Tíminn - 24.12.1969, Blaðsíða 28

Tíminn - 24.12.1969, Blaðsíða 28
28 TÍMINN JÓLABLAÐ Jólasiðir eru að sjálfsögðu ólíkir í hinuim ýmsu löndum heims, og á það jafnt við um trúarlífið sem aðrar jólavenjur fólks. Jólin eru kristin hátíð, en þau hafa einnig leyst af hóimi fornar sólarhátíðir heið- inni manna, og ennfremur hef- ur þessi hátíð mótazt með sín- um hætti á hverjum einstök- um stað. Erfitt er að skera úr um, hvaða siðir og hvaða máltíðir jólanna eru mest einkennandi fyrir hvert hérað eða land. Fólk flyzt búferlum og tekur með sér siði heimila sinna og heimabyggSa og lagar það eft- ir þörfum sínum og hugmynd- um. Því má vel vera, að ýmislegt af því, sem sagt verður hér á eftir um jólahald í hinum ýmsu löndum, 'eigi einnig við um önnur lönd. Hvaða Dani treystir sér t.d. til að segja um, hvaða jólamatur er vin- sælastur í Danmörku? Er það jólagæsin, sem allir tala um, eða er það svínasteik, sem er aigengasta jólafæðan? Aðalatriðið er, að á jólum reyna allir að hafa hátíðamat, eftir efnum og ástæðum. Á Norðurlóndum er venja að hafa matinn vel útilátinn á jólunum. í Finnlandi og Sví- þjóð er ekki ótítt að sjá jóla- borðin ^vigna undir grísalær- um, svínasultu, pylsum, síld, reyktum kindaiærum og öðru góðgæti. FINNLAND. í Finnlandi er borðað sér- stafct jólabrauð. Bakað er eitt stórt brauð, sem nefnist „stor- limpa“ og mörg minni, sem staflað er umihverfis það. Ofan á alit saman er svo iagður stór og mikill ostur. Með þessu er drukkið vodka eða brennivín. Annað jólahnossgæti finnskt er krydduð, innbökuð fisk- eða fleskstyikki, sem borðuð eru eins og kökur méð öii og ÞANNIG HAFA ÝMSAR ÞJÓDIR ÞAD Á JÓLUM brennivíhi. í gamla daga var síðasti réttur jólamáltíðarinn- ar grautur og snafe. Það var hrísgrjónagrautur með sætu öli, og sá, sem mestu gat torg- að fékk brennivín að launum. í Finnlandi hefst jólahátíð- in 21. desember, en aðaljóla- krásanna var ekki neytt fyrr en á aðfangadagskvöld. NOREGUR OG SVÍÞJÓÐ. Þegar rætt er um jólin í Noregi og Svíþjóð, verður ekki komizt hjá því að nefna lút- fiskinn. Stækjuna af honurn leggur um allt hús, en þeim. sem kunna að meta hann, finnst lútfiskurinn hreinasta himnaríkisfæða. Séreinkenni jólanna í Svíþjóð eru Lúsíu- hátíðarnar, en þær eru þar, einkum í Vermalandi og Vest- ur-Svlþjóð, með öðrum hætti, en annars staðar á Norður- löndum. Aðlfaranótt Lúsiuhátíðarinn- ar var talin lengsta og dimim- asta nótt ársins. Áður en al- manakinu var breytt 1582, var það nokfcurn .veginn rétt, að 13. desember var stytzti dagur ársins. Á öðrum stöðum lögðu menn niður Lúsíuhátíðina, og fluttu hátíðahöldin yfir til jól- anna, en á Vermalandi lagðist hún aldrei niður því í svart- asta Skammdeginu þörfnuðust Vermlendingar þess einmitt að halda hátíð ljóssins. Þá var gamall sænskur siður að baka jólakökur, sem áttu að vera kringlóttar eða eins og lifandi verur að lögum. Senni- lega áttu þær að tákna geit- hafur Þórs eða gölt Freyju. Þetta eru víst upprunalega sömu kökurnar og kökukarl- arnir og kerlingarnar, sem bak aðar eru á jólum nú. Maturinn á aðfangadags- kvöld var soðinn, þurrkað- ur fiskur, „jólasúpa", sem að- eins var borðúð þennan dag ársins, og var súpa af svína- hrygg blönduð nýmjólk. Á eft- ir fcom grautur, rifjasteik og terta. Lúsíuhátíðin er með meiri alvörublæ í Noregi. Alrnenn- ingur trúði 'því, að ill öfl væru þá á ferli og spilltu fólki og skemmdu jólaölið. Andar fram- liðinna herjuðu í myrkrinu og höfðu á bivitt með sér það, sem fyrir varð. Hugtakið „jálafriður“ felur í sér bann við vopnaviðskipt- um um jólin. Hann var tekinn mjög alvarlega í Noregi og komst inn í veraldlega löggjöf landsins. „Jólafriðurinn" byrj- aði 21. desember og átti að standa í þrjár vikur. Maður nokkur, sem dæmdur var sam- kvæmt þessari lagagrein í borg ariögum Björgvinjar, var dæmdur að greiða tvöíalda sekt fyrir afbrot sitt. Einnig var haldinn „jólavörður". Varð mennirnir leituðu síðan af- dreps hjá vinum og kunningj- um og fengu hvarvetna „trakt- eringar". í Noregi var einnig sums staðar siður að fiengja fólk með hrísi í rúminu á jóla- dagsmorgun. Gamall, norrænn siður var að strá jólahálmi á gólfið, en síðan svaf hver fjöl skylda þétt saman á gólfinu á jólanótt. Þessi siður hélzt lengi í Vestur-Noregi og er þar enn við lýði á stöku stað. Sá siður er kominn frá Róm- verjum, að húsbóndinn og hás móðirin fara fyrst á fætur og bjóða fijölskyldunni og gestum mat. Vegna helgi jólanna var matur tilreiddur til tveggja vikna í einu, svo svínakjötið var aðeins heitt á aðfanga- dagskvöld. í Noregi hélzt sá siður að drebka jólaskál fram á miðja 18. öld. Sérlega lengi héldu bændur þeim sið að drekká skál heilags anda, en hann var kominn frá kaþólskum sið. DANMÖRK. Danir hafa tekið upp Lúsíu hátíðina og einnig marga siði frá öðrum þjóðum. Á fyrri tímum var jólahá- tíðin frjálslegri og glaðværari en nú. Jólageithafurinn heyrði til hinni heiðnu jólahátíð. Þó eimir enn eftir af honum í þeim sið að búa til hafur úr háimi. Upprunalega var þetta þannig, að maður — klæddur geitarskinni og með geitarhöf- uð — sleit hátíðahöldunum. Hann bar tákn Þórs og var í kristnum sið álitinn djöfull- inn sjálfur. Loks gengu þessir siðir of langt og kirkjan bann- aði þess konar jólaskemmtan. Lengi vel lauk jólunum í Danmörku ekki fyrr en 13. janúar. Þann sið innleiddi Knútur helgi því hann vildi hafa jól í tuttugu daga. Ank ýmissa siða frá heiðn- um tíma og jólahaldi kristn- innar hafa Danir tekið upp þann sið frá Bandaríkjunum að hafa jólasvein í rauðum föt- um og stóra jólaböggla. Misil- teininn hafa þeir fengið frá Englendingum en jólatréð fr£ Þýzkalandi. Það eina, sem ekki er frá öðrum löndum, er orðið „jól“, sem enginn veit eig inlega hvað þýðir. Og það ger- ir í raun og veru ekkert tii.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.