Morgunblaðið - 25.03.2004, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 25.03.2004, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 63 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. Charlize Theron: fyrir besta leik í aðalhlutverki. Jack Black fer á kostum í geggjaðri grínmynd sem rokkar!LÆRÐU AÐ ROKKA!! Ekki eiga við hattinn hans. Kötturinn með hattinn tt ri tti Sýnd kl. 6. Ísl texti Sýnd kl. 6, 8 og 10.15 Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. SÝND Í A SAL Á STÆRSTA THX TJALDI LANDSINS (Píslarsaga Krists)  SV Mbl  Skonrokk Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna. Byggð á hinni sígildu bók sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. r r f rir ll fj l l . i i í il i f r t í í l ri i . HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 10.10. Besta frumsamda handrit Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. www .regnboginn.is Sýnd kl. 5.40 og 8. Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 11. B.i. 16 ára. HP. Kvikmyndir.com Fleiri börn...meiri vandræði! Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. (Píslarsaga Krists) Kvikmyndir.is  Skonrokk www.lyfja.is Skrefi framar Sokkar, sokkabuxur, undirföt www.sokkar.is OROBLU ráðgjafi verður í dag kl. 13-17 í Lyfju Smáralind. Sokkabuxur fylgja öllum Oroblu vörum sem kaupauki ER maðurinn heimskur? spyrja strákarnir í ræðuliðum Verzl- unarskóla Íslands og Mennta- skólans við Hamrahlíð en þeir eig- ast við í úrslitakeppni Morfís sem fram fer í Háskólabíói í kvöld. MH er meðmæltur fullyrðingunni en Verzlingar á móti. „Við erum á fullu að æfa og gengur bara ljómandi vel,“ segir Atli Bollason, einn keppendanna í MH-liðinu. Hann segir að þeir séu ekkert stressaðir enda séu þeir orðnir nokkuð vanir keppni sem þessari. Hann viðurkennir þó að hafa fengið martröð um daginn. „Núna í seinustu viku dreymdi mig að ég væri kominn upp á svið í MH og var allslaus. Ég ætlaði að byrja að fara með ræðu en það kom ekki neitt, svo þegar ég fékk loksins ræðuna í hendur var hún bara ólæsileg,“ segir hann og hlær. Í Morfís er hver viðureign viku- ferli, umræðuefnið er ákveðið á föstudegi, síðan fá liðin viku til að undirbúa sig þar til keppnin fer fram. „Við hittumst og förum yfir öll hugsanleg rök með og á móti fullyrðingunni, síðan skiptum við þeim með okkur og skrifum svo ræðurnar,“ útskýrir Atli. Er maðurinn heimskur? „Já, ég get ekki betur séð. Ég held að við munum alveg tala eftir eigin sannfæringu og ekkert eiga í erfiðleikum með það.“ Verzlingar munu hins vegar mótmæla fullyrðingunni og segist Böðvar Bragi Arnarsson, stuðn- ingsmaður í liði Verzló, sáttur við það. Hann bendir þó á að það hafi kostað töluvert erfiði að finna um- ræðuefni sem allir voru sáttir við. „Við í liðunum hittust klukkan fjögur á föstudegi og vorum að pæla í þessu til fjögur um nóttina þegar við loksins gátum komið okkur saman um þetta.“ Hann segir ekkert stress vera í liðinu, sjálfur sé hann yfirleitt frekar rólegur áður en hann stígur í pontu. „Mér finnst þetta aðallega bara gaman. Svo fer líka allt stress af manni um leið og maður byrjar að tala, sérstaklega ef mað- ur fær salinn með sér.“ Hann segir að viðureignirnar hafi hingað til alltaf gengið nokkuð vel hjá þeim, reyndar hafi menn stundum verið veikir að keppa eins og fyrir undanúrslitakeppnina síðustu. „Þá vorum við allir mjög kvefaðir og hámuðum í okkur hóstamixtúrur og C-vítamín á fullu, hefðum líka eflaust allir fall- ið á lyfjaprófi.“ MH og Verzló í úrslitum í Morfís á morgun Allslaus á sviðinu með ólæsi- lega ræðu Morgunblaðið/Jim Smart Strákarnir í ræðuliði Verzló telja að maðurinn sé ekki heimskur. Morgunblaðið/Heiðar Þór „Maðurinn er heimskur! Reykingar eru til marks um það,“ segja strák- arnir í ræðuliði MH. Úrslit í Morfís hefjast kl. 20 og fara fram í Háskólabíói á morgun. bryndis@mbl.is DAGANA 6., 7. og 8. apríl verður blúshátíð haldin á Hótel Borg. Það er Blúsfélag Reykjavíkur sem stendur að hátíðinni. Hinn 6., sem er þriðjudagur, leika Maggi Ei- ríks og Blúskompaníið og Dóri og Gummi P Mood. Hinn 7. eru það Blúsmenn Andreu og Smokie Bay Blues Band (Mikki og Danni Pol- lock). Síðasta kvöldið, fimmtudag- inn 8., leika Vinir Dóra, Páll Rós- inkrans og Doug Lang. Allir tónleikar hefjast klukkan 21. Segir á heimasíðu Blúsfélags Reykjavíkur að stefnt sé að því að blúshátíð í Reykjavík verði árleg- ur liður í menningarlífi borg- arinnar. Aðgangseyrir á staka tónleika er 1.800 krónur en einnig er hægt að kaupa sérstakan Blúsmiða sem gildir á alla tónleikana. Kostar hann 4.000 krónur. Hægt er að panta miða með tölvupósti á bluesice@hotmail- .com þar sem fram kemur fullt nafn, símanúmer, netfang og mið- afjöldi. Blúshátíð í Reykjavík 6. til 8. apríl Blúskompaníið snýr aftur Magnús Eiríksson treður upp með Blúskompaníi, sveit sem hann stofnaði árið 1969. www.blues.is LOKASÝNING á Nemendamóts- sýningu Verzlunarskóla Íslands, söngleiknum Sólsting eftir Þorstein Guðmundsson, verður í kvöld í Loftkastalanum. Fer vel á því að leikstjóri sýn- ingarinnar, leik- arinn Jóhann G. Jóhannsson, taki þá að sér eitt af burðarhlutverk- unum, hlutverk Simma. Sá er leikið hefur það, Davíð Gill, verður nefnilega önnum kafinn við undirbúning fyrir úrslit- in í úrslitum MORFÍS, ræðukeppni framhaldsskólanna. Davíð er í liði Verzló, sem mætir MH. Sólstingur er sýnt í Loftkast- alanum og er sýningin kl. 20 í kvöld. Síðasti Sól- stingurinn Jóhann G. í verður í hlutverki Simma í kvöld. ROKKARINN og sjónvarpsstjarn- an Ozzy Osbourne þykir henta best í það starf að taka á móti geimverum ef þær tækju upp á því að bregða sér í heimsókn til okkar jarðarbúa. Þessi 55 ára gamli fyrrum söngvari Black Sabbath var efst- ur á lista yfir þá sem menn vilja að verði fulltrúi mannfólksins hjá geimverum, samkvæmt könnun Yahoo. Gamli rokkarinn var langt fyrir ofan sjónvarpsstjörnurnar Ant og Dec sem voru næstir á list- anum og forsætisráðherra Bret- lands, Tony Blair, sem var í þriðja sæti. Ozzy taki á móti geimverum Ozzy karlinn þykir besti sendiherra jarðarbúa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.