Morgunblaðið - 17.04.2004, Qupperneq 24
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Kynningasala laugardag og sunnudag kl. 10-17
Einnig kynnum við heilsárs sumarhús frá Kanada
Micasa lagersala
Allt að 40% afsláttur
Síðumúla 35, sími 588 5108
www. Bonabla.com
www.micasa.is
Kynnum frábært íbúðahverfi á Spáni, Bonalba
Eftirsóttar lóðir | Á síðasta fundi
byggingar- og skipulagsnefndar 13.
apríl var kynntur útdráttur þeirra
60 lóða sem í boði voru í Suð-
urbyggð á Selfossi. Umsóknir voru
um 400. Niðurstaðan er birt á
heimasíðu Árborgar. Ljóst er að
þenslusprenging er á Selfossi varð-
andi lóðir og húsbyggingar. Farið
er að líkja ástandinu við hina miklu
uppbyggingu sem varð í Smára-
hvammslandinu í Kópavogi.
Vímuvarnir | Erindi frá vímu-
varnarhópi Árborgar um auka-
fjárveitingu 580.000 kr. til að gera
könnun á vímuefnaneyslu og ann-
arri frávikshegðun í skólum í Ár-
borg var samþykkt í bæjarráði 15.
apríl. Bæjarráð mun mæta kostn-
aðinum við endurskoðun fjárhags-
áætlunar 2004.
Tónlistarskóli | Bæjarráð sam-
þykkti 15. apríl að veita fjármuni til
þess að ljúka hljóðeinangrun í hús-
næði Tónlistarskóla Árnesinga við
Gagnheiði. Áætlaður kostnaður er
400–500 þúsund krónur, kostn-
aðinum verður mætt við endur-
skoðun fjárhagsáætlunar 2004.
Skólamáltíðir | Úttekt á kostnaði
við skólamáltíðir í Árborg og tillaga
að nýju fyrirkomulagi hefur verið
unnin af deildarstjóra grunnskóla-
og menningardeildar, fram-
kvæmdastjóra fjármála- og stjórn-
sýslusviðs og framkvæmdastjóra fé-
lags- og fræðslusviðs. Á fundi
sínum 15. apríl fagnaði bæjarráð
tillögum starfshópsins og sam-
þykkti að hefja afgreiðslu skóla-
máltíða á grundvelli tillagnanna í
skólum sveitarfélagsins við upphaf
næsta skólaárs. Bæjarráð vísaði til-
lögunum til skólanefndar grunn-
skóla til nánari útfærslu í samstarfi
við deildarstjóra grunnskóla- og
menningardeildar (verkefnisstjóra
fræðslumála) og skólastjóra grunn-
skólanna.
Frakklandsfarar | Frakklands-
farar úr Fjölbrautaskóla Suður-
lands eru komnir heim eftir vel
heppnaða námsferð á Bretagne-
skaga og til Parísar. Einstaklega
vel var tekið á móti hópnum af
frönsku fjölskyldunum. Á vef skól-
ans er þeim fjölmörgu sem gerðu
ferð þessa mögulega og þátttak-
endum öllum færðar bestu þakkir.
Sendiboðinn | Menningarnefnd
Árborgar hefur lýst sérstakri
ánægju sinni yfir að listaverki Hall-
dórs Forna. „Sendiboðanum“ hafi
verið komið fyrir á torgi í Suð-
urbyggð.
Menningarstyrkir | Menning-
arnefnd Árborgar úthlutaði styrkj-
um til menningarmála í sveitarfé-
laginu á fundi sínum 13. apríl. Alls
bárust 12 umsóknir frá níu aðilum.
Óskað var eftir styrkjum að upp-
hæð 2.000.000 kr. Úthlutað var
722.000 krónum sem skiptust þann-
ig: Leikfélag Selfoss 322.000 kr.,
Jórukórinn 100.000, Karlakór Sel-
foss 100.000, Þýsk-íslenska vina-
félagið á Suðurlandi 50.000, Óðins-
hús 50.000, Hrútavinafélagið Örvar
50.000, Björg Sörensen 25.000,
Sagnfræðingafélaga Íslands og Fé-
lag þjóðfræðinga á Íslandi 25.000
kr.
Bæjarmál
í Árborg
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Selfoss | „Þeir sem eru framkvæmdamenn vilja geta
haldið áfram og skaffað mönnum atvinnu,“ segir Sigfús
Kristinsson, byggingarverktaki og framkvæmdastjóri
byggingarfyrirtækisins Árborgar hf. á Selfossi. Hann
hefur verið starfandi í byggingariðnaðinum í yfir 50 ár á
Selfossi. Fyrirtæki hans sótti um 8 lóðir en var eitt
þeirra sem ekki fékk úthlutað lóðum þegar byggingar-
og skipulagsnefnd Árborgar úthlutaði 60 lóðum en um
400 umsóknir lágu fyrir um lóðirnar.
„Það má gera ráð fyrir að helmingur af umsóknunum
hafi verið frá mönnum sem ætla að braska með lóð-
irnar,“ segir Sigfús og er óhress með niðurstöðu lóðaút-
hlutunarinnar.
„Bæjarstjóri hefur sagt að gatnagerðargjöldin dugi
fyrir 50% af gatnagerðinni. Í ljósi þess finnst mér rétt að
fara aðra leið, til dæmis að auglýsa lóðirnar og hafa
gatnagerðargjaldið sem lágmarksgjald fyrir lóðirnar,
síðan mættu menn bjóða hærra. Dregið væri ef menn
byðu sömu upphæð.
Þannig fer þénustan til bæjarins en ekki í braskið og
bærinn þarf ekki lengur að niðurgreiða lóðirnar. Svo
væri hægt að hafa þetta þannig að hluti lóðanna færi til
verktaka sem hafa haft það að aðalatvinnu í mörg ár að
byggja hús,“ segir Sigfús sem vill sjá meiri drift í kring-
um lóðaframboð.
„Það er mikið afl í verktakaiðnaðinum á Selfossi í
byggingum og hann dregur að mikla þjónustu og veltu
fyrir bæjarfélagið. Fólk vill greinilega búa hér á Sel-
fossi. Það þarf því sömu snerpu í málin og var þegar
Fosslandið kom til 1999 en þá liðu ekki nema 6 mánuðir
frá ákvörðun þar til farið var að byggja hús í landinu,“
segir Sigfús og leggur áherslu á að virkja þurfi kraftinn í
byggingarfyrirtækjunum.
Hann er með deiliskipulagt íbúðahverfi í undirbún-
ingi upp með Ölfusá og hefur átt fundi með bæjaryf-
irvöldum vegna þess.
Sigfús Kristinsson hefur verið 50 ár í byggingariðnaðinum
Meiri snerpu þarf
í framboð á lóðum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Í hálfa öld í byggingariðnaðinum: Sigfús Kristinsson,
byggingarverktaki og framkvæmdastjóri Árborgar hf.
Hveragerði | Nýverið kom til lands-
ins ágræðslumeistarinn Duncan
Goodwin frá Bretlandi. Hann hélt
námskeið fyrir nemendur Garð-
rykjuskólans á Reykjum í ágræðslu.
Ágræðsla er fjölgunaraðferð sem
gengur út á það að lítil grein af sér-
stakri plöntu er grædd ofan á rót af
annarri plöntu og upp vex ný planta
samsett úr tveimur eða jafnvel fleiri
plöntum. Ágræðsla er ekki mikið
stunduð hér á landi, þó er eitthvað
um það að garðyrkjumenn prófi sig
áfram með hana. Það er bara hægt
að framkvæma þessa fjölgunar-
aðferð innandyra hér á landi og er
það þá gert að vetrarlagi eða
snemma vors. Plöntuhlutarnir eru
skornir til eftir kúnstarinnar reglum
og þeir bundnir saman með sér-
stökum teygjum eða þunnu plasti.
Ágræðslustaðurinn er svo þakinn
með vaxi til að koma í veg fyrir að
hann þorni upp áður en plöntuhlut-
arnir hafa náð að gróa saman. Eftir
ágræðsluna þarf að geyma plönturn-
ar í röku og hlýju umhverfi þar til
ágræðslan hefur tekist.
Ágræðsla í Garðyrkjuskólanum
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Leiðbeint um ágræðslu: Nemendur Garðyrkjuskólans fræðast.
Á FUNDI skipulags- og bygging-
arnefndar sveitarfélagsins Ölfuss í
fyrradag var fjallað um erindi frá
Hellarannsóknarfélagi Íslands
vegna uppsetningar á skilti við
Raufarhólshelli.
Fyrirhugað er að leiðbeining-
arskilti verði sett upp við þjóðveg-
inn þar sem stendur Raufarhóls-
hellir og merki við er merkir
athyglisverður staður. Þetta merki
verður þá gert í samráði við Vega-
gerðina, stærð, litur og staðsetn-
ing.
Við bílaplan við Raufarhólshelli
verður sett upp plata á stand er
segir frá hellinum og sýnir teikn-
ingu af honum. Heimilt er að setja
á skiltið nafn og merki Hellarann-
sóknarfélagsins og Vegagerðar-
innar en ekki auglýsingar. Skipu-
lags- og byggingarnefnd
samþykkti erindið sem og bæjar-
ráð sveitarfélagsins.
Upplýsingaskilti
verður sett upp
um Raufarhólshelli
Fjalla um laxinn
í Ölfusá og Hvítá
Á RÁÐSTEFNU Landssambands
stangaveiðifélaga á Hótel Selfossi í
dag frá klukkan 14–16 verður fjallað
um laxinn sem auðlind á vatnasvæði
Ölfusár og Hvítár. Verkefnishópur á
vegum Veiðifélags Árnesinga skilaði
nýlega tillögum til stjórnar félagsins
um breytingar á veiðitilhögun á
vatnasvæðinu með upptöku neta og
ræktunarátaki til þess að ná sem
mestri nýtingu auðlindarinnar fyrir
veiðiréttareigendur.
Aðalfundur Veiðifélags Árnesinga
sem haldinn var 13. apríl tók ekki
ákvörðun um breytt veiðifyr-
irkomulag en fól stjórn félagsins að
vinna áfram að málinu. Málefni laxins
sem auðlindar á vatnasvæðinu eru því
í umræðunni og miklar væntingar hjá
stangaveiðimönnum og fleiri aðilum
varðandi framtíðarskipan mála, segir
í fréttatilkynningu.
Breytingar í Borgarfirði
og áform í Tungufljóti
Á ráðstefnunni verða flutt erindi
um fiskstofna í Ölfusá og Hvítá og
nýja skýrslu Magnúsar Jóhanns-
sonar og Sigurðar Guðjónssonar hjá
Veiðimálastofnun. Sagt verður frá
skýrslu Atvinnuþróunarsjóðs Suður-
lands um efnahagsleg áhrif aukinnar
fiskgengdar á svæðinu. Þorfinnur
Þórarinsson, bóndi og veiðiréttarhafi
á Spóastöðum í Bláskógabyggð, segir
frá viðhorfum veiðiréttareigenda til
laxins sem auðlindar á vatnasvæðinu.
Óðinn Sigþórsson, formaður Lands-
sambands veiðifélaga, segir frá
breytingum sem urðu í Borgarfirði
þegar netaveiði var hætt. Bjarni Óm-
ar Ragnarsson, formaður Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, segir frá við-
horfum stangaveiðimanna og Árni
Baldursson, framkvæmdastjóri
Lax-á, segir frá áformum um upp-
byggingu Tungufljóts og fleiri veiði-
svæða og þeim möguleikum sem
leigutakar sjá fyrir sér á vatnasvæð-
inu.
Í upphafi ráðstefnunnar mun
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra flytja ávarp. Fundarstjóri verð-
ur Ásmundur Sverrir Pálsson, forseti
bæjarstjórnar Árborgar.
Áður en ráðstefnan hefst kl. 13.20
mun Stangaveiðifélag Selfoss kynna
fluguköst á bökkum Ölfusár neðan
Ölfusárbrúar fyrir landbúnaðar-
ráðherra, forseta bæjarstjórnar Ár-
borgar og öðrum viðstöddum.
Gervigras í Þorlákshöfn | Tilboð
hafa verið auglýst í gerð gervigras-
vallar við Íþróttamiðstöð og Grunn-
skóla Þorlákshafnar. Um er að ræða
völl sem verður 72x55 m að stærð.
Heildarstærð svæðisins með malbik-
uðum reit meðfram vellinum verður
59 x 76 m. Fyrirtækið Línuhönnun
sér um hönnun vallarins. Landmótun
sér um hönnun umhverfis. Tekið hef-
ur verið tilboði frá Á. Óskarssyni,
Mosfellsbæ, í gervigrasið, segir á
heimasíðu sveitarfélagsins. Fram-
kvæmdinni skal lokið 15. júlí 2004.