Morgunblaðið - 17.04.2004, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 57
DAGBÓK
Bridsfélag
Akureyrar
Nú er lokið tveimur kvöldum af
þremur í Board-a-Match keppni fé-
lagsins, Halldórsmótinu. Ýmislegt
hefur gengið á og röð eftstu sveita
breyzt í hverri umferð.
Staðan er nú:
Sv. Stefáns Vilhjámssonar 136
Sv. Unu Sveinsdóttur 123
Sv. Gylfa Pálssonar 121
Sv. Frímanns Stefánssonar 118
Með Stefáni spila Hermann Huij-
bens, Haukur Harðarson og Haukur
Jónsson.
Sunnudaginn 04.04.04. mættu 10
pör til leiks og athygli vakti að tvö
efstu pörin voru bæði styrkt af brott-
fluttum Akureyringum:
Páll Þórsson – Frímann Stefánsson 25
Örlygur Örlygsson – Reynir Helgason 20
Steinarr Guðmundss. – Hjalti Bergmann 13
Ragnheiður Haraldsd.– Kolbrún Guðv. 7
Spilaðir eru eins kvölds tvímenn-
ingar á sunnudögum og lengri mót á
þriðjudögum. Spilamennska hefst
klukkan 19.30 í Hamri og eru allir vel-
komnir.
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Enn var hart barist í Hafnarfirði,
þegar síðasta lotan í vortvímenningn-
um fór fram. Urðu menn þó lítt sárir,
þó að einhverjir mæddust nokkuð.
Einnig rifjaðist upp gamla máltækið:
Nýir vendir sópa best.
Úrslit urðu þannig:
Andrés Þórarinsson – Ársæll Vignisson 122
Ómar Óskarsson – Böðvar Magnússon 119
Björn Jónsson – Þórður Jónsson 117
Hulda Hjálmarsd. – Halldór Þórólfsson 116
Aðrir voru ekki yfir meðalskor,
sem var 108.
Þegar allar loturnar hafa verið
reiknaðar miðað við sömu meðalskor
(156) og sú lélegasta hjá hverju pari
dregin frá, kemur í ljós að heildar-
úrslitin hafa orðið þannig:
Björn Jónsson – Þórður Jónsson 366
Ómar Óskarsson – Böðvar Magnússon 350
Hulda Hjálmarsd. – Halldór Þórólfss. 344
Sverrir Jónsson – Atli Hjartarson 344
Guðlaugur Bessas. – Hafþór Kristjánss. 327
Hjalti Halldórsson – Hjörtur Halldórss. 326
Reiknimeistari dæmir sjónarmun í
þriðja sæti.
Mánudaginn 19. apríl fara Hafn-
firðingar í heimsókn til Bridsdeildar
Barðstrendinga og kvenna í Reykja-
vík.
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Ásgarði Glæsibæ mánud. 29. mars sl.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S:
Oliver Kristóf. – Sæmundur Björnss. 268
Geir Guðmundss. – Ægir Ferdinandss. 266
Hannes Ingibergsson – Sigurður Pálss. 263
Árangur A-V:
Oddur Halldórsson – Lilja Kristjánsd. 247
Magnús Oddsson – Ragnar Björnsson 238
Alda Hansen – Jón Lárusson 231
Tvímenningskeppni var spiluð
fimmtud. 1. apríl. Spilað var á 10
borðum.
Árangur N-S:
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 255
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 252
Oliver Kristóf. – Sæmundur Björnss. 248
Árangur A-V:
Björn E. Péturss. – Friðrik Hermannss. 258
Guðbjörn Axelsson – Gunnar Jónsson 251
Elín Jónsdóttir – Jón Hallgrímsson 245
Bridsfélag
Borgarfjarðar
Mánudaginn 5. apríl var spilaður
Mitchell tvímenningur með þátttöku
17 para. Bifrestingar mættu sterkir
til leiks og tóku N-S riðilinn en gömlu
kempurnar Eyjólfur á Kópareykjum
og Jói á Steinum sýndu að þeir hafa
engu gleymt og tóku A-V riðilinn með
glans. Niðurstaðan var eftirfarandi:
N-S
Hörður Gunnarss. – Ásgeir Ásgeirss. 63,2
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 62,2
Guðmundur og Þorsteinn Péturssynir 53,4
A-V
Eyjólfur Sigurjónss. – Jóhann Oddss. 59,2
Elín Þórisdóttir – Jón H. Einarsson 58,0
Kristján Axelsson – Kristján Snorras. 57,4
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ákveðin/n og mjög
ábyrg/ur. Þú hefur áhuga á
félagsmálum og átt auðvelt
með að ávinna þér traust
annarra. Þú ert að ljúka níu
ára tímabili og því má gera
ráð fyrir ýmsum breytingum
í lífi þínu á næstunni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Stundum ganga hlutirnir vel
og stundum ekki. Mundu að
þakka fyrir það sem vel
gengur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ekki vera of sjálfs-
gagnrýnin/n í dag og ekki
láta gagnrýni annarra hafa
áhrif á þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Einhver þér eldri gæti sagt
eitthvað sem dregur úr þér
kjarkinn í dag. Ekki taka það
persónulega. Jafnvel vitrasta
fólk virðist stundum hafa
þörf fyrir að slá um sig á
kostnað annarra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er ekki besti dagurinn
til að ræða málin við yf-
irmanninn, kennarann, lög-
regluna eða fulltrúa yfir-
valda.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það liggur einhver svartsýni í
loftinu í dag en hlutirnir ættu
strax að líta betur út á morg-
un.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það angrar þig að einhver
skuli neita að skipta hlut-
unum með þér á sanngjarnan
hátt. Þér finnst þú ekki fá það
sem þér ber.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er hætt við að foreldrar
þínir segi eitthvað sem dreg-
ur úr þér kjarkinn í dag.
Reyndu að halda ró þinni og
bíða til morguns.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ferðaáætlanir þínar og fyr-
irhugað framhaldsnám líta
ekki sem best út þessa dag-
ana. Það er eins og fjármagn
og tækifæri hafi hreinlega
gufað upp. Reyndu að láta
þetta ekki slá þig út af laginu.
Það má alltaf finna önnur
tækifæri.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að sýna börnum þol-
inmæði og sveigjanleika í
dag. Mundu að hvatning fær
mun meiru áorkað en gagn-
rýni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er ekki rétti dagurinn
til að ræða málin við maka
þinn eða náinn vin. Bíddu til
morguns því þá verða allar
aðstæður heppilegri.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Áhyggjur eru eins og ruggu-
stóll. Þær halda manni upp-
teknum án þess að færa
mann úr stað. Reyndu að ýta
þeim frá þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert óvenju gagnrýnin/n í
dag og því mun það sem þú
kaupir vera hagnýtt og nýt-
ast vel og lengi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VORHVÖT
Þú, vorgyðja! svífur úr suðrænum geim
á sólgeisla vængjunum breiðum
til Ísalands fannþöktu fjallanna heim
að fossum og dimmbláum heiðum;
ég sé hvar í skýjum þú brunar á braut,
ó ber þú mitt ljóð heim í ættjarðar skaut.
Og kveð þar fyr gumum í gróandi dal
við gullskæra hörpunnar strengi
um þjóðvorið fagra, sem frelsi vort skal
með fögnuði leiða’ yfir vengi;
þá vaxa meiðir þar vísir er nú, -
svo verður, ef þjóðin er sjálfri sér trú.
- - -
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
75 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 18. apríl, verður 75 ára
Sigrún Sturludóttir, Espi-
gerði 4, Reykjavík. Hún
dvelur um helgina í Borg-
arfirðinum með fjölskyldu
sinni.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 18. apríl, er sextug Erna
Marline, Heinabergi 22,
Þorlákshöfn. Hún og börn
hennar taka á móti ætt-
ingjum og vinum í dag, laug-
ardaginn 17. apríl, kl. 20 í
Grunnskóla Þorlákshafnar.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 17. apríl, eiga 50
ára hjúskaparafmæli heiðurshjónin Árni Stefánsson og
Svava Sverrisdóttir á Höfn í Hornafirði.
ÁRNAÐ HEILLA
TÍSKAN er alls staðar
með klærnar. Hún ræður
því hve læri kvenna eru
áberandi og líka því hvað
telst opnun í brids. Nú er
tískan sú að opna létt:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠Á10
♥ÁD9764
♦752
♣97
Suður
♠D92
♥K
♦K43
♣ÁG10862
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta Pass 2 lauf *
Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
* Eðlilegt og krafa í
geim.
Sú var tíðin að menn
hefðu opnað á veikum
tveimur með spil norðurs,
en nú til dags eru 10
punktar og sexlitur of mik-
il verðmæti fyrir hindrun-
arsögn.
Keppendur í úrslitum
Íslandsmótsins vöktu
flestir á einu hjarta og eftir
þá byrjun varð niðurstað-
an óhjákvæmilega sú að
suður spilaði þrjú grönd.
Þrjú grönd er enginn
óskasamningur, en þó
varla mikið verra spil en
bútur í hjarta eða laufi.
Alla vega er lesandinn
staddur í þremur gröndum
og fær út spaða. Tían úr
borði og austur fylgir með
hundi. Hvernig á að spila?
Einn möguleiki er að
spila upp á sex hjartaslagi
– hjartað 3-3 eða G10 tví-
spil. Þá er gengið hreint til
verks: hjarta spilað á kóng
og spaða á ás.
En þetta er nokkuð
bindandi leið og gott væri
að geta tekið laufið með í
reikningsdæmið.
Norður
♠Á10
♥ÁD9764
♦752
♣97
Vestur Austur
♠KG7654 ♠83
♥108 ♥G532
♦D109 ♦ÁG86
♣54 ♣KD3
Suður
♠D92
♥K
♦K43
♣ÁG10862
Margir spiluðu laufníu
og létu hana rúlla ef austur
lagði ekki á. Samgangs-
vandræði eru enn til stað-
ar, en vegna hagstæðrar
legu er varla hægt að
klúðra spilinu. En spurn-
ingin er eftir sem áður sú
hvernig best sé að verka
spilið.
Ef byrjað er á laufinu og
það líklega gerist að vestur
fái slaginn og spili spaða er
hjartað nánast út úr mynd-
inni. Því virðist betri leið
að spila strax hjarta á
kóng og litlu laufi að heim-
an á níuna. Sem dugir ef
vestur á háspil annað eða
ef sagnhafi les austur með
hjónin. Og oftast þegar
hjartað skilar sér.
En þetta er flókið spil og
hugmyndir eru vel þegnar.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6
4. 0-0 Bg7 5. He1 Rf6 6. e5
Rd5 7. Rc3 Rc7 8. Bxc6 dxc6
9. Re4 Re6 10. d3 0-0 11.
Be3 b6 12. Dd2 f5 13. exf6
exf6 14. c3 Ba6 15. Had1
Dc7 16. Bh6 Had8 17. Bxg7
Kxg7 18. Dc2 Rf4 19. c4 Bc8
20. He3 Bg4 21. Hde1 Bxf3
22. Hxf3 Re6 23. Dd2 Rd4
24. Hfe3 Rf5 25. Hh3 h5 26.
Rg3 Rh6 27.
He4 Hfe8 28.
De2 Df7 29. Rf1
Rf5 30. Rd2
Dd7 31. Kf1
Hxe4 32. Rxe4
He8 33. Dc2
He6 34. Dc1
Dc7 35. Dd2
De5 36. Rg3
Rh6 37. f4 Dd4
38. f5 He5 39.
fxg6
Fyrir stuttu
styrkti hol-
lenska orkufyr-
irtækið Cogas
einvígi á milli
tveggja bestu skákmanna
Hollands. Annar þeirra, Jan
Timman (2.576), hefur verið
í bransanum í fjölda áratuga
en það dugði ekki til að
halda í við Loek Van Wely
(2.651). Sá síðarnefndi hafði
svart og gat notfært sér litla
samhæfingu hvítu mann-
anna til að öðlast óstöðvandi
sókn. 39... Rg4! 40. Rxh5+
Kxg6 41. Rf4+ Kf7 42. g3
Re3+ 43. Kg1 Rxc4+ 44.
Df2 He1+ 45. Kg2 Re3+ 46.
Kf3 Hf1 47. Hh7+ Kg8 og
hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FRYSTIGÁMUR
Til sölu 40 feta
frystigámur
Upplýsingar í síma
895 7409 Guðfinnur