Tíminn - 24.12.1969, Side 62

Tíminn - 24.12.1969, Side 62
62 TÍMINN - JÓLABLAÐ { V/é'lin platar •JdXasveininn Séra Gunnar - Framhalc* af bls, 5 taki tóku allir undir og sungu einum rómi: Vor Guð er borg á bjargi traust, hin bezta sverð og verja, hans armi studaír óttaiaust vér árás þolum hverja. Nú geyst — þvi gramur er — hinn gamli óvin fer, hans vald er vonzku nægð, hans vopn er grimmd og Slægð, á oss hann hy;ggst að herja. Aldrei hef ég heyrt þennan gamla Lútherssálm hljóma eins og þarna, þar sem einkennis- búin herlögreglan var dreifð um allan hópinn. Sama máli gegndi um ættjarðarsálm Blix's og „Já, vér elsfcum" eft- ir Björnson. Annað var ekki sungið, né talað." -----Þessi túnn mun efcki deyja út — en fylgja mönn- um til stjarnanna. Gleðileg jól! Gun-ar Árnason. Verdum aö flrma veikan blett á>. þeim Báöir Óttast þeir snjðbolta, bján- amir rt C: og n<5g höfum Viöj af snrjónum,.- Bugfib \\ Binmitt, Bnjá log ekkert boXtark. hik %g þoli a<ö afmmár bó tekiö Ná BkuXum vjð opna pakkana vEgon frœnai Séra Skarphéðinn Framhald af bls. 7 einn segir, heldur hvað hann gerir. Hverjum færirðu fórnir? Það er Guð þinn, hivað sem þú segir. En einnig þetta vefc- ur spurningu: Hvað er fórn? Og margt er álitið fórn án þess að vera það. Sjálfsagt er hæ®t að hæla þvi á ýmsa vegu, að láta af hendi tíma, fjármuni og jafnvel líf sitt, og grund- valla það á því, að Guð krefj- ist þessa. En meðan það býr undir, að sá sem þetta gerir ætlast til þess að Guð geri eitt- hvað fyrir sig í staðinn, þá er þetta ekki fórn, heldur verzl- un. Og oft minnir þetta a verstu okurverzlun — menn vilja sem minnst þurfa að gera fyrir Guð en fá sem mest í staðinn. — En fórn er þáð, sem látið er af hendi án þess að ætlast til neinna launa og án þess að sjá nokkurn til- gang með verknaði sínum. Sennilega nægja okikur þessir tíu fingur, sem við höffium öll verið sfcöpuð með, til þess að við getum talið upp allar þær fórnir, sem færðar hafa verið frá upphafi vega. Og þegar við erum að taia um að þessi eða hinn Guðinn knefjist fóma, þá eigum við oftast við allt ann- að en við segjum. — Eigum þá við það, að fyrir þennan Guð sé mifcið leggjandi í söl- ur, því að hann veiti mikið í staðinn. Og þetta er t.d. öll- um tilbiðjenduim þeirra Amors, Bafckusar og Mammons vel Ijóst. Ef Guð er borg — en auðvitað er hann allt annað frefcar — þá hlýtur sú borg samkvæmt ölium kenningum og öllu mati okkar að vera þannig úr garði gerð, að eng- inn geti inn í hana komizt án vilja Guðs. Og þegar sMmur- inn var ortur, var höfundur hans ekki í neinum vafa am þáð, hiver það.væri, sem þangað inn vi-ldi ráðast. Það var fjand- inn, sem Lúther sá ljóslifandi allt í kringum sig. Og þá er það víst, að allir þeir nútíma- menn, sem eru hættir að við- urkenna tilveru þess illa, sjá ekki nauðsyn þess að hafa neitt hæli gagnvart þvi, sem þeir álíta, að ekki sé til. En að ræða um tilveru þess iiLla, er lengra mál en svo, að þáð verði gert að þessu sinni og bið ég því öllum landsmónn- um árs og friðar. Gleðileg jól. Skarphéðinn Pétursson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.