Pressan - 03.05.1990, Side 8
I
f 8
í Reykjavikurborg miðri, nánar tiltek-
ið á lóðinni Hafnarstræti 2, er sam-
kvæmt fasteignaskrá oliugeymir og
-plan. Þessar fasteignir eru metnar á
samtals 932 þúsund krónur og eigand-
inn sagður „Skelvinnsla Bolungarvikur
hf.##. Engar upplýsingar eru til i hlutafé-
lagaskrá um tilurð þessa hlutafélags, en
hjá hagstof unni f engust þær upplýsingar
að félag með þessu nafni hefði verið af-
skráð i mars siðastliðnum, án þess að
getið væri um eigendur. Simtal til Einars
Guðfinnssonar hf. i Bolungarvik leiddi
hins vegar i Ijós að þetta fyrirtæki er
„deild i íshúsfélaginu##, sem er eitt af
fyrirtækjum afkomenda Einars Guð-
finnssonar!
EFTIR: FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON - MYNDIR EINAR ÓLASON
Miðbærinn hefur á undanförnum
árum gefið talsvert eftir í sam-
keppninni við stórmarkaði og þá
serstaklega Kringluna. Kannski er
það tímanna tákn að Bolungarvík-
urveldið hefur nú afskráð skel-
vinnslu sína í hjarta borgarinnar!
Sumir hafa á orði að það sé varla
hægt að versla í miðbænum lengur;
fyrir utan að margt sé í niðurníðslu
geti það kostað stórfé að fara þang-
að vegna „ofsókna" stöðumæla-
varða, lögreglu og kranabifreiða.
Um leið hljóta eigendur lóða og fast-
eigna í miðbænum að hafa áhyggjur
af verðmæti eigna.
Leó Löve,
Silli og Valdi og
varnarliðs-
verktakar
En hverjir eru þessir eigendur?
Það virðist sýnt að fáir stórlaxar og
stórfyrirtæki eiga lengur eignir við
Laugaveg, Bankastræti, Austur-
stræti, Aðalstræti, Hafnarstræti og
Lækjargötu. Nema auðvitað bank-
arnir. En heimsókn til fasteigna-
matsins leiddi þó ýmislegt fróðlegt í
Ijós.
Meðal annars að Bolungarvíkur-
veldið ætti plan í hjarta borgarinnar.
Þá má heita athyglisvert að Leó
Löve, lögfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Isafoldarprentsmiðj-
unnar, á umtalsverðar eignir í Aust-
urstræti. Hann á ásamt Birgi Páli
Jónssyni og Sveini Björnssyni
lóðina og fasteignina í Austurstræti
6 og hann á ásamt Sverri Kristins-
syni og Jóni Guðmundssyni lóð-
irnar og fasteignirnar við Austur-
stræti 8 og 10. Loks eiga Leó, Birgir
Páll og Jón lóðina og fasteignina við
Austurstræti 22b. Samtals voru þess-
ar lóðir og fasteignir metnar á 285
milljónir króna 1. desember sl.
Siiii og Valdi sf. og afkomendur
eigenda þess félags eiga einnig enn
talsverðar fasteignir í miðbænum. Á
félagið eða Sigurð, Sigríði og
Þorkel Valdimarsson eru skráðar
lóðirnar og fasteignirnar við Lauga-
veg 11, Laugaveg43, Laugaveg 126,
Laugaveg 146 (óbyggt land), Banka-
Fimmtudagur 3. maí 1990
stræti 12, Austurstræti 17 og Aðal-
stræti 10. Fasteignamatið nemur
hundruðum milljóna, t.d. um 166
milljónir fyrir Austurstræti 17 ein-
göngu.
Varnarliðsverktakarnir Málara-
verktakar Kefiavíkur hf. eru aðr-
ir utanbæjaraðilar sem hafa séð sér
hag í því að eignast húsnæði við
Laugaveginn. Þeir eru aðilar að
Keflavíkurverktökum, sem sjá
um viðhald fyrir varnarliðið (um
600 milljónir króna á síðasta ári) og
eiga ásamt Stjörnubíói hf. húsið
við Laugaveg 96.
Gamlar ættir,
þingmenn og
„braskarar"
Ættin Thorarensen á nokkrar
eignir á þessu svæði, m.a. Laugaveg
34a, Laugaveg 30 (hluta) og Lauga-
veg 16 (Laugavegsapótek). Ættin
Petersen (Hans Petersen) er skrifuð
fyrir Bankastræti 4 og Skólastræti 1,
sem samtals eru metin á um 105
milljónir króna. Þess má til gamans
Þetta illa farna plan telst vera Hafnarstræti 2 og er skráður eigandi „Skelvinnsla
Bolungarvíkur hf."l Þessi milljón króna eign er um leið í höndum afkomenda Ein-
ars Guðfinnssonar, sem fyrir tveimur mánuðum afskráðu fyrirtækið. Það var eftir
öðru að há-reykvískt fyrirbæri eins og Steindórsplanið skyldi vera eign Bolungar-
víkurveldisins að hluta. Hús Ferðabæjar á Petrína Jónsdóttir, ekkja sonar Stein-
dórs Einarssonar.
Aðalstræti 7 með lóð er metið á um 200 milljónir króna
og er eign Óla P. Friðþjófssonar framkvæmdastjóra og
Eiríks Helgasonar stórkaupmanns. Við hliðina er Hall-
ærisplanið og þar næst er Aðalstræti 3 en lóðin sú er
í eigu Geirs H. Haarde þingmanns og Kristjáns Stein-
dórssonar og er metin á 26 milljónir.
Aðalstræti 4 er skráð eign „Aðalstrætis 4 hf.“. Engin ný stjórn hlutafélagsins hefur verið Fasteignin nær, Laugavegur 96, stendur á borgarlóð, en húsið eiga Stjörnubíó hf. og
tilkynnt hlutafélagaskrá frá því árið 1941, en stjórnarmenn þessu samkvæmt eru Tryggvi varnarliðsverktakarnir Málaraverktakar Keflavíkur.
Jfeigsson, Páll Asgeir Tryggvason sendiherra, Björn Ófeigsson heildsali og Ólafur
Ófeigsson viðskiptafræðingur. Lóð og hús, þar sem m.a. er að finna ísbúð, Ullarhúsið og
Ðuus-hús, eru metin á 66 milljónir.