Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Beini © LE LOMBARD Grettir Grettir Smáfólk ÞESSI BÓK GETUR EKKI VERIÐ ÁHUGAVERÐARI EN ÉG! HVAÐ ER AÐ FRÉTTA GRETTIR? KEMUR ÞÉR EKKI VIÐ! ÞÚ ERT EKKI EINU SINNI AÐ HLUSTA Á MIG! ÉG ER VÍST AÐ HLUSTA ÞÚ SAGÐIR EITTHVAÐ UM ÞAÐ HVAÐ ÞÚ ERT LJÓTUR, LEIÐINLEGUR OG LYKTAR ILLA ÉG ER AÐ GERA MÍNA SKILDU MITT VERKEFNI ER HÉR Á VELLINUM STUNDUM SÉR MAÐUR STARFSMANN SKÓLANS REKA HUND AF VELLINUM... ÞANNIG AÐ ÉG ER FARINN. EN YFIRHUNDURINN ER SAMT HÆRRA SETTUR! HÆ! BEINI! ÞÚ ERT BARA ALSÆLL, SLJÓR, VEIKBURÐA OG LAUS VIÐ ALLA HEILBRIGÐA SKYNSEMI. HVAÐA VIÐBRÖGÐ ÆTLI ÞÚ SÝNIR EF ÉG SEGI, RJÚPA Í RJÓMALAGAÐRI SVEPPASÓSU? RÁÐGÁTA! ÉG MUNDI SVARA ÞVÍ AÐ RJÚPAN VERÐUR AÐ HANGA ÚTI UM TÍMA ÁÐUR EN HÚN ER SETT Í POTT OG AÐ BEIKONIÐ EIGI AÐ VERA STEIKT UPP ÚR SMJÖRI. BÆTA ÞARF VIÐ HVÍTLAUK OG KRYDDI. LÁTIÐ SÍÐAN KRAUM Í TVO OG HÁLFAN TÍMA. EKKI GLEYMA AÐ HITA SÓSUNA ÁÐUR EN HÚN ER BORIN FRAM ÉG MUNDI VELJA VÍN FRÁ CHILE EÐA BORDEAUX MEÐ MATNUM HREINT LOSTÆTI! ALVEG RÉTT! ÞETTA ER ALGJÖRT LOSTÆTI! BANNAÐ AÐ LESA BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. LAUST eldingu niður í hausinn á þér, Guðmundur? Nei, Guðmundur, þú verður, eins og svo margir aðrir Íslendingar, að læra á biðraðamenningu vorra tíma. Því eins og þú veist þá er það glæp- ur að plata stjórnvöld, en vegna sér- stakra aðstæðna verður þú trúlega ekki sakaður um glæp. Á hvaða báta ert þú nú að heimta kvóta! Ef ég man rétt þá er búið að færa kvóta þrisvar eða fjórum sinnum á þessar fimm þúsund trillur sem aldrei voru til í landinu. Það voru hægfiskidagabátar, hraðfiskidaga- bátar, sunnudagabátar og dagabát- ar og hvað nú öll þessi vitleysa nefn- ist. Þetta er eins og hringekja, svo ört er verið að lappa upp á kvóta- lausar trillur sem enginn skilur hvernig verða til og alltaf er hægt að væla út kvóta eða daga á. Hingað og ekki lengra. Nú er runninn upp tími kvótalausa vertíðarflotans sem hef- ur frá fyrsta degi framsals greitt mjög hátt verð fyrir einnota afla- heimildir og alltaf í von um að auk- inn þorskkvóti muni efla okkar hag með lægra leiguverði eða ölmusu frá stjórnvöldum. Til dæmis í formi nytjaréttar sem byggður væri á meðaltali undangenginna þriggja ára. Því verður ekki á móti mælt að allir þeir gríðarlegu fjármunir sem við höfum greitt fyrir aflaheimildir á leigumarkaði hafa skipt sköpum fyr- ir þau fyrirtæki sem hafa alltof mik- ið af aflaheimildum og hafa orðið að leigja þær frá sér til þess að þær brynnu ekki inni. Nægir þar að nefna ÚA, Tjald og Samherja. Þessi leigufloti hefur mætt þessu háa leiguverði með því að róa með stærri netariðil, stærri möskvum í belg og poka dragnóta og fiskitrolls og kom- ið þannig með stærri og verðmætari fisk að landi sem aftur gerir fram- boðsflóruna mun fýsilegri en aðrar þjóðir geta boðið. Ekki má gleyma fésunum af þessum stóra fiski en þau eru verðmætari en þessi trillu- bátatittlingasúpa upp úr sjó. Sem betur fer virðist sú mikla friðun til tuttugu ára vera farin að skila sér svo ekki verður á móti mælt því þessi stóri þorskur okkar veiðist nú í meira mæli en áður allt í kringum Ísland og suður til Færeyja. En þá skalt þú hundur heita, Guð- mundur, fyrir hönd allra þinna fé- laga ef næstu útgerðir stjórnvalda verða ekki til þess að rétta hlut okk- ar kvótalausa og kvótalitla vertíð- arflota. En illu heilli hefur sagan sýnt að þegar Arthúr Boga og fé- lagar hafa farið að toga þá hafa þeir alltaf valtað yfir stjórnvöld, og vil ég því benda sjávarútvegsráðherra á klippurnar hans Kjærnesteds og klippa aftan úr þeim strax, það er þá allavega friður fyrir þeim á meðan þeir splæsa vírana. ÓLAFUR ARNBERG, Grindavík. Formanni smábáta- félagsins Eldingar á Vestfjörðum svarað Frá Ólafi Arnberg: FRÁ og með 19. mars er HF. Eimskipafélag Íslands orðið dótt- urfélag Burðaráss, sem áður var fjárfestingar-dótturfélag HF. Eim- skipafélags Íslands. Þessi breyting var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta mættra hluthafa á aðal- fundi félagsins þennan dag. Ekki þarf að rekja söguna um stofnun Eimskipafélagsins fyrir 90 árum, sem var merkur kafli í sjálfstæð- isbaráttu þjóðarinnar. Þjóðin öll, ásamt löndum okkar í Kanada, sameinaðist um stofnun þessa fé- lags og það var fögnuður um allt land, þegar fyrsta skip félagsins, E/S GULLFOSS, kom til heima- hafnar, Reykjavíkur, sem þá var höfuðstaður Íslands. Nú virðist mér að meiri hluti Burðaráss gæti tæknilega selt dótturfélag sitt, HF. Eimskipafélag Íslands, hæst- bjóðanda, jafnt erlendum sem inn- lendum aðilum. Að vísu ber ég fullt traust til núverandi eigenda Burðaráss og veit að þeir eru dug- andi menn og framsýnir, sem sjá sér færi á að fara í víking og fjár- festa í góðum fyrirtækjum á er- lendum vettvangi landi okkar til vegsauka og til hagsbóta fyrir við- skiptamenn félagsins og hluthafa. En ég ber þá von í brjósti að þeir láti aldrei freistast af erlendum til- boðum hversu mikið gull, sem kynni að vera í boði, og haldi þessu alíslenska 90 ára óskabarni þjóðarinnar H/F Eimskipafélagi Íslands, ávallt í íslenskri eigu. Einnig vona ég að sá draumur eigi eftir að rætast að íslensk kaupskip sigli á ný undir hinum fagra fána okkar, en vegna samkeppnisað- stöðu virðist það óhentugt nú um stundir; en spurningin er, gætu ís- lensk stjórnvöld e.t.v. bætt úr þessu ástandi með laga- eða reglu- gerðarsetningu, sem gerðu inn- lendum kaupskipaútgerðum á ný fært að sigla undir íslenska fán- anum? Íslendingar hafa enn ekki glatað stolti sínu. ÁRNI KR. ÞORSTEINSSON, Smyrilsvegi 29, 107 Reykjavík. Óskabarn þjóðar- innar verði ávallt í íslenskri eigu Frá Árna Kr. Þorsteinssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.