Morgunblaðið - 17.04.2004, Qupperneq 31
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 31
FERÐASKRIFSTOFAN Hekla Travel í Kaupmanna-
höfn býður nú vikulegar ferðir á milli Danmerkur og
Krítar sem lið í stækkun og vexti skrifstofunnar. Í apríl
og maí er tilboðsverð á flugi á milli Kaupmannahafnar
og Chania á Krít og gistingu í viku og er verðið 1.995
danskar krónur eða um 24 þúsund íslenskar krónur.
Á tímabilinu 28. apríl til 20. október er flogið alla
miðvikudaga með Maersk Air frá Kaupmannahöfn til
Chania og 16. júní til 11. ágúst er einnig vikulegt flug
frá Billund. Hægt er að velja um gistingu á hótelum á
strandlengjunni vestur af Chania eða við Rethymnon
sem er strandbær á miðhluta Krítar. Einnig er boðið
upp á gistingu í ýmsum fjallabæjum á eyjunni. Verð
með gistingu getur verið á bilinu 2.500–3.000 danskar
krónur, eða 30–36 þúsund íslenskar krónur á mann.
Hekla Travel er með samning við Hilton-hótelið á
Kastrup-flugvelli, sem getur verið hentugt ef Íslend-
ingar vilja stoppa í Kaupmannahöfn á leið til og frá Ís-
landi, eins og Birna Arinbjarnardóttir, sölustjóri
Heklu, bendir á.
Til Krítar um
Kaupmannahöfn
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamöguleiki: Hekla travel í Kaupmannahöfn býður
upp á vikuferðir til Krítar fram í október .
SUMARFRÍ
TENGLAR
..............................................
www.heklatravel.dk
EVRÓPUKEPPNIN í fótbolta
(EURO 2004) fer fram í Portúgal í
sumar og stendur yfir í þrjár vikur,
frá 12. júní til 4. júlí. Þetta er stærsti
íþróttaviðburður sem haldinn hefur
verið í Portúgal og nokkuð ljóst að
hann mun hafa gífurleg áhrif á ferða-
mannaþjónustuna þar í landi þetta
árið og jafnvel um ókomin ár. Aug-
ljóslega mun keppni þessi draga
margan aðdáanda sparkíþrótt-
arinnar suður á bóginn. Skipuleggj-
endur keppninnar eiga von á að um
hálf milljón aðdáenda fótbolta muni
flykkjast til Portúgals á þessum
þremur vikum og þar af verði um
50.000 Bretar, enda eru þeir frægir
fyrir að láta sig ekki vanta til að
hvetja stoltið sitt hann David Beck-
ham til sigurs á vellinum. Heyrst
hefur að þegar sé uppselt á alla leiki
Englendinga og varað er við því að
kaupa sér miða á svörtum markaði,
þar sé engu treystandi.
Leikir víða um landið
Evrópuleikarnir fara fram á fleiri
en einum leikvangi í Portúgal og eru
staðsetningar eftirfarandi: Aveiro,
Braga, Coimbra, Faro, Guimaraes,
Leira, Lissabon og Porto. Ekki er
nauðsynlegt að dvelja á hótelum sem
staðsett eru mjög nálægt leik-
vöngum til að komast á leiki, enda
nokkuð vel bókað nú þegar á þeim
hótelum sem næst standa. En hægt
er að skreppa á einn leik eða fleiri þó
ferðast sé t.d. frá Albufeira, sem er
vinsæll staður meðal íslenskra ferða-
manna í Portúgal, leigja sér bíl eða
taka rútu á völlinn. Eins er hægt að
„flýja“ mesta áreitið og fólksmergð-
ina með því að gista ódýrt í sveitinni í
rólegheitum.
Markviss öryggisgæsla
Þó vissulega verði mikil uppgrip í
Portúgal í tengslum við Evr-
ópumótið í fótbolta og aukning ferða-
manna fyrirséð, þá eru líka ein-
hverjir sem munu forðast að fara
þangað á meðan á keppninni stend-
ur, af ótta við fótboltabullur, marg-
menni og læti samfara boltaspark-
inu. En hafa ber í huga að
fótboltabullur fylgja miklu frekar
landsleikjum en Evrópumótum og
fullyrt er að öryggisgæsla á EURO
2004 muni öll verða mjög markviss
og breska og portúgalska lögreglan
hafa samvinnu á því sviði.
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn í
Smáranum verður með miða á fót-
boltaleiki á EURO 2004 til sölu eftir
páska. Pantað var töluvert af miðum
en ekki er vitað enn hversu margir
fást. Plúsferðir selja ekki miða á leiki
en fljúga einu sinni í viku í allt sumar
til Portúgals. Eins eru Heimsferðir
með ferðir í boði til Portúgals en
selja ekki miða á leiki og sama er að
segja um Terra Nova. Iceland Ex-
press er ekki með beint flug til
Portúgal en þeir fljúga til London og
Kaupmannahafnar, en þaðan er auð-
velt að halda áfram suður á bóginn
fyrir lítinn pening. Eins eru þeir með
tengil sem heitir fótbolti á vefsíðunni
sinni icelandicexpress.is, þar sem
hægt er að fá allar upplýsingar um
leiki, dagskrá og hvernig á að nálg-
ast miða. ÍT-ferðir hafa verið með
ferðir á stóra íþróttaviðburði, bæði
innanlands og utan en skipulagið í
tengslum við EURO 2004 er enn í
vinnslu. Starfsfólk þar mun útvega
miða á úrslitaleiki og vera áhuga-
sömum innanhandar með gistingu.
PORTÚGAL | Evrópukeppnin í fótbolta fer fram í júní og júlí
Íslending-
ar sýna
áhuga
Reuters
Áhugi: Talið er að um 50.000 Bret-
ar muni flykkjast til Portúgal til að
hvetja David Beckham og félaga.
Gagnlegar slóðir fyrir áhuga-
sama um fótboltann í Portúgal í
sumar:
www.euro2004.com
www.portugalinsite.com
www.footballsupporters-
international.com
www.pousadas.pt
www.simplytravel.com
www.magictravelgroup.co.uk
www.cadoganholidays.com
khk@mbl.is
Salernislaus í skúr
Erla Guðrún segist vitaskuld
hafa fengið að búa hjá kærastanum,
sem verið hafi í fríu húsnæði þó
ekki hafi mikið verið um lúxus.
„Fyrstu tvo mánuðina bjuggum við
í hálfgerðum vinnuskúr þar sem
steinolíuhitari hélt á okkur hita, en
við vorum hinsvegar án salern-
isaðstöðu og þurftum því alltaf að
hlaupa yfir í næsta hús til þess að
gera þarfir okkar. Þriðja mánuðinn
fluttum við inn á gistiheimili þar
sem við höfðum bæði aðstöðu til að
elda og komast í sturtu. Yfirleitt
elduðum við okkur sjálf eitthvert
góðgæti og prófuðum okkur áfram
með japanskan mat, sem mér finnst
mjög góður. Mikið er um alls konar
sjávarfang og smakkaði ég t.d. í
ferðinni í fyrsta skipti ostrur, kol-
krabba og ýmsan hráan fisk og ekki
má svo gleyma öllum hrísgrjóna- og
núðluréttunum.“
Mest umgengust þau skötuhjúin
Vesturlandabúa, en þó segist Erla
hafa eignast eina góða japanska
vinkonu, talandi góða ensku. „Jap-
anir eru ótrúlega kurteisir og var
gaman að upplifa þessa miklu kurt-
eisi í ljósi þess hversu fjölmenn
þjóðin annars er. Allir bugta sig og
beygja fyrir öllum. Meira að segja í
matvörubúðum hneigja viðskipta-
vinirnir sig fyrir afgreiðslufólkinu
og svo öfugt. Að sama skapi fannst
mér merkileg öll snyrtimennskan í
Tókýó, en þar var ekkert rusl að sjá
á götum þrátt fyrir að íbúar séu þar
um tólf milljónir talsins.“
Brettin sem víðast
Erla Guðrún þarf ekki að hugsa
sig mikið um þegar hún er spurð
hvort ferðalög séu áhugamál. Hún
segist hafa fengið tækifæri sem fé-
lagi í björgunarsveitinni Ársæli að
svala þessari ferðaþörf sinni nokk-
uð og svo vonast hún auðvitað til að
fá tækifæri til að ferðast enn meira
í framtíðinni. „Og þar sem snjó-
brettaiðkun er eitt helsta áhuga-
málið mitt, stefni ég auðvitað að því
að prófa brettin sem víðast í heim-
inum. Framandi staðir og mik-
ilfenglegt landslag heilla mig mest.“
Heimasíða skíðasvæðisins:
www.niseko.gr.jp
Gistiheimili:
www.blowhardallyear.com
join@mbl.is
VEGNA fjölda fyrirspurna
birtum við aftur vefslóðir
tveggja fyrirtækja sem hafa
milligöngu um húsnæðisskipti
milli landa í sumar- eða vetr-
arfríinu. Vefslóðirnar sem um
ræðir eru www.intervac.com og
www.homeexchange.com.
Skipst á hús-
næði í fríinu
www.thumalina.is
Fjölskyldan saman í fallegum bæ!
Velkomin í Stykkishólm!
Hótel - heimagistingar - farfuglaheimili - tjaldstæði - veitingastaðir - verslanir