Morgunblaðið - 25.03.2004, Side 56

Morgunblaðið - 25.03.2004, Side 56
ÍÞRÓTTIR 56 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ HREFNA Jóhannes- dóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur skrif- að undir samning við norska félagið Medkila sem leikur í efstu deild þar í landi, en Medkila er frá bænum Harstad sem er í Norður-Noregi, mitt á milli Bodö og Tromsö. Í viðtali við Harstad Tidende segir Hrefna að hún eigi aðeins eftir að ganga frá ýmsum málum á Íslandi áður en hún geti flutt alfarið til Harstad en hún mun starfa sem aðstoðarsundkenn- ari samhliða knattspyrnunni en samningurinn er til eins árs. Hrefna gæti leikið fyrsta leik sinn fyrir Medkila um næstu helgi er liðið leikur æfingaleik gegn Trondheim/Örn frá Þrándheimi en í apríl fer Medkila í æfingaferð til La Manga á Spáni. Forráðamenn Medkila hafa sett það sem skil- yrði að Hrefna læri norsku sem fyrst og í viðtalinu segir fyrrver- andi framherji KR- liðsins að það verði ekki vandamál, en það gæti hins vegar tekið hana lengri tíma að læra nöfnin á samherjum sínum þar sem slíkt sé ekki hennar sterkasta hlið. Hrefna er búin að semja við Medkila í N-Noregi Hrefna ÞRETTÁN af sautján leikmönnum sem voru í íslenska landsliðinu á EM í handknattleik í byrjun árs voru valdir í sextán manna lands- liðshóp sem Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, til- kynnti í gær að hann hefði valið vegna tveggja vináttulandsleikja við Frakka nk. mánudag og mið- vikudag í í Frakklandi. Ólafur Stefánsson, Ciudad Real, er upptekinn með liði sínu í spænsku bikarkeppninni sem fram fer í næstu viku. Sigfús Sigurðsson, Magdeburg, fær frí til að jafna sig á hnémeiðslum og Patrekur Jóhann- esson fær einnig leyfi til að safna kröftum en meiðsli hafa plagað hann meira og minna í allan vetur. Þá varð Jaliesky Garcia, Göpp- ingen, að boða forföll. Í þeirra stað kallaði Guðmundur í Arnór Atla- son, KA, Einar Hólmgeirsson, ÍR, og Loga Geirsson, FH, en aðrir eru: Guðmundur Hrafnkelsson, Kro- nau/Östringen, Reynir Þór Reyn- isson, Víkingi, Guðjón Valur Sig- urðsson, Essen, Gylfi Gylfason, Wilhelmshavener, Einar Örn Jóns- son, Wallau Massenheim, Róbert Sighvatsson og Gunnar Berg Vikt- orsson, Wetzlar, Róbert Gunn- arsson, Århus GF, Dagur Sigurðs- son, Bregenz, Snorri Steinn Guðjónsson, Grosswallstadt, Rúnar Sigtryggsson, Wallau Massenheim, Ragnar Óskarsson, Dunkerque, Ás- geir Örn Hallgrímsson, Haukum. Arnór, Einar og Logi valdir í Frakklandsferð FÓLK  SVÍINN Stuart Baxter, fyrrum þjálfari norska liðsins Lyn, var í gær ráðinn landsliðsþjálfari S-Afr- íku í knattspyrnu. Baxter verður tí- undi landsliðsþjálfari S-Afríku- manna á síðustu 10 árum en hann tekur við starfi Ephraim Mashab sem var látinn hætta í janúar.  PAOLO Maldini fyrirliði Evrópu- meistara AC Milan lék sinn 130. Evrópuleik í sigurleik liðsins á De- portivo La Coruna. Þar með hefur Maldini leikið fleiri Evrópuleiki en nokkur annar leikmaður en hann deildi metinu fyrir leikinn með Hol- lendingnum Ronald de Boer.  MALDINI, sem er 35 ára gamall, lék sinn fyrsta Evrópuleik 17 ára gamall þegar hann kom inná í leik gegn Auxerre í Evrópukeppni bik- arhafa árið 1985. Maldini hefur unnið fjóra Evrópumeistaratitla, 1989, 1990, 1994 og 2003 en hann var í tapliði Milan í tveimur úrslita- leikjum 1993 og 1995.  FORSVARSMENN norska knatt- spyrnuliðsins Vålerenga frá Ósló hafa beðið þjálfara liðsins, Kjetil Rekdal að láta bera minna á sér á spilavítum á La Manga á Spáni þar sem liðið hefur dvalið við æfingar að undanförnu. Rekdal er einnig leikmaður liðsins og hafa margir leikmenn Vålerenga verið iðnir við kolann í spilavítunum á La Manga og einn þeirra, Runar Normann, náði sér í yfir 2 millj. kr. á einu kvöldi.  KJETIL Siem framkvæmdastjóri liðsins segir að það sé ekki góð fyr- irmynd fyrir yngri kynslóðina að leikmenn liðsins láti mikið á því bera að þeir stundi spilavítin.  KLAUS Augenthaler hefur framlengt samning sinn við Bayer Leverkusen til eins árs en núver- andi samningur hans við félagið átti að renna út í sumar. Augenthaler hafði áður sagt að hann ætlaði ekki að endurnýja samninginn nema að honum tækist að tryggja liðinu sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð, en ólíklegt er að það takist þar sem Leverkusen er nú í 14. sæti í þýsku 1. deildinni. Eigi að síður ákvað Augenthaler að framlengja samn- inginn um eitt ár og freista þess að ná markmiði sínu á næstu leiktíð.  FORRÁÐAMENN sundlaugar í ensku borginni Blackpool hafa komist að þeirri niðurstöðu að banna gestum laugarinnar að synda baksund þegar flestir gestir eru í lauginni. Enska dagblaðið Daily Telegraph segir að þetta sé í fyrsta sinn sem slíkt bann er sett á laggirnar á Bretlandseyjum en það var borgarráð sem samþykkti regl- urnar. Ástæðan mun vera sú að borgaryfirvöld vilja koma í veg fyr- ir að skaðabótamál verði sótt gegn borginni af gestum sem slasast í lauginni vegna baksundsiðkunar sinnar. Ólafur Gíslason, markvörður ÍR,gaf tóninn á upphafskafla leiks- ins og á fyrstu 10 mínútum leiksins varði hann 9 skot frá máttlitlum Haukamönnum. ÍR- ingar voru gríðarlega hreyfanleg í upphafi og áttu Haukarnir fá svör við 3/2/1 varnar- leik liðsins. Að venju var Júlíus Jón- asson í aðalhlutverkinu í hjarta varn- arinnar og Fannar Þorbjörnsson lék vel í vörn sem sókn. Lykilmenn í liði Hauka fundu sig ekki í sóknarleiknum að þessu sinni. Andri Stefan og Ásgeir Örn Hall- grímsson komust lítt áleiðis og aðeins Robertas Pauzuolis virtist finna gluf- ur á vörninni. Enda skoraði hann 12 mörk í leiknum. Þórir Ólafsson átti fína spretti í hægra horninu, og Birkir Ívar Guðmundsson var fínn í markinu og varði 19 skot. Haukar lögðu gríðarlega áherslu á að stöðva Einar Hólmgeirsson stór- skyttu ÍR-inga og þurfti hann að hafa mikið fyrir því að skora átta mörk. Ingimundur Ingimundarson og Hannes Jón Jónsson reyndu einnig að draga vagninn í sókninni en sá síð- arnefndi náði ekki að skora mikið ut- an af velli. Ingimundur er gríðarlega kraftmikill leikmaður og skoraði með fjölbreyttum hætti. Þetta er algjört rugl „Við lékum ekki vel í fyrri hálfleik og varnarleikurinn var skelfilegur. Það vantaði alla baráttu og samvinnu en sem betur fer lagaðist leikur okkar í þeim síðari. Það var ákveðið að fara að engu óðslega þegar við vorum með boltann og aðeins 30 sekúndur eftir. Við lögðum á ráðin að taka skot en ekki taka neina áhættu á að þeir næðu hraðaupphlaupi. Leikmenn beggja liða voru þreyttir. Enda ekki skrítið þar sem að liðin hafa verið að leika 8 leiki á 20 dögum. Þetta er náttúrulega bara algjört rugl en því verður ekki breytt héðan af,“ sagði Páll Ólafsson, þjálfari Hauka. Hefðum átt að gera betur „Við náðum ekki að fylgja góðri 3:2:1 vörninni sem við byrjuðum á nógu vel eftir. Haukarnir leystu sókn- arleikinn betur í síðari hálfleik en við hefðum getað gert mun betur í sókn- arleiknum á lokakaflanum,“ sagði Júl- íus Jónasson þjálfari ÍR og var ekki alveg sáttur við ýmis atvik sem áttu sér stað á lokakaflanum sem féllu lið- inu ekki í hag. „Ég hefði viljað fá tvö til þrjú vítaköst til viðbótar okkur í hag en svona er þetta, Páll Ólafsson er eflaust á annarri skoðun og við verðum víst að lifa við þetta.“ Ólafur í ham gegn Haukum GRÍÐARLEG barátta einkenndi leik ÍR og Hauka í úrvalsdeild karla í handknattleik í gær, þar sem að liðin skildu jöfn, 25:25. Ólafur Gíslason fór á kostum í marki ÍR og varði 25 skot. Haukar eru í öðru sæti með 23 stig á eftir Val sem er með 24 stig. Haukar eiga því enn möguleika á deildarmeistaratitlinum en ÍR-ingar geta aðeins náð 2.- 4. sæti þegar ein umferð eftir. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar ÍSLENSKA drengjalandsliðið í knattspyrnu lagði Norðmenn að velli, 2:1, í fyrsta leik sínum í milliriðli Evrópukeppninnar í gærkvöldi en leikið var í Scunthorpe í Englandi. Norðmenn komust yfir úr vítaspyrnu rétt fyrir hlé en Gunnar Kristjánsson jafnaði fyrir Ísland í byrjun síðari hálfleiks, fylgdi eftir við marklínuna eftir að Bjarki Már Sigvaldason átti hörku- skot úr aukaspyrnu sem mark- vörður Englands hélt ekki. Það var síðan Arnór Smára- son sem skoraði sigurmarkið þegar tvær mínútur voru komnar framyfir leiktímann, eftir nær látlausa sókn Íslands í síðari hálfleik. England sigraði Armeníu, 2:0, í gærkvöldi. Norðmenn lagðir TVEIR breskir markverðir dvelja þessa dagana í æfingabúðum í Portúgal með kvennaliði ÍBV í knattspyrnu. Það eru Daniele Hill, markvörður enska liðsins Everton, og Claire Johnstone, markvörður Hibernian í Skotlandi, sem jafn- framt er varamarkvörður skoska landsliðsins. ÍBV er að leita að markverði í staðinn fyrir enska landsliðs- markvörðinn Rachel Brown, sem slasaðist illa í vetur og spilar ekki í sumar. Hill hefur einmitt leyst hana af hólmi í marki Everton í vetur. Þær Hill og Johnstone hafa skipst á um að spila í markinu hjá karlaliði Hvatar frá Blönduósi, sem dvelur á sama stað og ÍBV í Portú- gal. „Þær hafa staðið sig með sóma, fengu eitt mark á sig í leik gegn Núma og þrjú í leik gegn 1. deild- arliði Fjölnis, og þetta hefur gefið okkur úrvals tækifæri til að skoða þær vel,“ sagði Heimir Hall- grímsson, þjálfari ÍBV, við Morg- unblaðið í gær. Michelle Barr og Mhairi Gilmour frá Skotlandi komu til móts við ÍBV í Portúgal og koma með liðinu heim. Þær hafa leikið með Hib- ernian í vetur en Barr hefur leikið með ÍBV í þrjú ár og Gilmour í eitt ár. Þá er enska landsliðskonan Kar- en Burke væntanleg til Eyja á ný með vorinu en hún spilar með Don- caster Belles í ensku úrvalsdeild- inni í vetur. ÍBV prófar tvo markverði í Portúgal Þar með ræðst það ekki fyrr en ílokaumferðinni hvort félagið tryggir sér sæti í úrslitakeppninni. Liðin eru jöfn að stigum og verði þau það áfram eftir loka- umferðina ná HK- ingar sjötta sætinu þar sem þeir standa betur að vígi í innbyrðisviðureignum. Páll Þórólfsson var drjúgur fyrir gestina í fyrri hálfleik og það var mest fyrir hans tilstilli sem Grótta/ KR náði fjögurra marka forskoti í fyrri hálfleik, 9:5. Páll skoraði fimm af átta fyrstu mörkum Gróttu/KR í leiknum en HK tókst að jafna metin í 10:10 fyrir leikhlé og skipti þar mestu að liðsmenn Gróttu/KR urðu illa fyrir barðinu á brottrekstrum á lokakafla fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik var jafnt á flest- um tölum og spennan mikil. Varn- irnar voru fastar fyrir en sóknar- leikurinn var ekki mjög áferðarfagur, mikið um hnoð og mistök og leikurinn einkenndist af mikilli taugaspennu. Þegar rúmar átta mínútur voru til leiksloka náði Grótta/KR tveggja marka forskoti og teikn voru á lofti um að liðið væri að tryggja sér sigurinn en eftir mik- inn darraðardans á lokamínútunum tókst HK að knýja fram jafntefli. Kristinn Björgúlfsson kom Gróttu/ KR í 24:23 rúmri mínútu fyrir leiks- lok með þrumuskoti. Oleg Titov fékk reisupassann skömmu síðar, fyrir litlar sakir að því er virtist, og 23 sekúndum fyrir leikslok stakk Atli Þór Samúelsson sér í gegnum vörn Gróttu/KR. Gísli Guðmundsson varði skot hans með tilþrifum en dómarar leiksins dæmdu vítakast en undirritaður gat ekki séð betur en að Atli hefði fengið frítt skot. Ólafur Víðir var ískaldur og skoraði af ör- yggi úr vítinu og sá tími sem eftir var dugði Gróttu/KR ekki til að ná skoti á markið. „Fjórir eða fimm dómar undir lokin voru alveg út í hött og þeir gerðu það að verkum að við tókum ekki bæði stigin. Það var alveg skelfilegt að horfa upp á þetta. Þetta var ekki víti og brottrekst- urinn á Titov var rangur dómur svo og fleiri á ögurstundu,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR við Morgunblaðið, eftir leikinn. Páll Þórólfsson og Gísli Guðmundsson léku best í liði Gróttu/KR og þá kom Kristinn Björgúlfsson sterkur upp á síðasta stundarfjórðungi leiksins. Líkt og hjá Gróttu/KR var vörnin aðalsmerki HK-inga í þessum leik. Ólafur Víðir og Rackauskas báru sóknarleikinn uppi, Rackauskas var þó nokkuð seinn í gang. Elías Már Halldórsson átti fínan leik í horninu og baráttan var til staðar hjá Kópa- vogsliðinu. „Þetta var barátta út í gegn og þegar öllu á botninn er hvolft þá held ég að jafntefli hafi verið sann- gjörn úrslit. Nú er þetta í okkar höndum og við verðum bara að gjöra svo vel að leggja Val að velli til að tryggja okkur inn í úrslitakeppn- ina,“ sagði Vilhelm Gauti. Barist áfram eftir jafntefli HK og Grótta/KR deildu stigunum í geysilega miklum baráttuleik í Digranesi í gærkvöldi þar sem ekkert var gefið eftir, hvorki hjá leik- mönnum, stuðningsmönnum né þjálfurum liðanna. Úrslitin urðu 24:24 og jafnaði Ólafur Víðir Ólafsson metin fyrir Kópavogsliðið úr vítakasti 20 sekúndum fyrir leikslok. Guðmundur Hilmarsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.