Morgunblaðið - 17.04.2004, Síða 22

Morgunblaðið - 17.04.2004, Síða 22
AKUREYRI 22 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ w w w. l e t t o g l a ggo t t . i s w ww. l e t t og l a ggo t t . i s w ww. l e t tog l a g got t . i s ww w. l e t t o g l a g go t t . i s ww w. le tt o g la gg ot t. is ww w. let tog lagg ott.is www.lettoglaggott.is www.lettoglaggott.is www.lettoglaggott.is VILTU VINNA FERÐ TIL ÍTALÍU? ALLS eru 53 skemmtiferðaskip væntanleg til Akureyrar í sumar og eru skipakomurnar 8 fleiri en í fyrra og tæplega 20 fleiri en árið 2002. Skipakomum til bæjarins hefur fjölgað mikið á tveimur síðustu ár- um en fyrir þann tíma voru komur skemmtiferðaskipa um 30 að jafnaði á sumri. Pétur Ólafsson, skrif- stofustjóri Hafnasamlags Norður- lands, sagði mikla vaxtarmöguleika í móttöku skemmtiferðaskipa „en að- staða við Oddeyrarbryggju þar sem flest skipin leggjast að, annar ekki lengur þeim fjölda stórra skipa sem koma. Því er nauðsynlegt að bæta aðstöðu fyrir móttöku skipanna og þeirra farþega sem koma í land.“ Pétur sagði það mjög mikilvægt við hönnum menningarhússins og umhverfis þess, sem byggt verður á horni Glerárgötu og Strandgötu, að jafnframt verði horft til þess að skapa nýja aðstöðu fyrir móttöku skemmtiferðaskipa þar sem hægt væri að taka á móti allt að 300 metra löngum skipum sem rista 11–12 metra. „Við þurfum að horfa til framtíðar og þarna þyrfti líka að vera hægt að bjóða upp á tollskoðun og vega- bréfaeftirlit. Með þessum fram- kvæmdum gætum við boðið upp á bestu aðstöðu í Evrópu fyrir skemmtiferðaskip, sem gætu legið við bryggju 50 metra frá mið- bænum. Þetta þarf að skoða sam- fara hönnun menningarhússins og nýtingu svæðisins þar í kring, því annars er hætta á að við missum af lestinni. Skipin sem hingað koma eru stöðugt að stækka og þau eiga eftir að stækka enn meira í framtíð- inni,“ sagði Pétur. Hann nefndi sem dæmi að fyrir lægi að nýja Queen Mary, sem er um 150.000 brúttólesta skemmti- ferðaskip, kæmi ekki til landsins fyrr en búið væri að bæta aðstöðuna við bryggju. Gert er ráð fyrir að um 30.000 farþegar komi með þessum 53 skipum í sumar en á síðasta ári komu tæplega 23.500 farþegar með 45 skipum. Stærsta skipið, Adonia, sem er 77.000 brúttólestir, kemur til Akureyrar um miðjan ágúst og með skipinu koma 1.600–1.800 farþegar. Hinn 27. júní verða þrjú skemmti- ferðaskip í höfn, samtals 155.000 brúttólestir að stærð og með þeim koma um 3.300 farþegar. Í febrúar sl. tók Akureyrarhöfn þátt í stofnun samtakanna Cruise Iceland. Eitt helsta markmið sam- takanna er að auka og þróa mark- aðssetningu Íslands og nánasta um- hverfi þess sem ákjósanlegs áfangastaðar skemmtiferðaskipa og stuðla að fjölgun viðkomustaða á Ís- landi og lengja dvöl skipa í höfn. 53 skemmtiferðaskip koma til Akureyrar í sumar með um 30.000 farþega „Nauðsynlegt að bæta aðstöðu fyrir móttöku skipanna“ Hugað verði að hafnarfram- væmdum við hönnum menn- ingarhússins Stærsta skipið: Skemmtiferðaskipið Adonia siglir inn Eyjafjörð sl. sumar. Adonia er stærsta skipið sem kemur til Akureyrar í sumar, 77.000 brúttólestir að stærð, og siglir með 1.600–1.800 farþega. Aglow | Aglow, kristileg samtök kvenna, heldur fund á mánudagskvöld, 19. apríl, kl. 20 í félagsmiðstöðinni í Víði- lundi 22. Ræðumaður kvöldsins verður Erlingur Níelsson. Verkalýðsmál | Stefna, félag vinstri, manna efnir til umræðufundar á Kaffi Amour við Ráðhústorg í dag, laug- ardaginn 17. apríl, kl. 15. Frummælendur eru þeir Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, og Jóhannes Ragnarsson, fyrrverandi formaður Verkalýðsfélags Snæfellsbæjar. Meðal þess sem rætt verður á fundinum er hvort verkalýðs- hreyfingin ætli sér eitthvað í stjórn- málum og hvort stjórnmálaflokkarnir hafi áhuga á verkalýðsstéttinni? Ekki Nonni og Manni | Bæjarráð Dal- víkurbyggðar hefur hafnað hugmynd sem kynnt var á dögunum af fulltrúum Nonnahúss, þess efnis að gefa öllum 9 ára gömlum börnum á Eyjafjarðarsvæð- inu bókina Nonni og Manni fara á sjó og 10 ára börnum bókina Á Skipalóni, en hún er úr sama bókaflokki sem bókaút- gáfan Hólar á Akureyri hefur gefið út. LÖGREGLAN á Akureyri gerði upptæk um 100 grömm af amfetamíni og íblönd- unarefni seinni partinn á fimmtudag. Lög- reglan handtók mann á þrítugsaldri, sem kom akandi til bæjarins frá Reykjavík, og fundust efnin við leit í bíl hans. Talið er að maðurinn hafi ætlað að selja efnin en áætl- að söluverðmæti þeirra er um hálf milljón króna. Maðurinn viðurkenndi aðild sína að málinu og var honum sleppt að lokinni yf- irheyrslu. Þetta er eitthvert mesta magn af amfetamíni sem lögreglan á Akureyri hefur gert upptækt í einu. Karlmaður tekinn með amfetamín NOKKUÐ harður árekst- ur varð síðdegis í gær í Hofsbót í miðbæ Akureyr- ar, við hornið hjá Spari- sjóði Norðlendinga. Tveir bílar rákust saman, fólks- bíll og lítill jeppi. Fólks- bílnum var ekið til norð- urs og lenti hann inn í hlið jeppans, sem var á suðurleið. Við það valt jeppinn á hliðina. Enginn slasaðist í þessum árekstri. Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson Áreksturinn var svo harður að annar bíllinn valt á hliðina. Valt við árekstur         

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.