Pressan - 03.05.1990, Blaðsíða 4
4
Fimmtudagur 3. maí 1990
litilræði
af grænni grein
Nú er rétt einu sinni gaman að vera íslend-
ingur.
Gaman, gaman.
Enn eitt átakið í uppsiglingu. „Þjóðarátak".
Ofboðslegur hugur í mannskapnum, svo-
nefndur „stórhugur".
Og ekkert lítið sem stendur til, hvorki meira
né minna en að klæða landið skógi milli fjalls
og fjöru, „afhenda þjóðinni landið í sinni upp-
runalegu mynd", einsog það er orðað, „bæta
fyrir þau hrikalegu náttúruspjöll sem sauð-
kindin hefur unnið á fósturjörðinni frá því hún
fluttist hingað búferlum fyrir ellefuhundruð ár-
um".
Stundum er manni nær að halda að þjóðar-
átökin séu það sem heldur lífinu í íslensku
þjóðinni.
Þegar tilgangsleysið í lífinu og tilverunni er
farið að þjaka þjóðina úr hófi hefur það, á síð-
ustu og bestu tímum, verið segin saga að
stofnað hefur verið til þjóðarátaks, einsog til að
hrista af fólkinu slenið.
Þjóðarátak um bílbelti, reykingar, 200 metra
sund, ástandið í Abessíníu, Indlandi og í Pól-
landi, konuna, skák, rofabörð, handbolta, bók-
hlöðu, barnið, júróvisjón, frístæl-dans, Eist-
land, Lettland og Litháen og nú síðast TRÉÐ.
Á þessu fagra og blíða vori hefur semsagt
enn einu sinni verið stofnað til þjóðarátaks og
að þessu sinni er takmarkið það að koma öllum
landsins börnum á „græna grein" með grettis-
taki í fjársöfnun til trjáræktar.
Guð láti gott á vita.
Markmiðið með þjóðarátaki hefur oftar en
hitt verið að koma til liðs við þá minnihluta-
hópa sem orðið hafa undir í lífinu, t.d. hand-
knattleiksmenn, pólverja, bókina og konuna.
Nú beinist þjóðarátakið að því að koma til
liðs við þann minnihlutahóp sem hvað harðast
hefur orðið undir í lífinu, semsagt TRÉÐ.
Þessa dagana er átakið í hámarki og þjóðinni
brennur hugsjónaeldur í brjósti.
Takmarkið er að tréð verði ekki lengur í
minnihluta heldur í meirihluta, landið verði
einsog það á að vera, „skógivaxið milli fjalls og
fjöru" og allir: fólk, fuglar og fénaður, komist á
„græna grein".
„Trés bien," segja frakkar, eða „tré eru góð"
(lausl. þýtt) og segja má að það séu orð að
sönnu.
Víst væri hægt að fylla margar og stórar
bækur með efni um notagildi trésins og höfum
við áhugamenn um trjárækt verið ólatir að
benda á það helsta.
Það er tildæmis talið fullvlst að hægt sé að
hafa skjól af trjám og staðreynd er að hægt er
að fela sig bakvið tré ef maður er grannur og
trjábolurinn þykkur.
En þetta er bara ekki nóg.
Nú verður að fylgja áróðursherferðinni eftir
til heilla fyrir tréð.
Ég legg til að leitaðir verði uppi mestu TRÉ-
HAUSAR samtíðarinnar og mun þeirra ef til vill
helst að leita í stjórnsýslustofnunum lýðveldis-
ins.
Kjörið væri að sameina þjóðarátakið um tréð
málræktarátakinu.
Þannig ætti tréð ekki aðeins að skjóta rótum
í frjórri mold heldur einnig teygja anga sína í
tungu feðra vorra og festa þar rætur.
Sú hefur enda orðið raunin, einsog fjölmörg
daemi sanna.
í íslensku er tildæmis talað um að láta sendi-
herrastöðu í TÉ.
Auðvitað á hér að segja að staðan sé látin í
TRÉ, því sagt er að henni hafi oft fylgt ærnir
TIMBURMENN og að menn séu oft LURKUM
LAMDIR eftir áríðandi embættisstörf.
Þá þrjá íslendinga sem andvígir eru trjárækt
mætti kalla TRÉMENNINGA og um hand-
knattleiksmenn má segja að þeir hafi orðið
undir vegna skorts á TRENERINGU og auðvit-
að aettu þeir alltaf að mæta til leiks klæddir
TRJÁBOLUM og ef þeir fá sér í staupinu eftir
leikinn eiga þeir að vera stoltir af því að taka út
sína TIMBURMENN.
Ég legg til að veitt verði bókmenntaverðlaun
fyrir bestu skáldsöguna sem berst um tilhuga-
líf trésins og þá verði mesta TRÉHAUSNUM úr
röðum rithöfunda veittur TRÉHESTURINN.
Sinfóníuhljómsveit íslands ætti að stjórna
með HERÐATRÉ, því sagt er að betra sé að
veifa röngu TRÉ en öngu og að þá muni dírig-
entinn eiga í fullu TRÉ við hljómsveitina.
íslenska þjóðin fagnar, allir sem einn, þeirri
unaðslegu þjóðareiningu sem skapast hefur
um TRÉÐ.
Megi guð og forsjónin sjá til þess að fram-
kvæmd og eftirleikur þjóðarátaksins gangi nú
ekki á TREFÓTUM.
Og þá getur öll íslenska þjóðin tekið undir í
baráttusöngnum.
Af trjáræktinni drögum dám
drottinn minn nú verður sáð
svo sjáum við ekki trén fyrir trjám
takmarkinu verður náð.
Þá er lagt til að fyrirbrigðið deleríum trem-
ens verði í framtíðinni kallað deleríum TRÉ-
MANNS.
Þá má einnig sameina átakið um tréð og
þjóðarátakið um bókina, því auðvitað er það
TRÉÐ og ekkert annað en TRÉÐ sem sér okkur
fyrir efniviði til bókagerðar.
Menn ættu ekki að gleyma því að eitt af
mestu snilldarverkum heimsbókmenntanna
hefði aldrei orðið til ef engin hefðu verið trén,-
en þetta er sagnabálkurinn um Tarsan apa-
bróður og ástkonu hans Sítu.
Eða Hrói höttur, Skógarmannasaga, Tré-
smiðatalið og Elskhugi Lady Chatterley (sem
var skógarvörður).
Öll þessi snilldarverk eru að efni og innihaldi
TRÉNU að þakka.
FERÐASKRIFSTOFA
Sími 652266
FLUG OG BILL
ÓDÝRT OG FRJÁLST
Danmörk, verð frá kr.20.690,-* Þýskaland, verð frá kr.22.510,-*
Bretland, verð frá kr.....18.920,-*
Luxembourg, verð frá kr...23.230,
FERÐASKRIFSTOFA
Sími 652266
Austurríki, verð frá kr.......24.660,-*
Sumarhús og hótel.
Ódýr gisting víða um Evrópu.
* Verð á mann viðað við 4 í bíl, VW Golf, 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára i vikuferð, án flugvallarskatts.
París
á sértilboði í maí:
Verð frá kr. 34.580,-
Flug og gisting í 4 nætur
á mann í 2ja m. herb.
á 3 ★ hóteli, án flugvallarskatts.
Flogið
með
Umboð: Akureyri:
Bókabúðin Edda,
Hafnarstræti 100.