Morgunblaðið - 17.04.2004, Side 63

Morgunblaðið - 17.04.2004, Side 63
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 63 DANSLEIKUR Harmonikufélags Reykjavíkur „ ....Hæ dúddelí dúddelí dæ.” Dúndrandi harmonikuball í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima, í Reykja- vík í kvöld frá kl. 22:00. Fjölbreytt músik fyrir dansáhugafólk. Ragnheiður Hauksdóttir syngur. Aðgangseyrir kr. 1.200. MARGIR koma að gerð stórmynda í kvik- myndaborginni Los Angels og er Íslending- urinn Konráð Jóhann Sigurðsson einn þeirra. Nú síðast vann hann við Köngulóarmanninn II (Spider-Man II). Myndir af þessu tagi eru oft enn stærri í sniðum en leikmenn gera sér grein fyrir eins og Konráð veit. Hann er bæði kvik- myndatökumaður og kafari og finnst ekkert óvenjulegt við það að vera í vatni í marga tíma á dag. Konráð flutti til Los Angeles fyrir fjór- tán árum, þá rúmlega tvítugur, lærði kvik- myndagerð og hefur unnið í iðnaðinum í tíu ár. Í vatni í tólf tíma á dag „Ég var að vinna að ofansjávar- og neð- ansjávarlýsingu. Við hönnuðum allskonar ljós sem eru notuð neðansjávar fyrir þessa mynd,“ segir hann um vinnuna við framhaldsmyndina um Köngulóarmanninn, sem frumsýnd verður í Bandaríkjunum í sumar. Köngulóarmaðurinn er vel heima í lofti en Konráð kann við sig í vatni. „Ég var í vatninu í svona tólf tíma á dag í tvo og hálfan mánuð. Ekki alltaf í kafi kannski en alltaf í vatninu,“ segir hann um tökurnar. Fyrsta myndin um Köngulóarmanninn var geysivinsæl og er mikill spenningur hjá aðdá- endum vegna framhaldsmyndarinnar. Að sama skapi ríkir leynd yfir myndinni og getur Konráð ekki upplýst allt í kringum söguþráð- inn eða gefið leyfi til að birta mynd af settinu. Hér gefst þó tækifæri til að birta mynd af Kon- ráð hálfum í kafi við tökur. Settið er greinilega umfangsmikið en tökurnar fóru fram í stúdíói í Los Angeles. Bryggjuatriði í New York Í upptökunum var Konráð að vinna við sjón- rænar brellur með sérhæfðu upptökuliði. „Þarna er bryggjubygging sem leggst saman og sekkur í sjóinn í enda myndarinnar. Þetta á að gerast í New York en við vorum að vinna að lokaatriði myndarinnar á þessum tíma,“ segir hann en aðalvinnan við þetta atriði fór fram frá nóvember fram í miðjan janúar. „Svo var ég að gera annað atriði þarna um daginn þannig að þetta er endalaust. Við vorum bara að klára myndina í síðustu viku. Þegar byrjað er að klippa þá vantar kannski eitthvað eða þá að eitthvað er ekki nógu gott,“ útskýrir hann um vinnuferlið. Konráð er aðspurður ekkert hrifnæmur yfir því að vera að vinna í svona stórmynd. „Ég er búinn að vera að gera þetta í yfir tíu ár þannig að þetta er orðið frekar þreytandi núna. Vinnudagurinn er alltof langur,“ segir hann. Hann hefur reynt sig við ýmislegt í Holly- wood. „Ég geri hvað sem er, ég er kvikmynda- tökumaður á „second unitum“ í sumum mynd- um. Svo hef ég líka verið mikið með umsjón með ljósum og uppsetningu þeirra, stundum aðstoðarmaður umsjónarmanns. Þetta er svo lítill hópur sem vinnur að öllum þessum stóru myndum þannig að hver sem nær í „djobbið“, hann ræður hina,“ segir hann en „second unit“ er kvikmyndatökulið sem vinnur samhliða að- alkvikmyndatökuliði og er oft í tökum þar sem aðalleikarar koma ekki við sögu. Stundum eru þetta skot sem notuð eru með viðbættum brell- um, myndir á bíl á ferð eða annað slíkt. Sem dæmi var kvikmyndatökuliðið sem vann við Bond-myndina hérlendis slíkt tökulið. Mynd með Scorsese Konráð hefur undanfarið unnið meira við stórar myndir og segist hafa verið mestmegnis í sjónrænu brellunum. „Ég hef ekki unnið við litlar myndir í langan tíma núna. Ég vann að- allega sjónrænar brellur á síðasta ári. Ég var að klára stóra mynd núna með Martin Scors- ese um Howard Hughes. Leonardo DiCaprio er í aðalhlutverki,“ segir hann en myndin heit- ir The Aviator og er unnið að eftirvinnslu hennar um þessar mundir. Konráð hefur verið að kafa í mörg ár og segir þekkinguna koma sér vel. „Ég er búinn að vera að kafa í mörg ár. Það er oft kallað í okkur í neðansjávarmyndir. Maður þarf eig- inlega að geta gert hvað sem er í þessum stóru myndum, til dæmis farið í fjallgöngur. Maður veit aldrei í upphafi hvað maður er að fara í. Stundum byrjar myndin á því að það koma kennarar á staðinn og fara yfir ýmsa þætti því það eru mörg öryggisatriði sem þarf að huga að. En ég tók köfunarprófin mín bara út á áhuga.“ Kafarinn og kvikmyndatökumaðurinn Konráð Jóhann Sigurðsson vann við Köngulóarmanninn II Á kafi í Hollywood Konráð við tökur á Köngulóarmanninum II í stúdíói í Los Angeles.Tobey Maguire leikur Köngulóarmanninn. spiderman.sonypictures.com ingarun@mbl.is TILKYNNT var í dag hverjir munu fara með helstu hlutverk í söngleiknum Hárinu, sem sýndur verður í Austurbæ í Reykjavík í sumar. Um 300 manns mættu í Austurbæ í síðustu viku þar sem leikara- og söngvaraprufur fóru fram og úr þeim hópi voru þrettán valdir til að taka þátt í sýningunni og var sá hópur kynntur á blaða- mannafundi í gær. Að sögn Rúnars Freys Gísla- sonar leikstjóra var það nánast yf- irþyrmandi reynsla fyrir hann að hitta hópinn í gær en þetta er fyrsta leikstjórnarverkefni hans. „Maður stóð þarna frammi fyrir 30 manna hópi, allt saman mikið hæfileikafólk, og þá sá ég að þetta er mikið ábyrgðarstarf sem ég hef,“ segir Rúnar og er auðheyri- lega spenntur. Hann segir jafn- framt að alla tíð hafi hann haft mikinn áhuga á leikstjórn og hafi iðulega miklar skoðanir á þeim hluta leikhúslífsins. Rúnar segir að það hafi verið mjög erfitt að velja í lokahópinn þar sem það hafi einfaldlega verið allt of mikið af framúrskarandi hæfileikafólki sem hafi mætt í prufur! „Það má því segja með sanni að það sé valinn maður í hverju rúmi. Við erum með góða blöndu af reyndum leikurum og óþekktu fólki. Og ég efast ekki um að í hópnum séu upprennandi stjörn- ur.“ Rúnar segir að það hæfi vel þessum tímum að setja Hárið upp. „Maður finnur það í samfélaginu að það er ákveðinn uppreisnar- hugur í gangi, líkt og var fyrir rúmum þrjátíu árum. Hárið er stríðsádeila og á því vel við í dag og þá stríðstíma sem við lifum á. Krakkarnir í dag eru líka komnir með hár niður á axlir og eru frjálslegri en nokkru sinni, bæði hvað varðar klæðaburð og lífsstíl. Fólk á því eftir að tengja vel við boðskapinn sem er að finna í Hárinu.“ Valinn maður Valið var sérstaklega í aðal- hlutverkin en þau skipa Björn Thors (Berger), Hilmir Snær Guðnason (Hud), Ilmur Kristjáns- dóttir (Jeanie), Unnur Ösp Stef- ánsdóttir (Dionne), Selma Björns- dóttir (Sheila), Jóhannes Haukur Jóhannesson (Claude) og Guðjón Davíð Karlsson (Voffi). Í öðrum hlutverkum verða Dav- íð Guðbrandsson, Sverrir Berg- mann, Þorvaldur Davíð Krist- jánsson, Helgi Rafn Ingvarsson, Benedikt Einarsson, Hannes Þór Egilsson, Ingibjörg Stefánsdóttir, Regína Ósk Óskarsdóttir, Alma Rut Kristjánsdóttir, Þórey Ploder Vigfúsdóttir, Ágústa Eva Erlends- dóttir, Tinna Ágústsdóttir og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir. Tón- listarstjóri er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og hljómsveitina skipa hann sjálfur, Ólafur Hólm, Friðrik Sturluson, Pálmi Sig- urhjartarson og Vignir Snær Vig- fússon. Danshöfundur er Lára Stefánsdóttir, um leikmynd sér Axel Hallkell og hann sér einnig um búninga ásamt Hildi Hafstein. Ljósahönnuður er Björn Berg- steinn Guðmundsson og hljóð- hönnuður Ívar Bongó. Söngleik- urinn Hárið var upphaflega frumsýndur á Broadway árið 1968 en hann hefur tvívegis áður verið settur upp hér á landi. Hárið verð- ur frumsýnt 2. júlí í Austurbæ og gefinn verður út geisladiskur með tónlistinni úr sýningunni. Hárið frumsýnt Tími Hársins er runninn upp enn á ný Sverrir Bergmann er meðal þeirra 13 er valdir voru úr 300 manna hópi í áheyrnarprufum fyrir Hárið. Sverrir tók m.a. lagið á blaðamannafundi í dag. Morgunblaðið/Jim Smart Hluti hópsins ásamt þeim Pálma Sigurhjartarsyni og Vigni Snæ Vignissyni. í Austurbæ í júlí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.