Morgunblaðið - 17.04.2004, Qupperneq 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 55
Námskeið um skógrækt. Skóg-
ræktarfélag Íslands heldur tvö
námskeið um skógrækt fyrir al-
menning, í húsi
Ferðafélags Ís-
lands í Mörkinni
6. Námskeiðin
eru í umsjá
Björns Jóns-
sonar, fyrrver-
andi skólastjóra
Hagaskóla, og
verða haldin
dagana 20. og 21.
apríl og 28. og 29. apríl, Nám-
skeiðið kostar 5.900 kr. en fé-
lagsmaður í skógræktarfélagi fær
1.000 kr. afslátt, einnig er veittur
10% hjónaafsláttur. Námskeiðs-
gögn og kaffi innifalið í verði. Nán-
ari upplýsingar/skráning á skog-
@skog.is
Hópþjálfun Gigtarfélags Íslands
er byrjuð aftur. Í boði eru mis-
munandi hópar, t.d. leikfimi, vefja-
gigtarhópa, bakleikfimi fyrir karl-
menn og vatnsleikfimi. Einnig er
boðið uppá jóganámskeið, sem að-
lagað er einstaklingum með gigt.
Þjálfunin fer fram á mismunandi
tímum dags og í húsi GÍ að Ármúla
5 og vatnsþjálfunin í Sjálfsbjarg-
arlaug í Hátúni 12. Skráning og
nánari upplýsingar eru á skrifstofu
GÍ.
Málþing um skóla framtíð-
arinnar. Kári Stefánsson, Guð-
finna Bjarnadóttir, Gunnar Her-
sveinn, Sigmar Vilhjálmsson og
Sæunn Stefánsdóttir verða frum-
mælendur á opnu málþingi um
skóla framtíðarinnar sem Fram-
sóknarflokkurinn efnir til á Grand
hóteli í Reykjavík þriðjudags-
kvöldið 20. apríl kl. 20.
Í framsöguerindum munu þau gera
grein fyrir hugmyndum sínum um
íslenska skólakerfið og hvernig
áherslur og starfshætti þau vilji
sjá í íslenskum skólum á hinum
ólíku skólastigum. Einnig verður
fjallað um jafnrétti til náms o.fl.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, setur fund-
inn. Jónína Bjartmarz alþing-
ismaður verður fundarstjóri.
Á NÆSTUNNI
Kynningardagur Fjölmenntar, full-
orðinsfræðslu fatlaðra. Fjöl-
mennt á höfuðborgarsvæðinu býður
nemendum sínum og öllum sem vilja
kynnast starfsemi Fjölmenntar í
heimsókn í dag, laugardaginn 17.
apríl, kl. 13–16 í Borgartúni 22, 2.
hæð.
Nýútkomin starfsáætlun Fjöl-
menntar fyrir skóláárið 2004–2005
verður kynnt og starfsfólk Fjöl-
menntar verður á staðnum og veitir
upplýsingar.
Í DAG
Safnaramarkaður hjá Félagi frí-
merkjasafnara. Safnaramarkaður
verður haldinn í Félagsheimili Fé-
lags Frímerkjasafnara í Síðumúla
17, 2. hæð, á morgun, sunnudaginn
18 apríl, kl. 13–16. Til sölu og
skipta verða frímerki, umslög og
ýmislegt annað sem tengist frí-
merkjasöfnun, þá verður mynt, ís-
lenskir og erlendir seðlar, minn-
ispeningar, barmmerki, pennar
o.fl.
Myntsafnarafélag Íslands og Fé-
lag frímerkjasafnara standa að
markaðnum.
Á MORGUN
UNDIRRITAÐUR hefur verið samn-
ingur milli Húsavíkurbæjar og Reg-
ula-lögmannsstofu, um innheimtu
vanskilakrafna og um önnur lög-
fræðistörf sem óskað er eftir. Samn-
inginn undirrituðu Reinhard Reyn-
isson bæjarstjóri fyrir hönd
Húsavíkurbæjar og Berglind Svav-
arsdóttir fyrir hönd Regula-
lögmannsstofu. Samningurinn tekur
gildi 1. maí 2004.
Nýjar innheimtureglur
Jafnhliða gildistöku samningsins
taka gildi nýjar reglur um innheimtu
hjá Húsavíkurbæ. Samkvæmt þeim
og ákvæðum samningsins verður send
út ítrekun til skuldara þegar vanskil
eru orðin 2 mánaða, þar sem fram
kemur að verði skuldin ekki greidd
innan mánaðar fari hún í lögfræðiinn-
heimtu. Fyrsta skref hennar er að
skuldara er send lokaviðvörun með 10
daga greiðslufresti og á hana leggst
þá lokaviðvörunargjald, nú kr. 5.200.
Verði skuldin ekki greidd innan loka-
frests fer hún til frekari innheimtu og
leggst þá á skuldina innheimtuþóknun
samkvæmt gjaldskrá Regula eins og
hún er á hverjum tíma.
Húsavíkurbær er fjölmennasta
sveitarfélag Þingeyjarsýslna og allt
austur um og suður á land. Sveitarfé-
lagið vinnur nú að tilraunaverkefni um
mótun rafræns samfélags í samvinnu
við fleiri aðila. Hinar nýju innheimtu-
reglur og samningurinn við Regula
fela í sér aukna ögun við innheimtu
hjá Húsavíkurbæ og verður við-
skiptamönnum gerð nánari grein fyrir
þeim efnisatriðum á næstunni.
Regula-lögmannsstofa varð til við
samruna þriggja lögmannsstofa árið
2003 og hefur starfsstöðvar á Húsa-
vík, Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði.
Auk þessa eru lögmenn stofunnar
með viðveru í Fjarðabyggð. Hjá stof-
unni starfa í dag sex lögmenn og sá
sjöundi mun hefja störf 1. maí 2004.
Eigendur Regula eru í dag Berglind
Svavarsdóttir hdl., Sigríður Krist-
insdóttir hdl. og Hilmar Gunn-
laugsson hdl., sem einnig er fram-
kvæmdastjóri.
Húsavíkurkaupstaður semur við Regula-lögmannsstofu
Annast innheimtu
vanskilakrafna
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Frá undirritun samningsins. Sitjandi eru Reinhard Reynisson, bæjarstjóri
Húsavíkur, og Berglind Svavarsdóttir, hdl. og stjórnarformaður Regula.
Standandi f.v.: Hilmar Gunnlaugsson, Ása Gísladóttir, Guðmundur Níels-
son, Sigríður Kristinsdóttir og Jón Jónsson.
Húsavík. Morgunblaðið.
TAFLFÉLAGIÐ Hellir og Edda
útgáfa standa sameiginlega að
tólf móta röð á ICC-skákþjón-
inum, sem kallast Bikarsyrpa
Eddu útgáfu. Annað mótið verð-
ur haldið sunnudaginn 18. apríl
kl. 20 og verða veitt verðlaun í
boði Eddu útgáfu. Þátttakendur
skrá sig til leiks á www.sjon-
ar.hornid.com (þeir sem skráðu
sig fyrir fyrsta mótið þurfa ekki
að skrá sig aftur) og mæta á ICC
fyrir 19.55.
Næsta atkvöld Hellis fer fram
mánudaginn 19. apríl kl. 20.
Fyrst eru tefldar þrjár hrað-
skákir og síðan þrjár atskákir.
Sigurvegarinn fær í verðlaun,
mat fyrir tvo frá Dominos pizz-
um.
Þátttökugjald er 300 kr. fyrir
félagsmenn (200 kr. fyrir 15 ára
og yngri) og 500 kr. fyrir aðra
(300 kr. fyrir 15 ára og yngri).
Hellir og
Edda útgáfa
með skákmót
HÁSKÓLI Íslands býður gesti vel-
komna í Öskju – náttúrufræðahús
Háskólans – sem hýsir líf- og jarð-
vísindi. Stúdentar og fræðimenn í
líffræði, jarðfræði, landfræði og
ferðamálafræði kynna starfsemi á
öllum hæðum hússins og bjóða upp
á leiðsögn.
Sýnd verða ker með froskum á
ýmsum vaxtarskeiðum og sjóker
með kröbbum, ásamt ýmsum sýnum
sem nemendur í vistfræði, grasa-
fræði og dýrafræði nýta í námi og
rannsóknum, bakteríur, marg-
vísleg kort og loftmyndir, á jarð-
skjálftamælum jarðeðlisfræðistofu
má fylgjast með jarðhræringum á
ýmsum stöðum á landinu, sýndar
verða lifandi myndir af eldgosum
og ýmis rannsóknartæki kynnt.
Ferðalag um hafsbotninn við Kol-
beinseyjarhrygg um 50 kílómetra
leið og sýndar verða kvikmyndir af
fugla- og dýralífi víða um land.
Myndirnar tók Magnús Magnússon
sem var um árabil starfsmaður Líf-
fræðistofnunar HÍ. Einnig verða til
sýnis nærri eitt hundrað veggspjöld
þar sem vísindamenn og framhalds-
nemar kynna rannsóknir í raunvís-
indum.
Magnús Tumi Guðmundsson
jarðfræðingur flytur nýjustu fréttir
af Kötlu kl. 14 og kl. 15 kynnir Árni
Einarsson, forstöðumaður Nátt-
úrurannsóknarstöðvarinnar við
Mývatn, fyrir gestum kúluskítinn
sem er að finna í vatninu og er mik-
ilvægur hlekkur í lífríki vatnsins.
Askja opin almenningi á morgun
KOMIÐ er út rit Parkinsonsamtak-
anna, Í skuggsjá, en það er gefið út
í framhaldi af 20 ára afmæli sam-
takanna sem haldið var hátíðlegt í
desember sl. Í ritinu er bæði horft
um öxl og skyggnst fram á við. Seg-
ir Þorvaldur Þorvaldsson, formaður
samtakanna, í formála að hann von-
ist til að blaðið reynist lyftistöng til
áframhaldandi eflingar Parkinson-
samtakanna.
Meðal efnis í blaðinu eru frásagn-
ir frá afmælisráðstefnu Parkinson-
samtakanna og afmælishátíð, viðtöl
eru við félagsmenn sem starfað
hafa ötullega fyrir samtökin og
greinar eru eftir sérfræðinga í
taugalækningum.
Afmælisrit
Parkinson-
samtakanna
komið út
Ársfundur Lífeyrissjó›s verzlunarmanna ver›ur haldinn
mánudaginn 17. maí 2004 kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sjó›félagar og lífeyrisflegar sjó›sins eiga rétt til setu á ársfundinum.
Fundargögn ver›a afhent á fundarsta›.
Reykjavík 17. apríl 2004
Stjórn Lífeyrissjó›s verzlunarmanna
Sími: 580 4000 • Myndsendir: 580 4099 • Netfang: skrifstofa@live.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
1
1
8
4
2
•
s
ia
.i
s
Ársfundur 2004
♦♦♦