Morgunblaðið - 17.04.2004, Side 25
Fagridalur | Héraðssamningur al-
mannavarnanefndar Mýrdals-
hrepps við björgunarsveitina Vík-
verja, svæðisstjórn Slysavarna-
félagsins Landsbjargar á svæði 16
og Rauðakross Íslands, Víkur-
deildar, var undirritaður nýverið.
Í samningnum felst hvernig vinna
á að skipun hjálparliðs vegna al-
mannavarna til starfa á hættu- og
neyðartímum.
Samkomulagið er unnið upp úr
samningi frá 2002 milli Almanna-
varna ríkisins, Rauða kross Ís-
lands og Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, en hann fjallaði um
hlutverk þeirra í heildarskipulagi
hjálparliðs.
Myndin er frá undirritun samn-
ingsins í slökkvistöðinni í Vík, f.v.:
Einar Bárðarson formaður Vík-
verja, Bryndís Harðardóttir, for-
maður svæðisstjórnar 16, Sigurð-
ur Gunnarsson, sýslumaður Vík,
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri og
formaður almannavarnanefndar,
Sigurður Hjálmarsson, formaður
rauðakrossdeildar í Vík, og Elín
Einarsdóttir, oddviti Mýrdals-
hrepps. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Endurskipulagning björgunarmála
Ljósmynd/Örn Þórarinsson
Stelpurnar í Sólgarðaskóla að lokinni sýningu á Kardimommubænum.
Fljót | Árshátíð Sólgarðaskóla í
Fljótum var haldin fyrir skömmu.
Hún var að venju vel sótt af heima-
fólki en afrakstur hennar rennur í
ferðasjóð nemenda. Á hátíðinni
fluttu nemendur ýmis atriði sem þau
hafa æft undanfarið undir hand-
leiðslu kennara sinna, Guðrúnar
Halldórsdóttur og Halldórs Hálfdán-
arsonar, en tónlistin var undir stjórn
Önnu Jónsdóttur tónlistarkennara.
Uppistaðan í skemmtuninni var hið
kunna leikrit Kardimommubærinn.
Þar sem nemendurnir eru aðeins
fimm talsins urðu sumir að leika
fleiri en eitt hlutverk, en það leystu
þeir með prýði. Var dagskráin í
rauninni ótrúlega fjölbreytt miðað
við hvað fáir stóðu að henni og ljóst
að mikil vinna hefur legið að baki
undirbúningnum.
Öflug
dagskrá
á árshátíð
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 25
Þórshöfn | Loðnu- og hrognafrystingu er lok-
ið fyrir nokkru og langri og strangri vinnutörn
hjá starfsfólki Hraðfrystistöðvar Þórshafnar
en mjög mikið var fryst á tiltölulega skömmum
tíma. Í tilefni þessara vertíðarloka hélt starfs-
mannafélag HÞ mikla matarveislu eða „loðnu-
slútt“ í félagsheimilinu með skemmtidagskrá
og þangað fjölmenntu þeir sem höfðu tekið
þátt í þessari miklu vinnutörn.
Margir Þórshafnarbúar hafa samvisku-
samlega helgað Hraðfrystistöðinni alla starfs-
krafta sína og aldrei slegið slöku við. María Jó-
hannsdóttir er ein af þeim. Hún er ekki þekkt
fyrir að sitja auðum höndum og dreif sig í
loðnutörnina nú á dögunum þegar þörf var á
mannskap þó að hún hefði ætlað að hætta
vinnu í fyrra við 67 ára aldurinn.
Árin hennar Maríu hjá Hraðfrystistöðinni
eru nú orðin 45 og fannst samstarfsfólki henn-
ar tilvalið að heiðra hana á þessu hátíðarkvöldi
með blómum og gjöfum. Meðal gjafanna var
vandaður áletraður skjöldur með loftvog og
klukku. Vinnufélagarnir sögðu það vísa til ein-
stakrar stundvísi Maríu og einnig til áhuga
hennar á veðrinu en sannir Þórshafnarbúar
missa helst ekki af veðurfréttunum.
Að lokinni skemmtidagskrá var dansleikur
fram eftir nóttu og gengu ballgestir jafn-
vasklega fram í dansinum sem og í vinnunni.
Lokagleði loðnufólks
Morgunblaðið/Líney
Enn ein vertíðin að baki: María Jóhannsdóttir
heiðruð með góðum gjöfum eftir 45 ár starf.