Morgunblaðið - 21.04.2004, Side 1
HÁSKÓLARÁÐ Háskólans á Akureyri
samþykkti í gær reglur um takmörkun á
fjölda nýnema við skólann. Er þetta í fyrsta
sinn sem slíkar reglur eru settar fyrir allar
deildir skólans.
Áður var fjöldatakmörkunum beitt í heil-
brigðisdeild, 36 nýnemar voru teknir inn í
hjúkrunarfræði og 18 í iðjuþjálfun. 590 ný-
nemar verða innritaðir næsta haust, en þeir
voru ríflega 760 talsins á síðastliðnu hausti.
Fjárveitingar takmarka fjölda
Þorsteinn Gunnarsson rektor segir vax-
andi aðsókn að námi við háskólann helstu
ástæðu þess að grípa þurfi til þessa ráðs nú
og að fjárveitingar til hans útiloki að fleiri
nemendur verði innritaðir. Alls verða í
haust teknir inn 75 nýnemar í auðlindadeild,
120 í félagsvísinda- og lagadeild, 140 í kenn-
aradeild, 70 í rekstrar- og viðskiptadeild og
35 í upplýsingatæknideild, en sömu tak-
markanir og áður gilda um heilbrigðisdeild.
Fulltrúar kennara og nemenda bókuðu á
fundinum í gær að þeir hörmuðu að nú þurfi
í fyrsta sinn í 17 ára sögu Háskólans á Ak-
ureyri að setja reglur sem miða að takmörk-
un inntöku í allar deildir hans.
Fjöldatak-
markanir í öll-
um deildum
590 nýnemar/19
Háskólinn á Akureyri
STOFNAÐ 1913 108. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Opið til
kl. 21 í kvöld
Franskir dagar
21. - 25. apríl
Þekkingar
leitað ytra
Fjöldi nemenda á Bifröst nemur
erlendis | Daglegt líf
Í hlutverki
drápskvendis
Leikkonan Darryl Hannah er
komin í leitirnar | Fólkið
Bílar í dag
Vinnuvélar og nýjungar Eins og
risaeðlur í efnisnámunum
Stærsta tækjasýning í heimi
NOTENDUM, sem sóttu upplýsingar úr
þjóðskrá hjá Þjóðarsýn í gærmorgun, hef-
ur væntanlega komið nokkuð á óvart að í
upplýsingum um fæðingarstað íslenskra
einstaklinga stóð alls staðar að menn væru
fæddir í Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum.
Þessu var síðan kippt í lag en skýringin
er sú að fyrirtækið þarf að greiða Hagstof-
unni sérstaklega fyrir tilteknar upplýs-
ingar, þ.m.t. upplýsingar um fæðingarstað
en þar sem ekki er eftirspurn eftir upplýs-
ingum um fæðingarstað eru þær ekki
keyptar. Í þeim reit birtist nú að fæðing-
arstaður finnist ekki en vegna villu í for-
riti stóð þar um tíma að öll íslenska þjóðin
væri fædd í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum.
Sagðir fæddir í
Sameinuðu arabísku
furstadæmunum
ÁKVÖRÐUN brezka forsætisráðherrans Tony
Blairs um að láta fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um stjórnarskrársáttmála Evrópusam-
bandsins er álitin vera pólitískt hættuspil sem
gæti stefnt bæði sáttmálanum og stjórnmálaferli
Blairs sjálfs í voða.
Ákvörðunin, sem Blair tilkynnti um í brezka
þinginu í gær, er kúvending á þeirri stefnu sem
ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefur hingað til
fylgt í málinu. Blair hafði jafnan sagt, að engin
þörf væri á því að leggja nýja sáttmálann, sem
vonazt er til að verði frágenginn í júní, í dóm kjós-
enda. Samkvæmt skoðanakönnunum er mjög
mjótt á mununum hvað varðar afstöðu brezks al-
mennings til málsins og skyldi meirihlutinn segja
„nei“ myndi það a.m.k. slá gildistöku sáttmálans
á frest og þvinga Blair til afsagnar.
Brezkir íhaldsmenn
halda því fram að stjórnar-
skrársáttmálinn muni
grafa undan fullveldi Bret-
lands og höfðu ítrekað kraf-
izt þjóðaratkvæðagreiðslu
um málið. Michael Howard,
leiðtogi Íhaldsflokksins,
fagnaði því þess vegna í
gær að Blair hefði „loksins
vitkast í þessu máli“ en fór
jafnframt háðslegum orðum um sinnaskipti for-
sætisráðherrans og rifjaði upp að hann hefði eitt
sinn sagt, að hann hefði „engan bakkgír“.
„Í dag heyrum við hvernig skipt er skyndilega
í bakkgírinn,“ sagði Howard. „Hver getur nokk-
urn tíma treyst þessum manni á ný?“ Charles
Kennedy, leiðtogi frjálslyndra, fagnaði einnig
ákvörðun Blairs og sagði að andstæðingar Evr-
ópusamstarfsins hefðu of lengi fengið að stýra
umræðunni um Evrópumálin.
Persson undrandi
Sænski forsætisráðherrann Göran Persson
sagðist í gær undrandi á ákvörðun Blairs og
ítrekaði andstöðu sína við að efnt yrði til hlið-
stæðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í Svíþjóð. „Við
höfum þjóðkjörið þing sem hefur verið trúað fyrir
því að taka erfiðar ákvarðanir. Ég tel að við séum
að hætta okkur út á vafasama braut ef við svipt-
um þingið ábyrgð á að taka svona ákvörðun og
skjótum henni í þjóðaratkvæði,“ sagði Persson.
Lundúnum, Stokkhólmi. AP, AFP.
Boðar/16
Tony Blair
Blair þykir tefla djarft
Öryggiseftirlit við leikvanginn
var hert eftir að tíu menn, níu
upprunnir í Norður-Afríku og
einn íraskur Kúrdi, voru hand-
teknir í Mið- og Norður-Englandi
vegna gruns um hryðjuverka-
áform. Óstaðfestar fregnir
BREZKUR lögreglumaður í full-
um óeirðaherklæðum hefur auga
með Old Trafford-knatt-
spyrnuleikvanginum í Manchest-
er í gærkvöld, er heimaliðið
Manchester United mætti Charlt-
on.
hermdu að hópurinn hefði lagt á
ráðin um að fremja sjálfsmorðs-
sprengjuárás á Old Trafford á
laugardaginn. Þá fer þar fram
leikur Manchester United og Liv-
erpool en hann hyggjast um 200
Íslendingar sækja. /14
Reuters
Eftirlit hert við Old Trafford
KONA af ættbálki frumbyggja Ástr-
alíu, Moopor að nafni, með pokarottu-
skinn um herðar sér og kengúrubein í
hendi, er hér umkringd fréttamönn-
um í bænum Colac, um 150 km vestur
af Melbourne, en beininu beindi hún
að ástralska forsætisráðherranum
John Howard og lagði þar með bölv-
un á hann að fornum sið frumbyggja.
Þetta gerði konan í mótmælaskyni
við ákvörðun Ástralíustjórnar um að
leggja niður Frumbyggjaráðið, sem
skipað var kjörfulltrúum frumbyggja.
Howard sagði það hafa brugðizt.Reuters
Bölvun lögð á Howard
MANNFALL hélt áfram í Írak í
gær. 22 fangar létu lífið í óvæntri
árás sem skæruliðar gerðu með
sprengjuvörpum á fangelsi í
Bagdad í gærmorgun.
Allir hinir látnu voru í hópi fanga
úr liði Saddams Husseins eða sem
voru í haldi vegna þátttöku í skær-
um gegn hernámsliðinu. 92 fangar
særðust, þar af 25 alvarlega, að því
er talsmaður bandaríska hernáms-
liðsins greindi frá.
Er helzt líkum leitt að því að með
árásinni hafi skæruliðarnir viljað
koma af stað uppreisn innan fang-
elsismúranna, en árásarmennirnir
komust undan. Hátt í 5.000 manns
kváðu vera í haldi í fangelsinu.
Bandaríkjastjórn reyndi hvað
hún gat í gær til að hindra að raðir
bandamanna í Írak þynntust frek-
ar, eftir að Spánn og Hondúras
ákváðu að hætta þátttöku í her-
námsliðinu. Taílendingar hafa hót-
að að gera slíkt hið sama. Colin
Powell hringdi í ráðamenn margra
bandalagsríkjanna til að stappa í́
þá stálinu.
Ráðamönnum í Washington til
hughreystingar sýndu nýjar skoð-
anakannanir í Bandaríkjunum að
meirihluti landsmanna styddi að
fleiri hermenn yrðu sendir til Íraks
til að efla baráttuna gegn þrálátri
uppreisn andstæðinga hernámsins.
100. hermaðurinn fellur
Bandarískur hermaður fórst er
sprengja sprakk á vegi í Mosul í
Norður-Írak í gær. Hann var 100.
liðsmaður bandaríska herliðsins
sem fellur í Írak það sem af er apr-
ílmánuði. Að minnsta kosti 1.100
Írakar hafa látið lífið í átökum á
sama tímabili, samkvæmt upplýs-
ingum AP-fréttastofunnar.
Skæru-
liðar bana
föngum
Bagdad, Washington. AFP.
Bandaríkjastjórn
reynir að
stappa stálinu
í bandamenn
♦♦♦