Morgunblaðið - 17.04.2004, Síða 56

Morgunblaðið - 17.04.2004, Síða 56
DAGBÓK 56 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Syvía kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Rán fer í dag. Mannamót Norðurbrún 1. Mánu- daginn 19. apríl verður félagsstarfið í Norð- urbrún 1 þrjátíu ára. Í tilefni af því verður af- mælinu fagnað sunnu- daginn 18. apríl og mánudaginn 19. apríl milli kl. 14 og 17 báða dagana. Sýndir verða munir sem unnir hafa verið á Norðurbrún 1 á undanförnum árum. Vinir og velunnarar starfsins eru velkomn- ir. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli. Morgungangan hefst á þriðjudaginn 20. apríl kl. 10. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Hvern virk- an dag frá 9–16.30 er fjölbreytt dagskrá, op- in fólki á öllum aldri m.a. opnar vinnustofur, spilasalur, kór og tón- listarstarfsemi, göngu- hópar, dans og margt fleira. S. 575 7720. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Sunnuhlíð Kópavogi. Söngur með sínu nefi á laugardögum kl. 15.30. Íbúar, aðstandendur og gestir velkomnir. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, Fundarskrá: Þriðjud.: Kl. 18.15, Sel- tjarnarneskirkja, Sel- tjarnarnes. Miðvikud.: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogur og Eg- ilsstaðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud.: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud.: Kl. 20, Víðistaðakirkja, Hafnarfjörður. Laug- ard.: Kl. 10.30, Kirkja Óháða safnaðarins, Reykjavík og Glerárkirkja, Ak- ureyri. Kl. 19.15 Selja- vegur 2, Reykjavík. Neyðarsími: 698 3888. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Fífan Dalsmára 5 í Kópavogi, tart- anbrautir eru opnar al- mennu göngufólki og gönguhópum frá kl.10– 11.30 alla virka daga. Blóðbankabílinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blodbank- inn.is. Breiðfirðingakórinn vortónleika í Fella- og Hólakirkju í dag kl. 15. Átthagafélag Stranda- manna heldur sitt ár- lega vorball, laug- ardaginn 17. apríl í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, 2. hæð. Hljómsveitin Upplyft- ing leikur fyrir dansi. Húsið opið kl. 22–03. Minningarkort Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu end- urhæfingadeildar Land- spítalans Kópavogi (fyrrverandi Kópavogs- hæli), s. 560 2700 og skrifstofu Styrkt- arfélags vangefinna, s. 551 5941 gegn heim- sendingu gíróseðils. Minningarsjóður Krabbameinslækn- ingadeildar Landspít- alans. Tekið er við minningargjöfum á skrifst. hjúkrunarfor- stjóra í s. 560 1300 virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dagvinnutíma er tekið á móti minn- ingargjöfum á deild 11-E í s. 560 1225. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561 4307/fax 561 4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skógum fást á eftirtöldum stöð- um: Í Byggðasafninu hjá Þórði Tómassyni, s. 487 8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s. 487 1299, í Reykjavík hjá Frí- merkjahúsinu, Laufás- vegi 2, s. 551 1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557 4977. Í dag er laugardagur 17. apríl, 108. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: Jesús sagði við þá: „Ef þér væruð blindir, væruð þér án sak- ar. En nú segist þér vera sjáandi, því varir sök yðar.“ (Jh. 9, 41.)     Jakob F. Ásgeirssonfjallar í pistli í Við- skiptablaðinu um úrskurð kærunefndar jafnrétt- ismála um ráðningu hæstaréttardómara. „Furðulegt er að fylgj- ast með þeirri atlögu sem gerð hefur verið að Birni Bjarnasyni dómsmála- ráðherra í kjölfar úr- skurðar kærunefndar jafnréttismála um að ráð- herrann hafi brotið jafn- réttislög þegar hann skip- aði í stöðu hæstaréttar- dómara sl. haust. Í fjölmiðlum er látið eins og sjálft almættið hafi talað. Samt eru ekki nema nokkrar vikur síðan kærunefnd jafnréttismála varð að athlægi frammi fyrir alþjóð þegar Hæsti- réttur lýsti nýlegum úr- skurði hennar sem firru,“ skrifar Jakob.     Um úrskurð kæru-nefndarinnar nú seg- ir Jakob: „Rökstuðningur nefndarinnar er sannast sagna hvorki fugl né fisk- ur. Það nær engri átt við mat á starfshæfni að fara í frekari samjöfnuð á um- sækjendum en Hæstirétt- ur gerir sjálfur í umsögn sinni – þ.e. skera úr um hverjir teljast „hæfir“ á grundvelli menntunar og starfsreynslu – því að öðr- um kosti hljóta alltaf þeir sem eru með flest prófin, bestu einkunnirnar og lengstan starfsaldur sjálf- krafa að hreppa störfin.“     Jakob skrifar ennfremurað það sýnist fráleitt að vísa á bug vel rök- studdri málefnalegri ástæðu ráðherrans fyrir skipun í embættið og kalla hana „kynferðislega mismunun“ af því að um hana ríki ekki einhugur eða aðrar málefnalegar ástæður kynnu að hafa leitt til annarrar nið- urstöðu. „Ef kærunefnd jafnréttismála hefur lög að mæla og ráða átti konu úr hópi hinna „hæfu“ um- sækjenda, samkvæmt lög- unum um jafna stöðu karla og kvenna, hlýtur ábending Hæstaréttar um að tveir karlar úr hópnum séu „heppilegastir“ til starfans ekki síður að fela í sér brot á anda þeirra laga en val dóms- málaráðherra á þriðja karlinum. Ef Hæstiréttur hefði hins vegar sagt að hinir tveir „heppilegu“ væru „hæfastir“ gegndi vitaskuld öðru máli, en það gerði Hæstiréttur ekki.     Er líklegt að Hæstirétt-ur leggi til að dóms- málaráðherra landsins gerist brotlegur við landslög? Ef Hæstiréttur hefði talið að lögin um jafna stöðu karla og kvenna legðu þá skyldu á herðar dómsmálaráð- herra að velja konu úr hópi hinna hæfu umsækj- enda hefði hann vitaskuld látið þess getið í umsögn sinni. Annað væri fráleitt. Það stefnir því allt í að kærunefnd jafnréttismála verði öðru sinni á stuttum tíma að athlægi frammi fyrir alþjóð fari nýjasti úrskurður nefndarinnar fyrir dómstólana.“ STAKSTEINAR Misheppnuð atlaga Víkverji skrifar... Mikið er slúðrað í fjölmiðlum,sérstaklega þegar kemur að léttvægari hlutum í lífinu eins og skemmtanaheiminum og íþróttum. Breskir snápar eru manna dugleg- astir við þessa iðju enda liggur nærri að meirihluti „frétta“ sem birtast um ofannefnd málefni, fína og fræga fólkið og íþróttir, einkum fótboltann vinsæla, séu óstaðfestar fregnir, margar hverjar afar hæpn- ar og sumar hreinn uppspuni frá rótum. Götublöðin gulu er hér náttúrlega í algjörum sérflokki. Þau veigra sér ekki við að láta allt vaða, óháð því hversu satt og rétt það er, bara svo lengi sem hægt er að hafa stríðsfyr- irsagnirnar nógu krassandi og gríp- andi. Grípandi fyrir hinn gangandi vegfaranda sem grípurblaðið á næsta blaðsölustað og virðist á fart sinni ekki gefa sér tíma til að velja blað út frá öðru en einmitt stríðsfyr- irsögnunum. x x x En á síðari árum hafa netfrétta-miðlar komið sterkir inn í þessa kámugu kreðsu og eru nú til fjöl- margir skemmtana- og íþrótta- fréttamiðlar sem dæla út fréttum á færibandi. Og það bókstaflega, því óþolinmóðir netverjar sætta sig ekki við minna en að sjá nýjar „fréttir“ í hvert sinn sem þeir sækja síðurnar heim, sem í tilfelli margra getur verið oftsinnis á klukkustund hverri. Þetta er því ekki öfunds- verður bransi að starfa í því þótt það sé vissulega alltaf eitthvað stór- merkilegt að gerast í boltanum enska, fyrir þeim sem hann kunna að meta á annað borð, þá er ekki smuga að hægt sé að dæla út mörg- um skúbbum á klukkustund, allan liðlangan sólarhringinn. Og hvað gera bændur þá? Hvað er til bragðs tekið undir slíkri pressu? Í slíkri örvæntingu? Nú hvað annað en að láta allt vaða, allar gróusögurnar sem á sveimi eru, blóðhráar og ókannaðar. Þetta vita nær allir sem þessar íþróttafréttasíður skoða. Netverjar vita vel að það er vart fótur fyrir neinum af þeim fréttum sem birtast á vinsælum netfréttasíðum á borð við Teamtalk, Soccernet, Foot- ball354 og hvað þær nú heita allar saman. Svo fara virðulegri frétta- miðlar á borð við BBC, ITV og Guardian aðra og lúmskari leið að þessum vinsælu en vafasömu frétt- um með því að vísa vel og greinilega í þær. x x x En fyrst flestir ef ekki allir vita aðmegnið af þessum meintu frétt- um er uppspuni og langsóttar sögu- sagnir, hvers vegna ásælast menn þær svo mjög og leyfa sér meira að segja að trúa þeim eitt augnablik? Spyr sá sem ekki veit. Ætli það sé ekki bara vegna þeirrar veiku vonar að einu sinni og einu sinni sé fótur fyrir fréttinni. Það vonar Víkverji í öllu falli - veikt. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Samkvæmt áreiðanlegum heimild- armanni Víkverja mun Guðjón Þórðarson taka við Liverpool þegar búið er að sparka Houllier. LÁRÉTT 1 menn, 4 liprar, 7 göm- ul, 8 kynið, 9 lyftiduft, 11 lengdareining, 13 bæta, 14 grenja, 15 viðlag, 17 hirslu, 20 náttúrufar, 22 mynnið, 23 viðurkennir, 24 atvinnugrein, 25 gabba. LÓÐRÉTT 1 skóf í hári, 2 óheflaður maður, 3 vitlaus, 4 skor- dýr, 5 fótþurrka, 6 rás, 10 bætir við, 12 kletta- snös, 13 tíndi, 15 kon- ungur, 16 vafinn, 18 glað- ur, 19 hluta, 20 flanið, 21 skaði. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 fárveikur, 8 flóki, 9 núlli, 10 tei, 11 skapa, 13 nýrna, 15 fræða, 18 fasta, 21 púa, 22 rolla, 23 leiti, 24 snillings. Lóðrétt: 2 ámóta, 3 veita, 4 iðnin, 5 Ullur, 6 ofns, 7 hita, 12 peð, 14 ýsa, 15 forn,16 ætlun, 17 apall, 18 falli, 19 sting, 20 akir. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html Sumarvinna VELVAKANDA barst bréf frá Christian Bleck- man en hann er að leita sér að sumarvinnu. Christan er 17 ára gam- all og búsettur í Svíþjóð. Hann er að leita sér að sumarstarfi í einn mánuð á Íslandi nk. sumar, (júní– júlí). Hann vill vinna með höndunum, t.d. á sveitabýli eða hóteli. Christian er úr tónlistarfjölskyldu, er m.a. í tónlistarnámi og spilar á trommur. Hann hefur áhuga að kynnast nýrri menningu og bæta enskukunnáttu sína. Þeir sem gætu liðsinnt Christian eru beðnir að hafa samband við hann á netfang- inu: cb sensei@hotmail.com eða skrifið til: Christian Bleckman, Långdansgatan 24, SE-603 66 Norrköping, Sweden. Sími: (46) 11 14 6307 eða (4670) 365 9620. Íslensks pars leitað ÉG heiti Jarl Andersen, er Norðmaður en bý að hluta til í Miami. Ég vinn fyrir norskt fyrirtæki sem rekur farþegaskip. 27. mars sl. hitti ég ís- lenskt par um borð í M/S Norwegian Sun. Þau höfðu þá verið á siglingu í eina viku. Maðurinn er í námi í New York og konan í námi í Reykjavík. Ég, parið og yf- irvélstjórinn, töluðum lengi saman. Mig langar að ná sam- bandi við þetta par en hef hvorki nöfn þeirra né heim- ilisföng. Þeir sem gætu gef- ið mér upplýsingar eða komið mér í samband við þetta par eru beðnir að hafa samband á netfangið: jarl.andersen@ scanship.no - eða á heimilisfangið: Jarl M. Andersen, Raveien 163., 3242 Sandefjord, Norge. Sími: +47 957 20288 eða +1 786 256 7398. Best er að ná í mig með tölvupósti. Kveðja, Jarl M. Andersen. Tapað/fundið Blá barnahúfa týndist BLÁ barnaprjónahúfa, út- prjónuð með nafninu Alex týndist í Laugarneshverfi. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 553 6396, 568 9628 og 860 2811. Gleraugu í óskilum BRÚN gleraugu eru í óskilum í Bókakaffinu í Bleiku dúfunni, Lauga- vegi 21. Upplýsingar á staðnum. Dýrahald Bósi er týndur BÓSI er 4ra mánaða kett- lingur, grár og loðinn. Hann týndist frá Laut- arsmára 43 sl. fimmtudag. Þeir sem hafa orðið varir við hann hafi samband í síma 557 1503 eða 892 1501. Kristín og Eyþór. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.