Vísir - 08.05.1981, Side 11
Föstudagur 8. mal 1981
vtsm
11
i
Nú vllja anir lá lán úr Flskveiðlsjóði:
Sjððurlnn samúvkklr
kaup á nokkrum
flskibálum að ulan
Nýja reglugeröin, sem
sjávarútvegsráöherra setti fyrir
Fiskveiöasjóö Islands, skapaöi
örtröö umsækjenda um fyrir-
greiöslu til fiskikaupa hjá sjóön-
um, að þvi er Sverrir Júliusson
upplýsti fréttamann um. „Menn
héldu að nú væri allt opiö og
frjálst,” sagöi Sverrir.
Jón
Magnússon
neitar að
sitja í
nefndinni
1 tilefni fréttar á forsiðu Visis i
gær, þar sem meðal annars kom
fram að Jón Magnússon form.
SUS og miðstjórnarmaður i Sjálf-
stæðisflokknum hafði verið kjör-
inn i nefnd á fundi sjálfstæðis-
manna um siðustu helgi, hefur
Jón óskað eftir að koma þvi á
framfæri, að hann hafi hvorki
setið umræddan fund, né gefið
kost á sér til nefndarstarfa. Mun
Jón þvi ekki taka sæti i nefndinni.
Hreinsun
í Breiðholti
Framfarafélag Breiðholts 3
efnir til hreinsunardags i Fella-
og Hólahverfum á morgun og
hvetur stjórn félagsins ibúana til
að gera hreint fyrir sinum dyrum
og i næsta nágrenni þennan dag.
Tómum sorppokum verður út-
deilt frá klukkan 10 i fyrramálið i
Fel lahelli og anddyri Hóla-
brekkuskóla. Hreinsunardeild
borgarinnar sér svo um að fjar-
lægja fulla poka frá vegarbrúm
aðalbrauta.
Hann sagði einnig að nú væri
búið að ganga frá öllum fyrir-
greiðsluloforðum, sem hægt væri
að samþykkja á þessu ári, láns-
fjáráætlunin geröi ekki ráð fyrir
meira fé til þeirra þarfa.
Búlandstindi hf. á Djúpavogi
hefur verið heimilað aö kaupa
fiskibát frá útlöndum. Borgþór
Pétursson framkvæmdastjóri
sagði að þeir leituðu nú að
230—240 lesta togbát, sem hentaði
og væri ekki eldri en 5 ára gamall,
en það er skilyröi, sem Fiskveiöa-
sjóður setur.
Einkaaðili i Vestmannaeyjum
hefur fengið heimild til kaupa á
svipuöu skipi, eða stærra.
Jón Magnússon útgerðarmaður
á Patreksfirði er að láta smiða yf-
ir skipsskrokk, sem hann flutti
inn, en nýja skipið á að koma i
stað Garðars, sem smiðaður var
1912 og Jón hefur róið á undan-
farin ár. Fiskveiðasjóður hefur
samþykkt fyrirgreiðslu til Jóns.
Nýsmiöar, sem sjóðurinn hefur
samþykkt innanlands, er togari
fyrir Þingeyri og tveir bátar 26 m
langir, raðsmiöaðir. Ekki hefur
endanlega verið gengið frá hverj-
ir fá þá báta. Þeir sem eru efstir á
lista umsækjenda hafa enn ekki
sannað kaupgetu sina, og meðan
svo er vill Sverrir ekki gefa upp
hverjir það eru.
— SV.
Lést af
völdum
meiösla
Maðurinn, sem legið hafði á
gjörgæsludeild Borgarspitalans
frá þvi hann datt af hestbaki
föstudaginn fyrsta mai, lést i
fyrradag. Hann hét Friðrik Ber-
mann Bárðarson og var frá Dal-
vík. Friðrik lætur eftir sig konu og
fimm börn.
Er Friðrik féll af baki, höfuð-
kúpubrotnaði hann og komst
aldrei til meðvitundar.
— ATA
WERKSMIDJU
i SAMBANDSVERKSMIÐJANNA
Á AKUREYRI
SÝNINGAHÖLUNNIBÍLDSHÖFÐA
PH 4.-9.MAÍ
NR™ Opið:
Wm í dag kl. 1-10
V Síðasta dag
laugardag frá kl. 9-16
Frá Gefjun:
Ullarteppi, teppi, teppabútar, áklæði, glugga-
tjöld, buxnaefni, kjólefni, ullarefni, garn, loð-
band, lopi. o
Frá Fataverksmiðjunni Heklu:
Úlpur, gallabuxur, peysur, samfestingar og
sokkar.
Frá Ylrúnu:
Sængur, koddar, svefnpokar, rúmteppi.
Frá lager f.
Tízkuvörur úr ull, peys-
ur, fóðraðir jakkar, pils,
vesti, ofnar slár og káp-
ur.
Frá verksmiðjunni
Skinnu:
Mokkakápur, mokka-
jakkar, mokkahúfur,
mokkalúffur.
Frá Torginu:
Dömu-, herra- og barna-
fatnaður, herraföt, karl-
mannaskór, kvenskór,
unglingaskór, barna-
skór, vinnuskór og tré-
klossar.
Það kostar ekkert að fíta inn
og með smá viðbótjjfá tryggja
sór margt eigulegfcZ'
Strætisvagna-
ferðir frá Hlemmi
með leið 10.