjórnaði jarðhitarann- sóknum á hans vegum. Þegar Orkustofnun kom í stað embættis raforkumálastjóra 1967 varð Guð- mundur forstjóri jarðhitadeildar hennar. Gegndi hann því starfi þar til hann fór á eftirlaun. Við urðum samstarfsmenn hvor á sínu sviði, ég í vatnsorkurannsóknum en hann í jarðhitarannsóknum. Kynntist ég honum þá nánar en áður. Vakti það sérstaka athygli mína hve gerhugull hann var og íhugaði hverja spurn- ingu vandlega áður en hann svaraði. Undir hans stjórn stækkaði jarð- hitadeildin smám saman og fjöldi starfsmanna óx. Margir byrjuðu sem sumarstúdentar en komu til fastra starfa að námi loknu. Það vakti athygli mína hversu auðvelt hann virtist eiga með að koma fljótt auga á hæfileikaríkustu mennina og beitti hann sér fyrir að þeir yrðu fastráðnir þegar þeir höfðu lokið námi. Þessi glöggskyggni hans á hæfileika manna átti mikinn þátt í því mannvali sem löngum hefur ver- ið á jarðhitadeild Orkustofnunar og í að efla jarðhitarannsóknir á Ís- landi og að skipa Íslendingum í fremstu röð meðal þjóða heims í jarðhitarannsóknum. Þegar ég varð orkumálastjóri varð Guðmundur minn trausti bak- hjarl í jarðhitamálum, en á þeim hafði ég ekki sérþekkingu. Því hlut- verki brást hann aldrei og ég gat ávallt reitt mig á hans ráðgjöf. Kom það sér m.a. vel þegar mest gekk á við Kröflu. Samstarf okkar var ávallt gott. Eins og vera bar hélt Guðmundur fast á hlut jarðhita- deildar við skiptingu þess fjár sem stofnunin fékk á fjárlögum til orku- rannsókna. Gat ég þar ekki ávallt komið til móts við óskir hans. Hann tók því með jafnaðargeði og skiln- ingi þótt við værum ekki ávallt sam- mála. Guðmundur sinnti oft ráðgjafar- störfum í jarðhitarannsóknum víða um heim á vegum Sameinuðu þjóð- anna og var eftirsóttur til þeirra starfa. Hann sinnti einnig ráðgjaf- arstörfum fyrir íslensk stjórnvöld í tengslum við hafréttarmál, einkum varðandi réttindi til hafsbotnsins, og var formaður hafsbotnsnefndar iðn- aðarráðuneytisins 1985 til 1993. Hann var vel þekktur og naut virð- ingar meðal jarðhitasérfræðinga um allan heim og tók virkan þátt fyrir Íslands hönd í alþjóðlegu samstarfi á því sviði og var félagi í alþjóð- legum samtökum og vísindafélögum á sviði jarðhita og jarðvísinda. Með- al annars var hann formaður tækni- dagskrárnefndar alþjóðajarðhit- aráðstefnu í Flórens 1995. Guðmundur var gæfumaður í einkalífi. Hann var kvæntur mikilli ágætiskonu, Ólöfu Jónsdóttur sjúkraliða frá Teygingarlæk í Vest- ur-Skaftafellssýslu, sem lifir mann sinn. Þau eignuðust tvo syni, Magn- ús Atla kerfisfræðing og Jón Pálma viðskiptafræðing. Ég votta Ólöfu, sonum þeirra Guðmundar og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Blessuð sé minning Guðmundar Pálmasonar. Jakob Björnsson. Sumarið 1959 átti ég því láni að fagna ásamt öðrum stúdentum að komast í vinnuflokk Jarðhitadeildar raforkumálastjóra sem ferðaðist um sveitir í leit að jarðhita og öræfi til að kanna aðstæður til vatnsafls- virkjana. Honum stýrði Guðmundur Pálmason en til ráðgjafar var Jón Jónsson jarðfræðingur. Fræðin og náttúran heilluðu okkur og vinna undir handleiðslu þessara manna reyndist ekki síðri en háskólanámið erlendis, enda fór svo að fjórir af fimm urðu síðar starfsmenn Jarð- hitadeildar undir stjórn Guðmund- ar. Þegar brautryðjandi Jarðhita- deildar, Gunnar Böðvarsson, tók sér ársleyfi frá störfum setti hann Guð- mund sem forstöðumann í sinn stað. Gunnar sneri ekki aftur en val hans á eftirmanni reyndist happadrjúgt. Jakob Gíslason raforkumálastjóri og yfirmenn Jarðhitadeildar voru með opin augu fyrir grunnrann- sóknum og nýjungum. Ungum starfsmönnum voru sköpuð skilyrði til að vinna helming vinnutímans að eigin rannsóknarhugmyndum og einskis var látið ófreistað að laða hingað leiðangra fremstu fræði- manna hvarvetna að. Þannig hóf Markús Båth bylgjubrotsmælingar á jarðskorpu landsins, en Guðmund- ur tók við mælingunum og gerði úr þeim grundvallarrit með doktorsrit- gerð sinni. Við lok starfsferils síns tók Guð- mundur sér fyrir hendur að rita al- Sambýliskona mín, dóttir okkar, móðir, stjúp- móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HRÖNN BENÓNÝSDÓTTIR, Sundstræti 35b, Ísafirði, lést á Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 16. mars. Útför hennar fer fram frá Einarsstaðakirkju í dag, fimmtudaginn 25. mars, kl. 14.00. Páll Gunnar Loftsson, Benóný Arnórsson, Valgerður Jónsdóttir, Valdís Bára Guðmundsdóttir, Svanhvít Sjöfn Guðmundsdóttir, Gunnar Friðgeirsson, Stefán Björgvin Guðmundsson, Harpa Arnórsdóttir, Dísa Bergþóra Guðmundsdóttir, Benóný Arnór Guðmundsson, Elínborg Herbertsdóttir, Þórhalla Pálsdóttir, Ágúst Örn Pálsson, Vilborg Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ODDRÚN INGA PÁLSDÓTTIR, Sogavegi 78, lést á líknardeild Landakotsspítala mánudag- inn 22. mars. Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju föstudag- inn 2. apríl kl. 10.30. Jarðsett verður að Skarði í Landsveit kl. 14.00 sama dag. Ágúst Úlfar Sigurðsson, Erla Þórðar, Sunna Sigurðardóttir, Ólafur P. Jakobsson, Sigrún Sigurðardóttir, Jon G. Jørgensen, Páll R. Sigurðsson, Marjolein Roodbergen, Sigurður H. Sigurðsson, Elvíra Méndez Pinedo og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Lindargötu 18, Siglufirði, lést á Landspítala, Landakoti, þriðjudaginn 23. mars. Sólrún Magnúsdóttir, Erling Jónsson, Guðjón B. Magnússon, Jóhanna Stefánsdóttir, Sigurlaug Magnúsdóttir, Guðmundur J. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR MÁR BRYNJÓLFSSON, Breiðagerði 19, Reykjavík, sem andaðist laugardaginn 20. mars, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 29. mars nk. kl. 13.30. Sigríður M. Þorbjarnardóttir, Una María Guðmundsdóttir, Sólrún Erla Guðmundsdóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær móðurbróðir okkar, ÞORSTEINN JÓHANNSSON, hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður til heimilis á Kárastíg 5, Reykjavík, lést þriðjudaginn 23. mars. Útförin verður auglýst síðar. Einar Halldórsson, Guðfinna Halldórsdóttir, Jóhann Halldórsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.