Morgunblaðið - 17.04.2004, Qupperneq 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 23
Grindavík | Dagskrá vegna þrjá-
tíu ára kaupstaðarafmælis Grinda-
víkur hefst klukkan 10 í dag með
fundi sem bæjarstjórn heldur í til-
efni dagsins. Hátíðardagskrá verð-
ur í Íþróttamiðstöð Grindavíkur
og hefst klukkan 13.30.
Þar mun Hörður Guðbrandsson,
forseti bæjarstjórnar, ávarpa bæj-
arbúa og gesti sem og Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
sem heimsækir bæinn af þessu til-
efni og tekur þátt í hátíðarhöld-
unum. Forsetinn mun sæma þrjá
grindvíska björgunarsveitarmenn
afreksmerki hins íslenska lýðveld-
is vegna björgunarinnar á áhöfn
vélbátsins Sigurvins GK. Við at-
höfnina verður einnig sagt frá
kjöri nýs heiðursborgara Grinda-
víkur, nýtt Grindavíkurlag kynnt
og flutt lög eftir Sigvalda Kalda-
lóns tónskáld.
Eftir klukkan 16 verða kaffiveit-
ingar í félagsheimilinu Festi í boði
bæjarstjórnar og ýmislegt þar til
skemmtunar fyrir yngra fólkið og
lýkur því með diskótekið fyrir
unglinga. Auk þess verður ým-
islegt um að vera um allan bæ,
meðal annars frítt í sund og í Salt-
fisksetrið þar sem opnuð verður
myndlistarsýning og ýmislegt um
að vera.
Á sunnudag verður farið í
gönguferð um Selatanga í tilefni
af útgáfu á nýjum bæklingi um
svæðið og haldnir tónleikar í
Grindavíkurkirkju, auk annars.
Hátíðardagskrá
á kaupstaðarafmæli
í Grindavík
Heimilissíminn – ódýrari og öruggari símaþjónusta.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
1
8
6
7
Leyfðu þér að spjalla.
50% afsláttur af stofngjaldi
heimilissíma út apríl
Hringdu í 800 7000 eða komdu í verslun Símans og
fáðu þér almennan heimasíma eða ISDN á tilboði.
hafi verið kraftaverki líkast að
finna sameiginlegan tíma til að
halda tónleika, en hvernig er með
skipulag þegar höf og lönd skilja
að?
„Við ákváðum efnisskrána með
öflugum netsamskipum,“ sagði
Davíð í samtali við blaðamann sem
stóð ekki síður í öflugu net- og
símasambandi við alla þrjá, enda
hvernig annað hægt þegar Bjarni
Thor býr í Berlín, Jóhann Smári í
Regensburg og Davíð í Reykjavík?
Bjarni Thor og Jóhann Smári bæta
við að þetta sé nú bara hluti af
starfinu, þ.e.a.s. að mæta til leiks,
enda allir fagmenn, auk þess sem
hver hafi æft sig með sínum undir-
leikurum í sínu heimalandi. „Það
er ekki eins og maður þekki alltaf
samsöngvarana, hvað þá að hafa
sungið með þeim áður. Í þessu til-
viki hefur ég reyndar sungið með
bæði Davíð og Jóhanni Smára,
þótt við höfum ekki sungið þrír
saman áður,“ sagði Bjarni Thor,
sem söng með Davíð á námsárum
þeirra í Vínarborg en með Jóhanni
Smára hér heima áður en þeir
héldu utan til náms. Davíð bætir
við að þetta sé ekki ólíkt því að
vera vanur sjóari. „Ef maður kann
að flaka og splæsa getur maður
stokkið um borð í hvaða bát sem
er. Það er kannski ekki vaninn að
vera með þrjá vélstjóra um
borð … eða þrjá bassa.“
Tónleikar „Bassanna þriggja frá
Keflavík“ eru fyrsta eiginlega
verkefni endurvakins Tónlistar-
félags Reykjanesbæjar, en fyrri
tónleikar á vegum félagsins hafa
verið mjög vel sóttir. Þetta verður
í annað sinn sem Davíð syngur á
tónleikum Tónlistarfélagsins, því í
síðasta mánuði söng hann negra-
sálma á hádegistónleikum frá Ís-
lensku óperunni í Listasafninu. Á
Keflavík | „Það er kominn tími til
að heimurinn skilji yfirburði bass-
anna,“ segir Jóhann Smári Sæv-
arsson, bassasöngvari í Þýska-
landi, í tilefni af tónleikum
„Bassanna þriggja frá Keflavík“ í
Listasafni Reykjanesbæjar á morg-
un, sunnudag, kl. 16. Hinir tveir
eru Davíð Ólafsson og Bjarni Thor
Kristinsson. Þrátt fyrir gam-
ansamt tilsvar Jóhanns Smára má
heyra á þeim félögum að bassarnir
þrír verðskuldi ekki síður athygli
en tenórarnir þrír.
„Án gríns er frægasta dæmið
finnsku bassarnir þrír, sem sungu
saman fyrir nokkrum árum og
gáfu út á diski,“ sagði Jóhann
Smári í samtali við Morgunblaðið.
„Við erum bara að sýna hvað þetta
bæjarfélag býr yfir miklum mann-
auði þó að það fari ekki alltaf
hátt,“ bætti Davíð við.
Það má með sanni segja að það
ríki mikil eftirvænting í Keflavík
vegna tónleika bassanna þriggja.
Áður hefur verið reynt að fá þá
alla þrjá saman á tónleika en ekki
tekist fyrr en nú. Þó eru þeir allir
á kafi í áhugaverðum verkefnum
hver í sínu landi og gagnrýnendur
hafa ekki sparað lofið. Davíð er
fastráðinn í Íslensku óperunni en
ætlar að vera í lausamennsku á
næsta leikári. Bjarni Thor hefur
undanfarin ár verið lausráðinn og
sungið víða um heim og eru mörg
spennandi verkefni framundan,
auk þess sem hann er að syngja
hlutverk Baróns Ochs í Rósaridd-
aranum eftir Richard Strauss. Jó-
hann Smári bregður sér um þessar
mundir í hlutverk Filippos II
Spánarkonungs í Don Carlo eftir
Verdi, Sarastros í Töfraflautu
Mozarts og Barons í nútímaóper-
unni Scherz, Satire eftir Glennert.
Það má því kannski segja að það
morgun verður bassalegan hins
vegar enn dýpri og aðspurðir um
efnisskrá segja þeir félagar að
tónleikunum verði skipt í tvennt.
„Fyrst syngjum við ýmis sönglög
og „bassaslagara“ en eftir hlé ráð-
umst við í óperutónlist,“ ljóstraði
Bjarni Thor upp en Jóhann Smári
og Davíð voru ögn myrkari í máli.
Davíð sagði hins vegar að þegar
þeir hefðu valið efnisskrána hefði
berlega komið í ljós hversu miklir
öðlingar bassar eru í raun og
veru, hafi nokkur efast um það.
„Við bjóðum alltaf hinum bestu
lögin fyrst og erum örlátir á vin-
sælustu verkin.“
Þegar viðmælendur eru spurðir
að því hvernig tilfinning það sé að
koma aftur til Keflavíkur og
syngja stendur ekki á svörum. „Ég
er mjög spenntur að syngja með
kollegum mínum, sem ég hef ekki
heyrt í svo lengi. Auk þess finnst
mér mjög gaman að fá tækifæri til
að syngja fyrir íslenska áheyr-
endur og það er spennandi að
Tónlistarfélagið skyldi láta verða
af þessu,“ sagði Jóhann Smári.
Bjarni Thor tekur í sama streng
og segist ekki hafa sungið á Suð-
urnesjum síðan á námsárunum.
„Keflavík er náttúrulega fyrst og
fremst bítlabær en það er mjög
spennandi að Tónlistarfélagið
skuli starfa svona vel og svala
þannig líka annars konar tónlist-
arþörf. Annars er og verður tón-
list alltaf tónlist hvort sem hún
kemur úr 300 vatta gítarmagnara
eða þremur „bassaraddbandapör-
um“. Davíð bætir við í lokin að það
séu ekki margir bæir í Evrópu
sem geti státað af svona góðum
hópi og að það hljóti að vera eft-
irsótt að búa í bæjarfélagi sem
geti af sér fjölbreytt mannlíf.
Hann er fullur tilhlökkunar og
ekki síður þakklátur. „Það er allt-
af gaman að syngja á heimaslóðum
og gefa til baka til þeirra sem
studdu við bakið á mér.“
Bassarnir þrír frá Keflavík syngja saman opinberlega í fyrsta skipti á tónleikum á morgun
Bassar örlát-
ir á vinsæl-
ustu verkin
Bjarni Thor Kristinsson í hlutverki
John Falstaff í Kátu konunum frá
Windsor eftir Otto Nikolai, en þetta
er frá uppfærslu Volksoper í Vín.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Upphitun: Davíð Ólafsson og Jóhann Smári Sævarsson æfðu saman í Listasafni Reykjanesbæjar í gærkvöldi með und-
irleikararnum Kurt Kopecky, tónlistarstjóra Íslensku óperunnar. Bjarni Thor Kristinsson bætist í hópinn í dag.