Morgunblaðið - 25.03.2004, Side 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 45
mannafélags Íslands ber blaða-
manni að vanda upplýsingaöflun
sína, úrvinnslu og framsetningu svo
sem kostur er og sýna fyllstu til-
litssemi í vandasömum málum.
Hann á að forðast allt, sem valdið
getur saklausu fólki eða fólki sem á
um sárt að binda óþarfa sársauka
eða vanvirðu.
Fjölmiðlar gegna óhemju mik-
ilvægu hlutverki í samfélaginu og
þeir eiga að búa við starfsumhverfi
sem gerir þeim kleift að sinna
þessu hlutverki sínu. En um leið
verður að gera miklar kröfur til
fjölmiðla að þeir fari vel með þá
ábyrgð sem þeim er falin. Þeir eiga
að vanda vel til verka þegar þeir
birta umfjöllun um viðkvæm mál
og vega og meta ítarlega hvenær
upplýsingar sem þeir hafa undir
höndum eiga erindi til almennings
og þá í hvaða formi. Ég ætla ekki
að leggja mat á það hvort DV hafi
farið rétt að við birtingu umræddr-
ar yfirheyrslu, það er annarra að
meta. Eitt er víst að birting yf-
irheyrslunnar reynir verulega á öll
þau meginsjónarmið sem vegast á í
umræðunni um mikilvægi heim-
ildaverndar, starfsumhverfi fjöl-
miðla, friðhelgi einkalífs og rétt-
arstöðu þeirra fjölmörgu sem í hlut
eiga.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
’Það er ljóst að hug-takið „almannahags-
munir“ kemur víða við
sögu í svona málum.‘
RANNSÓKNARGÖGN í lík-
fundarmálinu í Neskaupstað hafa
verið afhent fjölmiðli á ólöglegan
hátt, og fjölmiðillinn birtir játn-
ingu eins sakbornings í heild
sinni. Dómsmálaráðherra segir
með réttu, að málið sé grafalvar-
legt. Ríkissaksókni krefst rann-
sóknar á því, hvernig gögnin hafi
komist í hendur fjölmiðilsins.
Ritstjóri fjölmiðilsins segir, að
rannsókn þjóni engum tilgangi,
enda komi engum við, hvernig
hann komst yfir gögnin. Hann á
sjálfsagt eftir að segja, að tilraun
til að upplýsa, hver hafi brotið
trúnað í málinu, sé árás á prent-
frelsi fjölmiðla.
9. apríl 1987 gaf ríkissaksókn-
ari, sem þá var, út ákæru í Haf-
skipsmálinu. Sama dag birti eft-
irsóttasta sorpblað þess tíma
ákæruna í heild og hóf sölu á
blaðinu strax að morgni þess
dags. Síðar sama dag og næstu
daga var ákæran birt sakborn-
ingum í málinu, sem þá voru
flestir búnir að lesa hana í gælu-
blaði ríkissaksóknara.
Ákæran var samin á skrifstofu
ríkissaksóknara. Eðli málsins
samkvæmt átti enginn nema
hann og starfsfólk þess embættis
að hafa aðgang að ákærunni fyrr
en hún hafði verið birt sakborn-
ingum.
Aðspurður sagði ríkissaksókn-
ari við fréttamann, að ákæran
hefði ekki komist í hendur fjöl-
miðilsins fyrir tilverknað síns
embættis. Fréttamaðurinn sá
ekki ástæðu til að biðja ríkissak-
sóknara að skýra mál sitt frekar.
Þáverandi dómsmálaráðherra
talaði ekki um „grafalvarlegt
mál“. Enginn talaði um rann-
sókn. Voru sakborningar í Haf-
skipsmálinu 1987 í lægra flokki
sem borgarar en eiturlyfjasalar
Neskaupsstaðarmálsins 2004?
Hvers vegna þurfti ríkissak-
sóknari 1987 að birta ákæruna í
þjóðfrægu sorpblaði áður en hún
var birt sakborningum? Lágu
þar einhverjir hagsmunir að
baki?
Ekki er ástæða til að tíunda
hér nöfn ríkissaksóknara 1987 né
dómsmálaráðherra. Þeir, sem
hafa áhuga, geta fundið út úr því
í samtímaheimildum.
Axel Kristjánsson
Grafalvarlegt
mál
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
800 7000 - siminn.is
Þú færð tvær símalínur
og þína eigin símstöð.
50% AFSLÁTTUR
af stofngjaldi heimasíma
1 kr.
Léttkaupsútborgun
Fritz stafræn símstöð
og 1.250 kr. á mán.
í 12 mán.
Verð aðeins: 15.001 kr.
• Rafhlaða: Allt að 13 klst. í tali,
2 endurhlaðanlegar rafhlöður NiMh.
• 30 númera númerabirting.
• Endurval síðustu 10 valinna númera.
• Númeraminni fyrir 200 nöfn
og símanúmer.
• 130 gr.
• 10 hringitónar.
• Handfrjáls notkun (hátalari og hljóðnemi).
• Raddstýrður (29 númer).
• Möguleiki á fleiri handtækjum og allt
að 4 móðurstöðvum.
• Innan- og utanhússdrægni: 50/300 m.
• Öflug fyrir venjulegan heimasíma með ISDN.
• Allt að 4 venjuleg símtæki tengd í einu.
• Þú hringir og sendir símtöl frítt innan
símstöðvar.
• 10 símanr. og 3 nr. virk í hverjum símatengli.
• Bæði sími og fax með tölvutengingu.
• Tvö símtæki í notkun í einu, óháð hvort öðru.
• Númerabirting innifalin.
• 12 sérþjónustumöguleikar.
980
Léttkaupsútborgun
Gigaset S100
og 1.250 kr. á mán.
í 12 mán.
Þú getur talað í símann
hvar sem er innan heimilisins.
50% afsláttur af stofngjöldum og fleiri fríðindi
•50% afsláttur af stofngjaldi heimasíma; aðeins 1.950 kr. í stað 3.900 kr.
• 50% afsláttur af stofngjaldi ISDN heimasíma; aðeins 3.450 kr. í stað 6.900 kr.
• Frítt að breyta úr venjulegum heimasíma í ISDN; 0 kr. í stað 3.900 kr.
•Allir viðskiptavinir Símans fá Þína hringingu og aukanúmer frítt í 6 mánuði.
Verð aðeins: 15.980 kr.
Tilboðin gilda til 31. mars.
Borgarstjórinn í Reykjavík b‡›ur til opins
fundar um skipulagsmál í Tjarnarsal
Rá›hússins í dag, 25. mars, kl. 17-19.
Fundarsetning
fiórólfur Árnason, borgarstjóri
Helstu verkefni í skipulagsmálum
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, forma›ur skipulags- og
byggingarnefndar
Innlegg íbúa
Elísabet Gísladóttir, Íbúasamtökum Grafarvogs
Gísli fiór Sigurflórsson, Íbúasamtökum Vesturbæjar
Sigur›ur G. Steinflórsson, kaupma›ur vi› Laugaveg
Páll Ásgeir Daví›sson, átakshópi SBB/Höfu›borgarsamtakanna
A› framsögum loknum sitja fulltrúar borgaryfirvalda fyrir svörum.
DAGSKRÁ:
um skipulagsmál
Borgarafundur
Borgarstjórinn í Reykjavík