Morgunblaðið - 17.04.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.04.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Mad rid Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Florida Norte 21. október í 2ja manna herbergi morgunverði, flugvallarskattar og ísl fararstjórn. 49.930kr. Netver› á mann Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is VILJA LJÚKA VERKINU Leiðtogar Bandaríkjanna og Bretlands, George W. Bush forseti og Tony Blair forsætisráðherra, áttu fund í Hvíta húsinu í gær og sögðust eftir hann staðráðnir í að ljúka verk- inu í Írak og koma þar á friði og frelsi. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt fram tillögur að því hvernig Írakar taki sjálfir við völdum og virðast jafnt Bandaríkjamenn sem Bretar ætla að fallast á hugmyndirnar. Hjúkrunarfræðingar hætta Tuttugu og tveir hjúkrunarfræð- ingar á skurðdeild LSH hafa sagt upp störfum vegna óánægju með nýtt vaktafyrirkomulag sem tekur gildi um næstu mánaðamót. Þá hafa þrír hjúkrunarfræðingar af fimm á göngudeild barna- og unglingageð- deildar sagt upp störfum. Zapatero hlaut stuðning Sósíalistinn José Luis Rodríguez Zapatero, væntanlegur forsætisráð- herra Spánar, hlaut í gær stuðnings- yfirlýsingu á þingi landsins og mun hann taka við embættinu á mánu- dag. Sögðust 183 þingmenn styðja hann en alls eru þingsætin 350. Zapatero er 43 ára, lögfræðingur að mennt og hefur mikla reynslu af þingstörfum. Búast við fleiri skjálftum Búast má við fleiri stórum jarð- skjálftum á Suðurlandi þar sem ein- ungis þriðjungur af þeirri spennu sem hefur hlaðist upp frá því í jarð- skjálftanum 1912 losnaði úr læðingi í jarðskjálftunum í júní árið 2000. Óttast um Dana í Írak Talið er að dönskum kaupsýslu- manni hafi verið rænt í Írak á þriðjudag en uppreisnarmenn hafa tekið tugi útlendinga í gíslingu í landinu síðustu daga. Daninn er sagður vera á fertugsaldri og er hann sagður hafa ætlað að koma á fót skolplagnafyrirtæki í borginni Basra ásamt félaga sínum. Danir hafa rúmlega 500 manna herlið í Suður-Írak. Aðgerðir gegn minkum Tillögur minkanefndarinnar svo- kölluðu gera ráð fyrir að sett verði lög frá næstu áramótum um aðgerð- ir á næstu sex árum gegn útbreiðslu minks. Alls hefur 900 milljónum króna á núverandi verðlagi verið varið til minkaveiða frá árinu 1957. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 36 Úr verinu 11 Þjónusta 39 Viðskipti 12 Viðhorf 40 Erlent 16/19 Minningar 40/45 Höfuðborgin 21 Kirkjustarf 47/48 Akureyri 22 Myndasögur 54 Suðurnes 23 Bréf 54 Árborg 24 Dagbók 56/57 Landið 25 Íþróttir 58/61 Listir 27/28 Leikhús 62 Úr Vesturheimi 29 Fólk 62/69 Ferðalög 30/31 Bíó 66/69 Daglegt líf 32/33 Ljósvakamiðlar 70 Umræðan 34/35 Veður 71 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is JÓN Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir ráðu- neytið hafa gefið læknum á tæknifrjóvgunardeild Landspítala – háskólasjúkrahúsi fyrirheit um að ræða áform þeirra um að hefja einkarekstur utan spítalans. Læknar hafa sagt að þeir áformi að hefja reksturinn í haust. „Við höfum ekki veitt það leyfi en höfum eigi að síður gefið fyrirheit um að ræða málið þegar nefnd um hlutverk og verkaskiptingu Landspít- alans og einkageirans skilar áliti. Hins vegar höfum við fengið umsagnir frá Til- veru sem eru samtök notenda þjónustunnar sem hafa lagst gegn því að þessi þjónusta færi út af spítalanum,“ segir ráðherra. Hann á von á áfanga- skýrslu frá nefndinni síðar í vor. Að sögn Jóhannesar Gunnarssonar, lækninga- forstjóra Landspítala – háskólasjúkrahúss, eru engin áform uppi um að loka tæknifrjóvgunar- deild LSH eins og læknar hafi gefið í skyn. Spít- alinn vilji áfram reka deildina sem sé mikilvægt fyrir starfsemi hans í heild sinni. Breyttar forsendur „Það var hins vegar umræða um það fyrir tæpu einu og hálfu ári og þá kannski allt eins um það hvort ætti að auka greiðsluþátttöku þeirra sem þjónustunnar njóta. Við töldum að þegar spítalinn tók við þessu verkefni á sínum tíma hefði hann í raun ekki átt að bera kostnað af starfseminni. Þær forsendur eru breyttar.“ Að sögn Jóhannesar var afstaða ráðuneytisins á hinn bóginn skýr, ekki ætti að skera niður á deild- inni og það hafi ekki verið gert. Í síðustu sparnað- arhrinu um áramótin hafi breytingar hins vegar verið gerðar á vöktum og vaktagreiðslum nokk- urra líffræðinga og meinatækna sem starfa á deildinni líkt og annars staðar á spítalanum. „Þeir starfsmenn hafa kosið að líta svo á þær breytingar jafngildi uppsögn en hins vegar hefur ekkert verið hróflað við kjaramálum lækna og stendur ekki til af spítalans hálfu að breyta neinu.“ Að sögn Jóhannesar mun yfirstjórn spítalans kanna til hlítar hvort afstaða lækna á deildinni og líffræðinga og meinatækna sé óhagganleg. Ljóst sé hins vegar að spítalinn eigi ekki annan kost en auglýsa eftir starfsmönnum innanlands eða erlendis ef í nauð rekur til að fylla í skarðið. Kostnaður spítalans vegna reksturs tækni- frjóvgunardeildar er um 100 milljónir á ári en við bætist lyfjakostnaður sem er allnokkur. Yfirstjórn á LSH og notendur vilja að tæknifrjóvgun verði áfram á spítalanum Ráðherra lofar viðræð- um um einkarekstur HITAVEITA Suðurnesja, HS, skrif- aði í gærkvöldi undir samning við japanska fyrirtækið Sumitomo um kaup á tveimur 50 MW túrbínum í fyrirhugaða jarðvarmavirkjun á Reykjanesi, sem reisa á vegna stækkunar Norðuráls úr 90 í 180 þúsund tonn. Áformað er að Hita- veitan og Orkuveita Reykjavíkur gangi frá orkusamningi við Norðurál í dag en stjórnendur og lögmenn þessara aðila hafa verið að fara yfir samningsdrög síðustu daga og vikur. Júlíus Jónsson, forstjóri HS, segir samninginn við Sumitomo vera stór- an áfanga í sögu fyrirtækisins. Að hans sögn er virði samningsins á bilinu 1.600 til 1.700 milljónir króna. Sumitomo á að afhenda túrbínurnar í júlí og ágúst á næsta ári. Júlíus reiknar með að framkvæmdir við stöðvarhúsið hefjist í sumar og út- boð verði auglýst strax efir helgi. Knappur tími sé til stefnu þar sem afhenda eigi orku til Norðuráls vorið 2006. Jarðboranir hafa verið að bora rannsóknaholur á Reykjanesi undanfarnar vikur. Að sögn Júlíusar gengur sú vinna vel og gefur fyrir- heit um mikla orku neðanjarðar. Er nú unnið við sjöundu holuna. Kaupa túrbínur fyrir um 1.700 milljónir FJÖLDI fólks var saman kominn á Patreksfirði síðdegis í gær til að verða vitni að því þegar mjöl- tankar, sem staðið hafa við mjöl- bræðsluna í bænum í rúm 20 ár, voru felldir. Það var á slaginu klukkan sex að starfsmenn Hring- rásar klipptu á síðustu stoðina og þetta 29 metra háa og 100 tonna ferlíki féll til jarðar með háum dynk. Ingvar Ingvarsson, flutninga- stjóri hjá Hringrás, segir að nú verði farið í að hluta tankana niður, pressa þá, og að lokum verði þeir sendir ásamt öðru brotajárni úr mjölbræðslunni til Spánar með skipi. Morgunblaðið/Finnur 100 tonna ferlíki fellur til jarðar Patreksfirði. Morgunblaðið. SAMKVÆMT bráðabirgðaákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar ber Og fjarskiptum (móðurfélagi Og Voda- fone) að flytja tafarlaust símanúmera- röðina 440 3000 til 440 4999 yfir til Landssíma Íslands, vegna fjarskipta- þjónustu Íslandsbanka hf. Hafi flutningurinn ekki átt sér stað á hádegi á mánudag leggjast dagsekt- ir, 100 þúsund kr., á Og fjarskipti, en þetta er í fyrsta skipti sem Póst- og fjarskiptastofnun leggur á dagsektir í deilu milli fjarskiptafyrirtækjanna, að sögn Evu Magnúsdóttur, kynningar- fulltrúa Landssíma Íslands. Flytja átti númer Íslandsbanka frá Og fjarskiptum til Landssíma Íslands í lok vinnudags í gær og hafði undir- búningur þess staðið í nokkurn tíma. Og fjarskipti hætti samstarfi um færsluna rétt fyrir hádegi án skýringa. Landssíminn óskaði þegar eftir úr- skurði Póst- og fjarskiptastofnunar. Telja rök fyrir fjártjóni Á þetta féllst Póst- og fjarskipta- stofnun í bráðabirgðaákvörðun sinni, en hafnaði hins vegar kröfu Lands- símans um bráðabirgðavirkjun á svarhólfum. Og fjarskiptum er því gert að flytja númerin þegar í stað til Landssímans og sæta 100 þúsund kr. dagsektum frá hádegi á mánudag verði flutningi ekki lokið þá. Segir í rökstuðningi stofnunarinnar að leiða megi líkur að því að Landssíminn verði fyrir fjártjóni ef flutningur verði ekki á þeim tíma sem samið var um og því séu skilyrði um bráðabirgða- ákvörðun uppfyllt. Beita Og fjarskipti dagsektum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.