Morgunblaðið - 25.03.2004, Page 40

Morgunblaðið - 25.03.2004, Page 40
MINNINGAR 40 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ starfaði Taflfélag MR af miklu fjöri undir forystu Steingríms Her- mannssonar. Félagið gekkst fyrir fjöltefli við innlenda og erlenda skákmeistara, m.a. þá D.A. Yanofski og R. Wade. Er ekki ofmælt, að teflt hafi verið í öllum frímínútum í skól- anum. Guðmundur Pálmason tók þátt í þessu og var auk þess farinn að tefla utan skólans. Var Guð- mundur fremsti skákmaður skólans og var á leið með að verða einn af öflugustu skákmeisturum Íslands. Í desember 1948 kom dr. Max Euwe, fyrrverandi heimsmeistari í skák, til Íslands. Euwe-mótið var haldið í Reykjavík strax eftir komu Euwe til landsins. Auk Euwe tefldu fimm efstu menn í landsliði á mótinu, og var Guðmundur Pálma- son meðal þeirra. Úrslitin urðu að Guðmundur varð annar á mótinu ásamt Ásmundi Ásgeirssyni og gerði jafntefli við Euwe, sigurveg- ara mótsins. Teflt var í veitingasaln- um í Tívolí, Vetrargarðinum í Vatnsmýrinni, og flykktust áhorf- endur þangað, þ.á m. margir nem- endur úr MR, sem voru ákaflega hreyknir af sínum manni. En þó að skáklistin væri mikilvæg í lífi Guð- mundar sló hann ekki slöku við námið, hvorki nú né síðar meir. Hann lauk stúdentsprófi vorið 1949 með ágætiseinkunn, enda var hann frábær námsmaður. Við skólaupp- sögn hlutu sérstök verðlaun fyrir „afburða kunnáttu“, Guðmundur Jónsson í VI.B (fyrir píanóleik) og Guðmundur Pálmason í VI.X (fyrir skák). Að loknu stúdentsprófi hóf Guð- mundur nám við Kungliga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi og lauk þaðan prófi í eðlisverkfræði 1955. Hann lauk MS-prófi frá Purdue University 1957 og varð dr. scient. í jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands 1971. Guðmundur var sérfræðingur hjá jarðhitadeild og varð síðar forstöðu- maður jarðhitadeildar Orkustofnun- ar, þegar Gunnar Böðvarsson flutt- ist til Bandaríkjanna og tók þar við prófessorsstöðu. Guðmundur Pálmason var einn af frumkvöðlum rannsókna á jarðhita á Íslandi. Ritaði hann mikið um þau mál og var sýndur margvíslegur sómi fyrir rannsóknir sínar. Á ég von á, að gerð verði ítarlega grein fyrir rannsóknum Guðmundar af mönnum, sem hafa meiri þekkingu á hliða bók um jarðhita á Íslandi og nýtingu hans. Sú bók leysir úr brýnni þörf og verður honum verð- ugur minnisvarði. Við Guðlaug þökkum Guðmundi og Ólöfu áratuga vináttu. Samúðar- kveðjum okkar til fjölskyldunnar fylgja óskir um velfarnað á komandi árum. Sveinbjörn Björnsson. Guðmundur Pálmason varð lands- kunnur á unga aldri fyrir hæfni í skák og skipaði landslið Íslands í þeirri göfugu grein við góðan orðs- tír. Alla ævi sína bjó hann yfir þeirri yfirveguðu rósemi sem einkennir mestu skákmeistara en er jafnframt driffjöður viljans til að sigra í hverri þraut. Á þessum árum dáðist ég að Guðmundi Pálmasyni sem afreks- manni en kynni sköpuðust ekki. Skákin varð síðan hans hjáverk, en lærdómur og vísindi urðu hans lífsstarf. Á því sviði, eins og í skák- inni, náði hann lengra en aðrir og komst til æðstu metorða fyrir. Þeim glæsilega lífsferli hans munu aðrir gera skil. Guðmundur Pálmason gekk til liðs við Oddfellowstúkuna Þormóð goða 1979 og þar varð vettvangur okkar samstarfs. Félagsskap sem vinnur að líknarmálum og stundar mannrækt er mikill fengur að því að njóta liðssinnis manna á borð við Guðmund Pálmason. Mannkostir hans, glæsileg framkoma, hógværð, vandvirkni og snyrtimennska ásamt virðingu fyrir öllu fögru og góðu, nutu sín í starfi stúkunnar. Hann gegndi kjörembætti eitt kjörtímabil en hafnaði framhaldi, en þá undirbjó hann alheimsráðsstefnu um jarðvís- indi og tók það starf allan hans tíma um skeið. En spor Guðmundar Pálmasonar eru víða innan Oddfel- lowstúkunnar nr 9 Þormóðs goða m.a. í framúrskrandi fundargerðum, sem bera kunnáttu og snyrti- mennsku hans fagurt vitni, og í fé- lagatali stúkunnar sem mun nánast einstakt innan Oddfellowreglunnar. Guðmudur Pálmason var maður verka og athafna og það munaði duglega um hann í hverju verki sem hann gekk að. Hann var sívinnandi og ber vinnuherbergi hans á heimili hans því glögg merki. Þar eru skjalabunkar sitt hvoru megin við tölvuna, í öllum hillum og á mörgum stólum. Honum tókst að ljúka við vísindarit sit, Jarðhitann og það eitt mun halda nafni hans lengi á lofti. Minning hans mun lengi lifa með- al Þormóðsbræðra, sem syrgja mik- ilsmetinn stúkubróðir og biðja Ólöfu, eiginkonu hans og niðjum þeirra Guðs blessunar. Atli Steinarsson. Störin á flánni er fölnuð og nú fer enginn um veginn annar en þú. Í dimmunni greinirðu daufan nið og veizt þú ert kominn að vaðinu á ánni … (Hannes Pétursson.) Ég sá Guðmund Pálmason fyrst, þegar við vorum í hópi 32 nemenda, sem settust í fyrsta bekk Mennta- skólans í Reykjavík haustið 1943. Í þessum hópi voru einstaklingar, sem seinna urðu þjóðþekktir, hver á sínu sviði. Frá árunum í MR er mér minn- isstæður Guðmundur Jónsson, pí- anóleikari, sem oft lék sígild píanó- verk á skemmtunum í skólanum við gríðarlegan fögnuð nemenda. Ógleymanlegur er mér flutningur hans á Ungverskri rapsódíu númer tvö eftir Liszt. Varð píanóleikur Guðmundar áreiðanlega til þess, að mörg okkar höfðu upp frá því yndi af að hlusta á sígilda tónlist. Í þriðja og fjórða bekk bættust nemendur í hópinn, þ.á m. tvær stúlkur. Átti önnur eftir að verða forseti Íslands, en hin víðfrægur rit- höfundur. Eftir þriðja bekk máttu nemend- ur velja, hvort þeir vildu hefja nám í mála- eða stærðfræðideild í fjórða bekk. Við Guðmundur Pálmason völdum stærðfræðideildina, en sessunautar okkar beggja fóru í máladeild. Ég stakk þá feimnislega upp á því við Guðmund, að við yrð- um sessunautar, og tók hann því vel. Sátum við svo saman í þrjá vetur og bundumst vináttuböndum, sem aldrei rofnuðu. Þegar við vorum í fjórða bekk, þeim málum en ég. Þó að Guðmundur væri á þessum árum önnum kafinn við nám og störf, sagði hann ekki alveg skilið við skáklistina. Hann tefldi m.a. á Ólympíuskákmótum, í Amsterdam 1954, München 1958 og Havana 1964. Á heimili hans er á áberandi stað forkunnar fagurt sérsmíðað skákborð, sem var afmælisgjöf frá fjölskyldu hans. Það fór því ekki fram hjá neinum, að skáklistin var í hávegum höfð á því heimili. Guðmundur kvæntist 1956 Ólöfu Jónsdóttur, yndislegri konu, og eignuðust þau tvo mannvænlega syni. Það var svo Ólöf, sem leiddi fjölskyldurnar saman, þegar ég var kominn heim frá námi í Bandaríkj- unum og hafði fundið minn lífsföru- naut. Fyrir það er ég henni ævin- lega þakklátur. Ég og kona mín, Fríða V. Ás- björnsdóttir, eignuðumst þrjá syni, og byrjaði sá næstelzti, Héðinn, að tefla á skákmótum, þegar hann var barn að aldri. Ég er vitahæfileikalaus á þessu sviði og gat ekkert liðsinnt syni mín- um, sem leitaði þá til Guðmundar. Guðmundur tók honum af með- fæddri ljúfmennsku og gekk honum að ákveðnu marki í föðurstað á þess- um árum. Skýtur oft upp í huga mér myndum af syni mínum og Guð- mundi, sitjandi í stofunni heima hjá Guðmundi við skákborðið góða. Eftir að kona mín fór að taka þátt í margs konar félagsmálavafstri, s.s. í samtökunum Landsbyggðin lifi, leitaði hún í síauknum mæli til Guð- mundar um ráðleggingar. Tók hún meira mark á ráðleggingum hans en ráðleggingum nokkurra annarra, þar með talið mínum. Kom þarna fram einn eiginleiki Guðmundar, hann gat krufið hvert mál til mergj- ar og komið fram með lausn, sem byggðist á sanngirni og skynsemi. Þegar húsbyggingum og barna- uppeldi var lokið, gafst meiri tími til ferðalaga. Ég minnist tveggja ógleymanlegra gönguferða, sem við Fríða fórum með Guðmundi og Ólöfu, ferðar yfir Fimmvörðuháls og sögulegrar ferðar yfir Esjuna. Í ferðinni yfir Esjuna lentum við í svartaþoku, og um tíma leit út fyrir, að við yrðum að hafast við uppi á fjallinu yfir nóttina. Í nokkur ár fórum við Fríða með Guðmundi og Ólöfu og vinum okkar, Sigurði Björnssyni og Gretu Håkansson, konu hans, í gönguferð- ir í nágrenni Reykjavíkur á sunnu- dagsmorgnum. Á eftir var farið heim til einhvers okkar eða í sum- arbústað Guðmundar og Ólafar í Ei- lífsdal, snæddur morgunverður og spjallað um alla heima og geima. Eigum við margar ljúfar minningar frá þessum ferðum. Síðustu ár hafa nokkrir bekkjar- bræður úr VI.X í MR hitzt einu sinni í mánuði á kaffihúsi, notið veit- inga og rabbað saman. Guðmundur Pálmason hefur verið í þeim hópi. Við munum efalaust halda þessu áfram, en fundir okkar verða aldrei eins og þeir voru, meðan hann var á lífi. Síðustu ár Guðmundar voru hon- um að mörgu leyti erfið. Hann var orðinn mjög heilsutæpur og þrek hans fór þverrandi. Hann vissi áreiðanlega hvert stefndi. Hann sýndi mikinn kjark og ákvað að nýta þann tíma, sem honum væri skammtaður, til hins ýtrasta. Til marks um það má nefna, að hann keypti jeppa fyrir rúmu ári, svo að þau Ólöf væru betur í stakk búin að ferðast um landið okkar um sum- arið. Þá vann hann að riti um sögu jarðhita á Íslandi, eins og kraftar hans leyfðu, til hinztu stundar. Þau hjónin höfðu líka skráð sig í ferð, sem bekkurinn okkar ætlar að fara til Toscana á Ítalíu í sumar. Verður Guðmundar sárt saknað í ferðinni. Þegar dauðinn tók hann fékk glæsilegur vísindaferill snöggan endi. Við, sem kynntumst honum, gleymum honum aldrei, en við erum þakklát fyrir þann tíma, sem okkur var gefinn til að umgangast hann. Mestur er þó missir fjölskyldu hans. Henni sendum við innilegar samúð- arkveðjur Steingrímur Baldursson. Margir vinir mínir og kunningjar á lífsleiðinni hafa verið haldnir full- komnunaráráttu, allfaf verið að reyna að gera allt betur en vel. Þetta er að sjáfsögðu gleðilegt þeg- ar það tekst en er ekki tekið út með sitjandi sældinni. Ég held að Guðmundur hafi ekki verið haldinn þessari áráttu. Hann var afburðamaður í námi, starfi og leik en virtist ná árangri áreynslulít- ið með eðlilegri ástundun, stóískri ró og yfirvegun. Guðmundur var hamingjumaður í einkalífi og virtist alltaf ganga allt í haginn á öllum sviðum. Leiðir okkar lágu fyrst saman á heimili Guðjóns M. Sigurðssonar og foreldra hans á Urðarstígnum, vet- urinn 1948–49. Hann þá tuttugu ára en ég fjórtán. Þar voru tefldar hrað- skákir, jafnan tvær á sex mínútum- .Við vorum fjórum sinnum saman í sveit Íslands á Heimsmeistaramóti stúdenta í skák. Það eru einkum afrek Guðmund- ar á skáksviðinu sem ég tel mig bera nokkurt skynbragð á. Guðmundur tefldi lítið um dagana. Skákin var honum alla tíð hugleikin en vék fyrir vinnu og heimili. Skilningur, bar- áttugleði, hugkvæmni, reiknigeta og þrek eru eiginleikar sem nýtast vel í skák. Guðmundur hafði einstaklega djúpan skilning á eðli leiksins. Það mun án efa vera helsta ástæðan fyr- ir því hvað honum vannst auðvelt að gera jafntefli við sterka skákmeist- ara. Hann gerði m.a. jafntefli við tvo fyrrverandi heimsmeistara, Euwe og Tal, en einnig við Spassky sem síðar varð heimsmeistari. Guðmund- ur tefldi á þremur ólympíuskákmót- um og sex alþjóðlegum mótum. Hann stóð sig alltaf vel en eftir- minnilegust er mér frammistaða hans á stúdentamótinu í Lyon 1955 en þar tefldi hann á fyrsta borði og átti ríkan þátt í því að við unnum Júgóslava og Tékka, sem þá voru meðal sterkustu skákþjóða heims. Að lokum vil ég þakka Guðmundi samfylgdina. Við Guðrún þökkum þeim Ólöfu fyrir áralanga vináttu. Fjölskyldunni vottum við samúð okkar. Ingvar Ásmundsson. GUÐMUNDUR PÁLMASON  Fleiri minningargreinar um Guðmund Pálmason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskuð eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og amma, SVEINBORG HELGA SVEINSDÓTTIR, sem lést laugardaginn 13. mars, verður jarð- sungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstu- daginn 26. mars kl. 11.00 árdegis. Finnbogi Jónsson, Esther Finnbogadóttir, Ragna Finnbogadóttir, Sigríður R. Júlíusdóttir, Sveinn S. Sveinsson, Finnbogi Guðmundsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, KONRÁÐ E. GUÐBJARTSSON, Unnarstíg 8, Flateyri, sem lést miðvikudaginn 17. mars, verður jarð- sunginn frá Flateyrarkirkju laugardaginn 27. mars kl. 14.00. Elinóra K. Guðmundsdóttir, Petrína Konráðsdóttir, Rúnar Garðarsson, Guðmundur Konráðsson, Bergþóra Ólafsdóttir, Konráð K. Konráðsson, Jónína K. Sigurðardóttir, Guðbjörg Konráðsdóttir, Ólafur Kristjánsson og barnabörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, ELÍ RÓSINKAR JÓHANNESSON húsasmíðameistari, síðast til heimilis á Álfhólsvegi 151, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu- daginn 26. mars kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð njóta þess, sími 560 4100. Gunnar Stefán Elíson, Kristín Elídóttir, Þórir Þórarinsson, Agnes Elídóttir, Málfríður Elídóttir, Víðir Þormar Guðjónsson, Kristbjörg Elídóttir, Sigurjón Guðmundsson, Steindór Jóhannes Elíson, Valgerður G. Guðgeirsdóttir, afa- og langafabörn. Minningarathöfn um móður okkar, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, RÓSU GUNNLAUGSDÓTTUR, sem lést miðvikudaginn 17. mars, fer fram í Kópavogskirkju laugardaginn 27. mars kl. 11.00 f.h. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þorbjörg Jónsdóttir, Steinunn Vilborg Jónsdóttir, Jón Víglundsson, Gunnlaugur Jónsson, Pálmi Dagur Jónsson, Óli Jóhannes Jónsson, Rósa Jónsdóttir, Marinó Jónsson, Hrönn Leósdóttir, Jón Óli Jónsson, Guðrún K. Ásgrímsdóttir, Sturla Einarsson, Karen Olson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.